
Sign up to save your podcasts
Or


Stuttur þáttur þar sem við förum yfir þessa fyrstu seríu af Tvær á floti. Við rifjum upp góða og mikilvæga punkta sem við fengum frá þeim gestum sem komu til okkar í heimsókn. Við þökkum hlustendum og samstarfsaðilum kærlega fyrir stuðninginn þessa fyrstu seríu. Önnur sería er væntanleg haustið 2025.
Þátturinn er í boði:
Í þessum þætti fá Fanney og Sara kírópraktorinn og áhrifavaldinn Gumma Kíró í heimsókn. Þær fara um víðan völl, hvernig Gummi hefur byggt upp sterkt persónulegt vörumerki, áhrifavaldaheiminn, kosti og galla þess að vera opinber persóna. Gummi opnaði fyrir ekki svo löngu umboðsskrifstofuna Atelier Agency og fara þær yfir hvað fólk þarf að hafa í huga sem hefur áhuga á að stíga sín fyrstu skref í þessum bransa. Einlægt og áhugavert spjall sem allir ættu að hlusta á!
Þátturinn er í boði:
Í þessum þætti fara Fanney og Sara yfir það hvernig það er að byggja upp sitt persónulega vörumerki, af hverju fólk ætti að gera það og hvernig það getur hjálpað til við að koma sér á framfæri og sækja sér ný tækifæri. Persónulegt vörumerki er eitthvað sem við öll ættum að hafa bakvið eyrað hvort sem það er tengt atvinnulífinu, samfélagsmiðlum, viðskiptahugmyndum eða daglega lífinu. Stutt og þægilegt spjall um persónuleg vörumerki og hvernig það getur hjálpað þér að skara framúr og koma þér á framfæri.
Þátturinn er í boði:
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara við Ragnheiði, mannauðssérfræðing og markþjálfa hjá Lóu markþjálfun. Við förum dýpra ofan í það hvernig við setjum okkur raunhæf markmið, mikilvægi þess að lifa í núinu og að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum akkúrat núna. Ragnheiður fer einnig yfir starfsánægju, starfsumhverfi og hvernig við getum stuðlað betur að því að líða vel í lífi og starfi. Fróðlegt og hvetjandi spjall sem allir ættu að hlusta á!
Þátturinn er í boði:
Í þessum þætti fjalla Fanney og Sara um markmiðasetningu og hvernig best er að setja sér raunhæf markmið, algeng mistök í markmiðasetningu og lykilatriði sem hjálpa til við að ná markmiðum sínum. Fanney gefur okkur smá innsýn inn í það hvernig markþjálfun fer fram þar sem hún tekur stutt og einfalt markþjálfa samtal við Söru. Léttur en fróðlegur þáttur sem um leið gefur smá innblástur í það af hverju það er mikilvægt að setja sér markmið í lífinu.
Þátturinn er í boði:
🎙️ Í þessum þætti ræða Fanney og Sara við Gerði Jónsdóttir, þjálfara og stofnanda Inshape, um hvernig við getum tengst líkamanum á nærandi og heilbrigðan hátt. Þær kafa í hreyfingu sem verkfæri fyrir andlega heilsu, mikilvægi jafnvægis í næringu og hvernig við sleppum útlitskröfunni og mætum okkur sjálfum af virðingu. Gerður deilir sinni sýn, persónulegri reynslu og hagnýtum ráðum fyrir konur sem vilja hreyfa sig fyrir vellíðan – ekki útlit. Einlægt, praktískt og hvetjandi spjall um líkama, hugarfar og orku í daglegu lífi.
Þátturinn er í boði:
Fylgdu Tvær á floti:
Í þessum þætti fara Fanney og Sara á léttu nótunum yfir heilsu og næringu. Þær spjalla um það sem þær hafa prófað, hvað hefur virkað fyrir þær og hvernig þær huga helst að heilsunni. Í næsta þætti kemur sérfræðingur sem fer dýpra ofan í þetta mál.
Þátturinn er í boði:
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara við Áslaugu Kristjánsdóttur, kynlífs- og sambandsráðgjafa um kynlíf, ást, tengingu og raunveruleikann í parasamböndum. Þær kafa í hvernig streita, áföll og foreldrahlutverkið hafa áhrif á nánd og kynlíf og hvernig hægt er að byggja upp traust og tengingu á ný. Einlægt og opinskátt spjall um hvernig við nærum sambandið þegar lífið reynir á.
Þátturinn er í boði:
Í þessum þætti ræða Fanney og Sara um raunveruleikann í parasamböndum, flækjur, fegurð og áskoranir. Þær ræða um það hvernig daglegt líf og streita geta haft áhrif á sambandið ásamt því að skoða hvað veldur því að kynlöngun detti niður. Í lok þáttarins er farið í nokkrar djúsí hvort myndir þú spurningar. Í næsta þætti fá þær sérfræðing í settið sem segir þeim frá öllu sem tengist kynlífi í parasambandi!
Þátturinn er í boði:
Í þessum þætti fá Fanney og Sara til sín Valdísi Hrönn Berg, fjárhagsmarkþjálfa. Hún hefur sérhæft sig í fjármálum og rekstri heimilisins og hjálpar fólki að ná árangri, setja sér raunhæf markmið og að breyta viðhorfi sínu til peninga. Stútfullur þáttur af fróðleik og skyldu hlustun fyrir þau sem vilja taka fjármálin sín í gegn!
Þátturinn er í boði:
From the publisher's feed
Tvær á floti er hlaðvarp fyrir konur yfir þrítugt sem halda mörgum boltum á lofti en vilja gefa sér meira rými og tíma til að rækta sjálfa sig, finna jafnvægi og njóta lífsins.
Í…
Instagram: @tvaerafloti
TikTok: @tvaerafloti