Tveir á toppnum

Tveir á toppnum

Download on the App Store

Tveir á toppnum episodes

  • #51 - Forseta- og stjórnmálamyndir

    Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur Íslands er sérstakur gestur í þætti þar sem myndir og þættir um forseta og stjórnmál eru settar á oddinn í tilefni af forsetakosningum 2024. 

    1 hr 9 min
  • #50 - Snerting

    Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur er sérstakur gestur fimmtugasta þáttar Tveggja á toppnum og talar um nýjustu mynd sína, Snertingu, stíl sinn og kvikmyndagerð, samstarfið við Egil Ólafsson og augnablikið þegar hann fann yngri útgáfuna af persónu Egils í Pálma, syni sínum. Tíðindi af Jason Statham og ýmsum öðrum járnum sem hann er með í eldinum fljóta með.






    58 min
  • #49 - Shogun og sjónvarpssumarið mikla

    Sjónvarpssumarið framundan er ótrúlegt. Stiklur úr House of the Dragon og LOTR: Rings of Power sería 2. Aðeins aftur um eitt eista og Comfyball(s). Shogun og sagan þar að baki. Sérstakur gestur: Samúel Karl Ólason, blaðamaður.

    1 hr 2 min
  • #48 - Challengers og kynlíf í bíómyndum þá og nú

    Aðeins um eitt eista, ófyndin Seinfield, saga kvikmyndahúsa á Íslandk, forsetaframbjóðendur vinsamlegast hafið samband, tennis mynd Zendayu (nf. Zendaya). Þegar Oddur sagði Vilhjálmur Bretaprins meinti hann Karl (sorrí). Kynlíf í bíómyndum, the return? 

    57 min
  • #46 - Baby Reindeer

    Ugla Stefanía kynjafræðingur og baráttukona fyrir réttindum trans fólks og Thelma Rún van Erven sálfræðingur mæta og ræða umtöluðustu þætti dagsins. 

    1 hr 1 min
  • #45 - Fallout

    Óvænt bestu þættir ársins? Ræðum Fallout seríuna með þeim Walton Goggins, Ellu Purnell og okkar manni Aaron Clifton Moten. Sérstakur gestur: Stefán Pettersson.

    58 min
  • #44 - Civil War

    Civil War nýjasta kvikmynd Alex Garland með Kirsten Dunst ofl. rædd í þaula. Viktor Orri Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði greinir ástandið og líkurnar á að myndin verði að veruleika. 

    1 hr 9 min
  • #43 - Allt, alls staðar á sama augnabliki

    Stútfullur frjáls tími með prinsi sem svitnar ekki, Godzillu og King Kong í faðmlögum, ómætstæðilegu hasar rusli og Apamanni sem fer hamförum í geggjuðu aksjón dæmi með óvenju mikilli dýpt sem er sjaldséð í slíkum myndum. Að ógleymdum mjög áhugaverðum transvinkli.

    1 hr 12 min
  • #42 - 3 Body Problem

    Illugi Jökulsson mætir til leiks og kafar með okkur ofan í eðlisfræðina og kínverskan bakgrunn 3 Body Problem á Netflix. 

    1 hr 14 min

About Tveir á toppnum

From the publisher's feed

Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu.   „Tveir á…