
Sign up to save your podcasts
Or


Íbúðamarkaður fer kólnandi, eftirspurnin hefur róast og margt bendir til kröftugrar íbúðauppbyggingar. Vextir hafa hækkað, greiðslubyrði eykst og verðtryggð íbúðalán ryðja sér til rúms á ný.
Þetta er á meðal viðfangsefna nýjasta hlaðvarpsþáttarins. Una Jónsdóttir, forstöðumaður Hagfræðideildarinnar, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Jónas R. Stefánsson, sérfræðingur á Einstaklingssviði bankans, taka stöðuna á íbúðamarkaði.
Hagfræðideildin kynnti nýja þjóðhags- og verðbólguspá í Hörpu 19. október sl. og hlaðvarpið er að þessu sinni tileinkað henni.
Una Jónsdóttir, Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fara yfir það helsta úr spánni; hagvöxtinn, verðbólguna, ferðamenn, kaupmátt, óvissuna og fleira. Þau ræða það hvað hefur gerst á síðustu mánuðum og hvernig má búast við að hagkerfið þróist á næstu árum.
Seðlabankinn kynnti í gær níundu stýrivaxtahækkunina í röð frá því í maí á síðasta ári. Stýrivextir hækka um 0,25% og standa nú í 5,75%. Hvernig slær stýrivaxtahækkun á verðbólgu, hvenær verður hægt að slaka á taumhaldinu og af hverju skipta verðbólguvæntingar máli?
Þetta er á meðal þess sem Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingar hjá Landsbankanum, ræða í nýjum hlaðvarpsþætti. Þau koma líka inn á kaupmáttarrýrnun í aðdraganda kjaraviðræðna og þróun á íbúðamarkaði. Þá horfa þau út í heim og tala um verðbólgu og vaxtaákvarðanir erlendis og fjaðrafok í Bretlandi eftir að nýr forsætisráðherra boðaði mestu skattalækkanir í 50 ár.
Það er ekki lengur nóg fyrir fjármálafyrirtæki að huga eingöngu að fjárhagslegum þáttum og birta aðeins upplýsingar um fjárhagslega þætti. Samfélagið ætlast til þess að þau hafi jákvæð samfélagsleg áhrif og þessi þáttur í upplýsingagjöfinni er ekki síður mikilvægur að mati Tjeerd Krumpelman alþjóðasviðsstjóra í sjálfbærni hjá hollenska bankanum ABN AMRO sem er gestur hlaðvarpsins.
Tjeerd annast m.a. sjálfbærniráðgjöf hjá ABN AMRO sem er í fararbroddi fjármálafyrirtækja í sjálfbærni og hefur verið leiðandi í að meta áhrif af lánum og fjárfestingum bankans (e. impact assessment). Þannig geti bankinn í senn unnið að sjálfbærni og minnkað áhættu til langs tíma.
Hann ræðir við Aðalheiði Snæbjarnardóttur, sjálfbærnistjóra Landsbankans og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjá bankanum.
Verðbólgan er erfið viðureignar. Seðlabankar heims hækka vexti og víða er hætta á samdrætti. Við fengum til okkar góðan gest, James Ashley frá eignastýringu Goldman Sachs og ræddum við hann um horfur á markaði og efnahagsmálin í alþjóðlegu samhengi.
Ashley er forstöðumaður stefnumála og ráðgjafalausna fyrir Evrópu, Miðausturlönd, Afríku og Asíu hjá eignastýringu Goldman Sachs. Hann ræðir við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfæðudeildar og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjà bankanum.
Hvað þýðir það að stýrivextir hækki og hvaða áhrif hefur það á fólkið í landinu? Hvernig hafa vaxtahækkanir áhrif á verðbólgu og af hverju fer kaupmáttur lækkandi? Hvernig er staðan í löndunum í kringum okkur og hver er reynslan af því að lækka vexti í mikilli verðbólgu?
Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason, hagfræðingar hjá Landsbankanum, við Rún Ingvarsdóttur sérfræðing á samfélagssviði bankans, um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, vinnumarkaðinn, verðbólguhorfur og þróun efnhagslífsins.
Í hlaðvarpinu ræðum við um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Almennt má segja að útlitið sé bjart og gert er ráð fyrir 5,1% hagvexti í ár sem er drifinn áfram af fjölgun ferðamanna. Búist er við metfjölda ferðamanna í lok spátímabilsins. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn muni bregðast við meiri og þrálátari verðbólgu með því að hækka vexti verulega, áður en hægt verður að lækka vexti á nýjan leik. Það flækir stöðuna talsvert að kjarasamningar eru lausir, á sama tíma og verðbólgudraugurinn herjar á landann.
Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur á Samfélagssviði hjá bankanum, um efnahagsmál og þróunina á fjármálamörkuðum.
Í hlaðvarpinu ræðum við um þróunina á fasteignamarkaði og íbúðauppbyggingu á tímum mikilla verðhækkana. Markaðurinn kallar á hagkvæmara og sjálfbærara húsnæði, hvatinn til uppbyggingar hefur sjaldan verið meiri en hvað gerist ef að eftirspurnin hættir skyndilega? Áhrifin af hækkandi húsnæðisverði og óvissa úti í heimi veldur hárri verðbólgu, vextir hækka, og er til nægt húsnæði fyrir aukinn fólksflutning?
Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur bankans og sérfræðingur í fasteignamarkaðinum, og Dóra Gunnarsdóttir viðskiptastjóri Mannvirkjafjármögnunar, ræða málin ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum.
Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hækkandi fasteignaverð og fleira. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum og Una Jónsdóttir forstöðumaður Hagfræðideildar taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.