Í þessum þætti spjalla Stefanía og Berglind (Viðju stöllur) um hvað eru bakgrunnsáhrifavaldar, helstu dæmi og afhverju það skiptir máli að hafa þá í huga.
Í þessum þætti ræðum við um virk samskipti, hvað er þýðir það og hvernig getum við notað virk samskipti sem uppalendur. Viðmælandi þáttarins er Arndís Þorsteinsdóttir sálfræðingur.
Í þessum þætti eru skoðaðar þær tilfinningar sem fylgja því að vera uppalandi ásamt því að fara yfir hvernig þessar tilfinningar hafa áhrif á viðbrögð okkar við hegðun barna. Viðmælandi þáttarins er Erla Margrét sálfræðingur.
Í þessum þætti ræðum við um hvað er hvatning, hvað felst í hvatningu og hvort öll hvanting sé eins. Við fengum til okkar hana Eddu Vikar sálfræðing í spjall.
Í 5.þætti er haldið áfram umfjöllunni um að vera samkvæmur sjálfum sér í uppeldinu. Við spjöllum meðal annars um gildrur eins og loforð og hótanir í uppeldinu og fengum til okkar hana Margréti Sigarmdsóttir, sálfræðing og lektor í Háskóla Íslands til að spjalla um þetta við okkur.
Í þessum þætti ætlum við að halda áfram á svipuðum nótum og rætt var um í síðasta þætti - þar að segja um áhrifaþætti hegðunar. Einnig er farið nánar í það hvernig er hægt að átta sig á heima eða í skólanum hvað hefur áhrif á hegðun barnsins.
Í þessum þætti eru áhrifaþættir hegðunar skoðaðir ásamt því að farið verður yfir gagnleg ráð til að breyta eða bæta hegðun. Viðmælandi þáttarins er Berglind Sveinbjörnsdóttir, alferlisfræðingur,
Í 1.þættinum verður fjallað um almennt um hegðun og væntingar uppalenda til hegðunar. Viðmælandi þáttarins er Bergljót Gyða sálfræðingur.
13 min
About Uppeldisspjallið
From the publisher's feed
“Uppeldisspjallið” er hlaðvarp þar sem fjallað er um uppeldi barna á léttan og gagnlegan hátt. Við munum bæði spjalla saman sjálfar og fá til okkar ýmsa gesti í spjall.