Uppsveitakastið

Uppsveitakastið

Download on the App Store

All Uppsveitakastið episodes

  • Þingmaður sunnlendinga - Ásta Lóa Þórsdóttir

    Þingmenn sunnlendinga hafa fengið boð um að koma í Uppsveitakastið. Fyrst til að mæta var Ásta Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins og fyrsti þingmaður suðurlands. 

    Ásta Lóa hafði frá mörgu skemmtilegu að segja um það sem hefur á daga hennar drifið. Uppvöxturinn í Reykjavík og síðan Mosfellssveit, Kvennaskólinn, Suður- Afríka og margt fleira. Í eftirköstum hrunsins tók hún síðan upp nýtt hlutverk þegar hún fór að berjast fyrir heimilin gegn bankakerfinu. Þaðan lá leið hennar síðan á Alþingi fyrir Flokk fólksins þar sem hugsjónirnar um bættan hag heimilanna halda áfram að eiga hug hennar.

    1 hr 14 min
  • Tveir á tali - um allt og ekki neitt

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, ræddu um veturinn framundan og hvað er í boði. Það bendir allt til þess að íþóttastarf verði mjög spennandi í öllum sveitarfélögum, og svo eru það klúbbar og allt. 

    1 hr
  • Lilja Zohra

    Í Reykholti býr Lilja Zohra ásamt manni sínum. Lilja er þúsundþjalasmiður, en þau reka lítið fyrirtæki þar sem þau framleiða út við ýmislegt skorið út með lazer. En það er ekki nóg. Lilja heldur úti tveim hlaðvarpsþáttum í félagi við aðra og er auk þess í fullu starfi sem rekstrarstjóri. Svo finnur hún líka tíma fyrir áhugamálin í viðbót við allt þetta. Það var virkilega gaman að fá hana í heimsókn.

    1 hr 2 min
  • Ragnheiður Georgsdóttir og Farmers Bistro

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, skruppu í Farmers Bistro til að fá sér að borða og fræðast um leið um Ragnheiði Georgsdóttur, Farmers Bistro, Flúðasveppi, garðyrkjustöðina, hrossarækt o.fl. Það er skemmst frá að segja að við forum þaðan mettir og glaðir og heilmikið fróðir um sveppi og sveppasúpu. 

    58 min
  • Axel Á. Njarðvík

    Eftir sumarfrí Uppsveitakastsins lá leiðin í Eystra-Geldingaholt þar sem sr. Axel Á. Njarðvík tók á móti mér og bauð mér til stofu í einu af elstu húsum sveitarinnar. Við tók skemmtilegt ferðalag um sögu hússins og um leið sögu sveitarinnar. Axel hafði frá mörgu að segja, uppvöxtur í Reykjavík, vinnu, nám og svo flutningurinn í sveitina þar sem við tóku ný verkefni. Axel er umhugað um náttúruna og sveitina og tíminn flaug þegar hann sagði frá.

    1 hr
  • Mikki og Filip á Mika

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, brugðu undir sig betri fætinum og fóru á hið margrómaða Mika Restaurant í Reykholti. Þar hittum við fyrir Michał Jerzy Józefik eða Mikka og Filip Jan Józefik. Mikki stofnaði Mika ásamt konu sinni Bożenu Józefik og nú er sonur þeirra kominn á fullt í reksturinn. Þau hjónin fluttu frá Póllandi og langaði bara ekki aftur til Póllands og í þættinum segir Mikki frá Póllandi, flutningnum, vinnunni og fjölskyldunni. Áhættan var tekin með að stofna Mika sem nú er öflugt veitingahús með fjölda starfsfólks og hefur fest sig vel í sessi í Uppsveitunum. Filip er meistari í matreiðslu og framreiðslu og er með pabba sínum á fullu í eldhúsinu og töfrar þar fram frábæra rétti. 
    Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify.

    1 hr 6 min
  • Ásta Stefánsdóttir - sveitarstjóri Bláskógabyggðar

    Ásta Stefánsdóttir kom í heimsókn og hafði frá mörgu að segja. Sem ung stúlka stundaði hún frekar óhefbundnar veiðar með ömmu sinni, draumurinn um að verða kennari. vinnan hjá sýslumanni og síðar Árborg og eins kíkti dómarinn Ásta í heimsókn. Bláskógabyggð á hins vegar hug hennar allan síðasliðin ár, uppbyggingin, framkvæmdirnar og framtíðin. Það var virkilega gaman að hafa Ástu í spjalli.

    Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify og eins á heimasíðu þáttarins.

    48 min
  • Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir

    Nú duttu Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, heldur betur í lukkupottinn. Til okkar kom Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir og hafði heldur betur frá mörgu að segja. Uppvöxtur í Reykjavík, ferðalög, flutningur í Gnúpverjahrepp, hestamennska, reiðskólinn, búskapurinn og ég veit ekki hvað og hvað. 

    Hægt er að nálgast þáttinn á Spotify og eins á heimasíðu þáttarins

    1 hr 4 min
  • Hrunamannahreppur 1150 ára og Gullspretturinn

    Tveir á tali, þeir Jónas Yngvi og Árni Þór, fengu góða gesti í þáttinn. Fyrst kom Esther Guðjónsdóttir, fyrir hönd afmælisnefndar og kynnti fyrir okkur dagskrá afmælishátíðarinnar sem verður mjög viðamikil. Allir hvattir til að mæta. Eins kom Gríma Guðmundsdóttir og kynnti Gullsprettinn sem er utanvegahlaup í kring um Laugarvatn. Tveir spennandi viðburðir og tveir skemmtilegir viðmælendur.

    1 hr 7 min
  • Bessi Hressi - Bergsveinn Theódórsson

    Uppsveitakastið brá undir sig betri fætinum og heimsótti athafnamanninn og skemmtikraftinn Bessa á Flúðum. Bessi hefur heldur betur fundið sitt hlutverk í lífinu en það er að sjá til þess að allir geti skemmt sér og notið lífsins. Það eru ófáar skemmtanirnar sem hann hefur boðið uppá með það að markmiði að fólk komi saman og njóti samveru án þess að það kosti. Þegar þessi þáttur er að koma út er Bessi að opna Grundina að nýju en einhvern veginn finnur hann tíma til þess ásamt öllu sem hann er að gera. Sjálfur segir hann að þetta takist allt með hjálp fjölskyldunnar og góðra vina. Heyrn er sögu ríkari.

    1 hr 12 min