Er kvikmyndatónlist öðruvísi en önnur tónlist, hvernig þá? Hver eru frægustu kvikmyndatónskáldin? Ætli við þekkjum tónlistina þeirra?
Í þættinum lærum við hvernig við semjum kvikmyndatónlist, hvernig hægt er að nota hana til að virkja tilfinningar áhorfenda, minnumst Jóhanns Jóhannsonar sem var eitt stærsta íslenska kvikmyndatónskáld heimsins og heyrum alls kyns mismunandi stef úr kvikmyndum.
Við kíkjum einnig í heimsókn í Tónskóla Sigursveins þar sem nemendur unnu hörðum höndum að því að undirbúa kvikmyndatónlistartónleika en þau hafa verið að vinna með það þema í vetur. Píanónemendur skólans spila ótrúlega mörg mismunandi brot úr kvikmyndum fyrir okkur, fjórhent á píanó.
Sérfræðingur þáttarins: Einar Sverrir Tryggvason, kvikmyndatónskáld
Viðmælendur: Píanónemendur úr Tónskóla Sigursveins
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir