Fuglar í tónlist, fuglar í ljóðum, fuglar í sögum, fuglar í kvikmyndum, fuglar allsstaðar!
Í þessum þætti og þeim næsta finnum við allskonar fugla í sögunni, menningu og listum. Við heyrum fuglasögur og ljóð, hlustum á fuglatónlist og athugum hvort við þekkjum fuglana á hljóðinu. Við hittum líka Bebbu Margréti, Hrafn og Hauk en þau segja okkur frá uppáhaldsfuglunum sínum.
Sögur og ljóð:
Eldfuglinn og Ívan prins - rússneskt ævintýri
Sagan um landvætt Norðurlands
Fuglalíf úr ljóðabókinni Fuglaþrugl og Naflakrafl eftir Þórarinn Eldjárn
Sagan um Íkarus og vaxvængina
Sagan af Dimmalimm eftir Mugg
Ljóti andarunginn eftir H.C.Andersen
Lesarar:
Gunnar Helgason
Jóhannes Ólafsson
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Vissir þú að eldfuglinn á að vera með töfrafjaðrir? Hefur þú heyrt um andarunga sem verður að svani? Hvaða íslensku nöfn eru fuglanöfn?