Í dag fjöllum við um nýjasta ævintýrið um músíkmúsina Maxímús Músíkús, en þá fer hann á fjöll ásamt tveimur erlendum músíkmúsum sem spretta uppúr tösku erlends hljómsveitarstjóra. Í þættinum lítum við inn í Hörpu en þann sjötta október síðastliðinn var ævintýrið frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands og sögumanninum Unni Eggertsdóttur. Við heyrum svo í nokkrum áheyrendum eftir sýninguna og hlustum á brot úr sögunni.
Viðmælendur:
Unnur Eggertsdóttir, leikkona og sögumaður
Hildur, 9 ára
Ágústa Eva Jónsdóttir, 5 ára
Elías Andri Grétarsson, 5 ára
Karitas Björg Erlingsdóttir, 10 ára
Steinar Stefánsson, 5 ára
Freyr Ingólfsson, 7 ára
Sævar Rafn Halldórsson, 7 ára
Oktavía 6 ára
Lesið efni:
Brot úr hljóðbókinni „Maxímús Músíkús fer á fjöll“. Lestur: Valur Freyr Einarsson.
Umsjón:
Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Jóhannes Ólafsson
Gestastjórnandi:
Anna Margrét Beck, 5 ára