Í þessum þætti fáum við til okkar fulltrúa úr þeim þremur atriðum sem skipuðu efstu sætin í Skrekk árið 2018.
Skrekkur er hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Reykjavíkur, sem fram fer ár hvert í Borgarleikhúsinu. Þau undirbúa metnaðarfull atriði útfrá eigin hugmyndum, oft með frumsömdum söng- og leiktextum, tónlist og dansatriðum - svo ekki sé minnst á búninga, sviðsmynd, förðun, hár og fleira.
Um hvað fjölluðu siguratriði Skrekks í ár? Hvernig er hægt að koma saman svona flóknum atriðum með þrjátíu unglingum? Skiptir máli að halda svona keppni?
Viðmælendur:
Rebekka Rán Guðnadóttir úr atriðinu Gott, betra, best (Árbæjarskóli)
Helga Harðardóttir úr atriðinu Komið að okkur (Langholtsskóli)
Steinunn Thalia Jónsdóttir úr atriðinu 1918 (Seljaskóli)
Umsjón:
Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Skrekksatriðin í fullri lengd er hægt að horfa á inni á www.ungruv.is.