Tónlistarstílasería Útvarps KrakkaRÚV. Rokk, rapp, klassík, jazz, popp og raftónlist...
Hvað er ópera? Afhverju syngja óperusöngvarar svona hátt? Eru óperur fyrir krakka? Geta óperusöngvarar í alvöru brotið glas með því að syngja? Hver er munurinn á leikriti og óperu?
Í þessum þætti fáum við svör við öllum þessum spurningum og kíkjum á ævintýraóperuna Hans og Grétu í Hörpu þar sem við hittum krakka sem syngja óperur og hlusta og horfa á þær.
Sérfræðingur þáttarins er Jón Svavar Jósefsson, óperusöngvari
Söngvarar úr sýningunni Hans og Gréta:
Ísak Eldar
Thor Ólafur
Arnaldur
Ingvar
Sigþór
Áhorfendur á sýningunni Hans og Gréta:
Guðrún, 7 ára
Emilía, 7 ára
Dagmar, 7 ára
Ólafur Harald, 9 ára
Efni
Upptökur frá frumsýningu Íslensku óperunnar á Hans og Grétu þann 26. nóvember 2018
Umsjón:
Ingibjörg Fríða Helgadóttir