Upptakturinn er orðinn að árvissum viðburði í upphafi Barnamenningarhátíðar, en þar eru veitt tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna og verk þeirra flutt af okkar færasta listafólki. Tólf verk voru valin inn í Upptaktinn 2018. Við ætlum að kynnast ungu tónskáldunum og verkum þeirra í sex þáttum og fylgja þeim frá innsendri hugmynd að lokatónleikum. Tónleikarnir fóru fram í Silfurbergi í Hörpu þriðjudaginn 17. apríl sl. Hljóðfæraleikar eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir á fiðlu, Herdís Anna Jónsdóttir á víólu, Bryndís Björgvinsdóttir á selló, Gunnlaugur Torfi Stefánsson á bassa, Grímur Helgason og Helga Björg Arnardóttir á klarinett, Kristján Hrannar Pálsson á píanó, Arnþór Snær Guðjónsson gítar, Sigurður Ingi Einarsson á slagverk og Bryndís Jakobsdóttir syngur.
Sjötti þáttur:
Jealous of the way eftir Daniellu Ásthildi Silva Chipa, Lilju Ósk Tryggvadóttur, Magneu Sif Ragnarsdóttur, Söndru Hlín Björnsdóttur og Þyrí Ágústsdóttur, 11 og 12 ára.
Shperes eftir Benedikt Gylfason, 15 ára.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir