Upptakturinn er orðinn að árvissum viðburði í upphafi Barnamenningarhátíðar, en þar eru veitt tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna og verk þeirra flutt af okkar færasta listafólki. Tólf verk voru valin inn í Upptaktinn 2018. Við ætlum að kynnast ungu tónskáldunum og verkum þeirra í sex þáttum og fylgja þeim frá innsendri hugmynd að lokatónleikum. Tónleikarnir fóru fram í Silfurbergi í Hörpu þriðjudaginn 17. apríl sl. Hljóðfæraleikar eru Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir á fiðlu, Herdís Anna Jónsdóttir á víólu, Bryndís Björgvinsdóttir á selló, Gunnlaugur Torfi Stefánsson á bassa, Grímur Helgason og Helga Björg Arnardóttir á klarinett, Kristján Hrannar Pálsson á píanó, Arnþór Snær Guðjónsson gítar, Sigurður Ingi Einarsson á slagverk, Bryndís Jakobsdóttir syngur og Ingibjörg Fríða Helgadóttir syngur bakrödd.
Annar þáttur:
One Way Street eftir Ilmi Maríu Arnarsdóttur, 15 ára.
Stormur eftir Iðunni Björgu Arnaldsdóttur og Nínu Solveigu Andersen, 15 ára.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir