Veturinn er ein af árstíðunum fjórum. Eins og náttúran breytist milli árstíðanna þá breytist menningin okkar líka, við förum til dæmis ekki í sólbað á veturna eða grillum mikið, það er bara hægt að tína villt bláber á haustin, jólin koma um vetur og Eurovision á vorin!
Í þessum þætti fáum við tvær skíðastelpur til að segja okkur frá þeirri vetraríþrótt, förum í snjóleik, Sævar segir okkur hvers vegna Vetrarbrautin heitir Vetrarbraut, við hlustum á vetrartónlist og heyrum um Vetrarólympíuleikana sem haldnir verða í febrúar á þessu ári.
Viðmælendur:
María Ólöf Jóhannsdóttir, 12 ára
Sara Mjöll Jóhannsdóttir, 10 ára
Forskólabörn úr Tónlistarskóla Grafarvogs
Náttúruvísindahornið: Sævar Helgi Bragason
Snjóorðasérfræðingur: Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV
Fyrri þáttur af tveimur
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir