Útvarp Palestína

Útvarp Palestína

By Sara Stef Hildardóttir, Margrét Kristín BlöndalNewsPolitics
Download on the App Store

Útvarp Palestína episodes

  • Útvarp Palestína - 7. þáttur - Sniðgangarar
    Fimmtudagur 12. september
    Útvarp Palestína - 7. þáttur - Sniðgangarar
    Í sjöunda þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Hólmfríði Jónsdóttir og Ingólf Gíslason sem hafa látið til sín taka í alþjóðlegu sniðgönguhreyfingu Palestínufólks sem kallast Boycott, Divestment and Sanctions eða BDS. Hólmfríður átti þátt í að virkja hreyfinguna hérlendis og er ein skipuleggjenda Sniðgöngunnar 2024 næsta laugardag, 14. September. Ingólfur er þar aðalræðumaður að göngu lokinni en mörg okkar þekkja til skrifa hans á visir. is undanfarna mánuði þar sem hann hefur fjallað um áhrif sniðgöngu en líka gagnrýnt harðlega bæði stjórnvöld og háskólasamfélagið fyrir afstöðu- og aðgerðaleysi í málefnum Palestínu.
    1 hr 3 min
  • Útvarp Palestína - 6. þáttur - Háskólanemar fyrir Palestínu
    Fimmtudagur 5. september
    Útvarp Palestína - 6. þáttur - Háskólanemar fyrir Palestínu
    Í sjötta þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Daníel Guðjón Andrason sem er hluti af baráttuhópnum Stúdentar fyrir Palestínu sem skipulögðu m.a. aðgerðir á lóð Háskóla Íslands sl. vor og svo Lísu Margréti Gunnarsdóttur, formann og GuðnaThorlacius, varaformann Landsamtaka íslenskra stúdenta en samtökin fordæmdu opinberlega stríðsglæpi Ísraela gagnvart Palestínu í nóvember sl.
    51 min
  • Útvarp Palestína - 5. þáttur: Steinunn Gunnlaugsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal
    Fimmtudagur 29. ágúst
    Útvarp Palestína - 5. þáttur
    Steinunn Gunnlaugsdóttir og Þórir Jónsson Hraundal
    Í fimmta þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Steinunni Gunnlaugsdóttur, aktivista og myndlistarkonu og Þóri Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræði við Háskóla Íslands en þau hafa bæði tekið þátt í að berjast fyrir málstað Palestínu, Steinunn með aðgerðum beint gegn valdinu en Þórir með því að beita sér innan háskólans.
    58 min
  • Útvarp Palestína - 4. þáttur - María og Valgerður Pálma og Þorgerðardætur
    Fimmtudagur 22. ágúst
    Útvarp Palestína, 4. þáttur
    Í fjórða þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín systurnar Katrínu Pálmadóttir Þorgerðardóttir, doktorsnema í heimspeki sem starfar með baráttuhópnum Háskólafólk fyrir Palestínu á Íslandi og Valgerði Pálmadóttur Þorgerðardóttur, nýdoktor og hugmyndasagnfræðing við Sagnfræðistofnun HÍ. Enginn háskóli á Íslandi hefur fordæmt þjóðarmorðið á Palestínumönnum á meðan samstarfi við Rússa var umsvifalaust slitið í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Ein alvarlegasta birtingarmynd þjóðarmorðsins afhjúpast einnig í því sem kallast menntamorgð (e. scholasticide) en það gerist þegar sögu, menningu og vísindum þjóðar er kerfisbundið eytt. Allir háskólar bókasöfn eða skjalasöfn hafa verið spengd á Gaza.
    1 hr
  • Útvarp Palestína - 3. þáttur: Katrín Harðar og Hjálmtýr Heiðdal
    Fimmtudagur 15. ágúst
    3. þáttur - Katrín Harðar og Hjálmtýr Heiðdal
    Í þriðja þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Katrínu Harðardóttur, aðgerðarsinna og Hjálmtý Heiðdal, formann félagsins Ísland-Palestína sem hafa, hvor á sinn hátt, veitt stjórnvöldum viðnám og gert kröfu um að þau beiti sér skv. þeim alþjóðasáttmálum sem Ísland er aðili að. Þau hafa líka skipulagt mótmælagöngur og sniðgönguherferðir þar sem almenningi er gert kleyft að tjá óánægju sína en frá 7. október hefur orðið ljóst að meirihluti íslensku þjóðarinnar stendur með Palestínu.
    51 min
  • Útvarp Palestína - 2. þáttur: Helga Ögmundardóttir
    Útvarp Palestína, 8. ágúst
    2. þáttur: Helga Ögmundardóttir
    Í ōðrum þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara Stef til sín Helgu Ōgmundardóttur sem hefur verið öflug í frelsisbaráttu Palestínu allt frá blautu barnsbeini.
    Í þættinum ræða þær baráttuna að einhverju leyti út frá mannfræðilegu sjónarhorni en Helga er mannfræðingur og dósent við Háskóla Íslands.
    47 min
  • Útvarp Palestína - 1. þáttur - Sólveig Hauks og María Lilja
    Fimmtudagur, 25. júlí
    Útvarp Palestína - 1. þáttur
    Nýr þáttur í umsjón Söru Stef Hildar og Möggu Stínu. Í fyrsta þætti Útvarps Palestínu fá Magga Stína og Sara til sín aðgerðarsinnana, mótmælendurna og samstöðukonurnar Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp og Sólveigu Hauksdóttur sem báðar hafa bæði langa reynslu af andófi og mótlæti en líka bjartsýni og vonarglætum.
    57 min

About Útvarp Palestína

From the publisher's feed

Þáttur um málefni Palestínu í umsjón Söru Stef Hildar og Möggu Stínu.