Veröld sem er

Veröld sem er

By EvrópustraumarNewsPolitics
Download on the App Store

Veröld sem er episodes

  • EES-samningurinn: Tilurð, virkni og áskoranir í umrótinu

    Hvernig varð EES-samningurinn til og hvernig virkar hann í reynd? Hallgrímur ræðir við Hjalta Geir Erlendsson lögmann um sögu EFTA, Evrópusambandsins og EES, fjórfrelsið, tveggja stoða kerfið og aðkomu Íslands að mótun evrópulöggjafar. Einnig er fjallað um þær áskoranir sem EES-samstarfið stendur frammi fyrir þegar Evrópusambandið þróast, alþjóðaviðskipti breytast og mörkin milli innri markaðar og tollamála verða sífellt óskýrari.


    [Í upphaflegri útgáfu skarast hljóð í um 60 sekúndur á 10. mínútu en hefur verið lagfært.]

    48 min
  • ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja

    Skýrsla Evrópustrauma um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja er komin út.

    Tollamálin, gjaldmiðlamálin og áherslubreytingar ESB eru til umfjöllunar í samtali við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda (FA).

    Þátturinn er sendur út á samtengdum rásum Veraldar sem er og Kaffikróksins, hlaðvarps (FA).

    Skýrsluna , sem unnin var fyrir FA og Íslensk-evrópska verslunarráðið, ásamt kynningarglærum má finna á vef Evrópustrauma og atvinnurekendur.is


    29 min
  • Hvað myndi aðild að ESB þýða fyrir íslenskan sjávarútveg - Samtal við Hjálmar Vilhjálmsson

    Hjálmar Vilhjálmsson er yfirmaður uppsjávarsviðs og aðstoðarmaður forstjóra hjá Brim, einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Áður starfaði Hjálmar í um tuttugu ár sem forstjóri eistnesku útgerðarinnar Reyktal, auk þess sem hann var talsmaður og nefndarmaður í eistneskum sjávarútvegssamtökum. 

    Í þættinum ræðir Hjálmar hvað aðild Íslands að ESB gæti þýtt fyrir íslenskan sjávarútveg. Til umræðu er sameiginlega sjávarútvegsstefna ESB, fiskveiðistjórnun, ákvörðunarvald við kvótaúthlutun, veiðar úr deilistofnum, Haag-ákvæðið, kvótahopp, íslenskar sérreglur um erlent eignarhald, samkeppnismál, möguleg tækifæri og ógnir aðildar fyrir sjávarútveginn, rekstrarskilyrði og hvað Ísland þyrfti að semja um í aðildarviðræðum um inngöngu í Evrópusambandið.

    1 hr 4 min
  • Smáríki og stóra borðið - Samtal við danskan Evrópuþingmann

    Stine Bosse er danskur Evrópuþingmaður frjálslynda flokkahópsins Renew Europe. Í viðtali ræðir hún viðhorf Dana til Evrópusambandsins og áhrif Grænlandsmálsins, áhrif sín í Brussel, hvort minni ríki hafi einhver völd og þau ráð sem hún gefur íslenskum kjósendum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.


    00:00 Inngangur og umfjöllun um viðtalið við Stine Bosse.

    06:40 Viðtalið í heild

    22 min
  • „Að hafa áhrif er að tilheyra“ - Samtal við finnskan Evrópuþingmann og yfirferð á Evrópþinginu

    Finnski alþjóðastjórnmálaprófessorinn Mika Aaltola situr á Evrópuþinginu fyrir flokkinn European People's Party (EPP). Í viðtalinu ræðir hann um sín áhrif í Brussel sem fulltrúi Finnlands, stöðu Evrópuþingsins í dag, fullveldismál, áhuga Finna á pólitíkinni í Brussel, og þau ráð sem hann getur veitt Íslendingum nú þegar þeir standa frammi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna. Í þættinum er einnig fjallað um þá flokka sem eiga sæti á Evrópuþinginu og hvar íslenskir stjórnmálaflokkar myndu eiga þar heimili.


    00:00 Umfjöllun um Evrópuflokkana og hvar íslenskir stjórnmálaflokkar ættu heimili á Evrópuþinginu.

    11:14 Um Mika Aaltola og viðtal við hann í heild.

    42 min
  • ESB-atkvæðagreiðsla í ágúst, tollar, Íran og Epstein

    Hallgrímur, Hjalti Geir Erlendsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ræða um það sem efst er á baugi. Frétt Politico um að ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram síðsumars, tollar Trumps í ljósi dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna um ólögmæti frelsis-tollana, stigmögnun í Íran, Epstein-skjölin, handtaka Peter Mandelson og fingraför hans á setningu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 eru til umfjöllunar.


    00:00 Frétt Politico um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst

    10:35 Tollar Trumps

    22:07 Íran

    32:20 Epstein, Mandelson og Íslandstengingar

    45 min
  • „Ég breyttist“ - Samtal við Þórdísi Kolbrúnu um Úkraínu, NATO, ESB-aðild og óvissutímana

    Þingmaðurinn og fyrrum utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ræðir stöðu mála í Úkraínu, hvernig innrás Rússa fyrir fjórum árum hefur haft áhrif á hana sem manneskju, um þýðingu þess fyrir Ísland að vera bandamaður, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna, og Evrópusambandsumræðuna á Íslandi.


    www.evropustraumar.is


    00:00 Inngangur

    01:26 Þórdís Kolbrún breyttist og mun aldrei breytast til baka

    05:12 Stuðningur almennings við Úkraínu

    09:57 Vopnuð átök hefðu áhrif á Ísland

    14:45 Ræður JD Vance og Rubio í Munchen

    20:00 Pallborðsumræður með H. Clinton, Navalnia og Haddad

    21:44 Friðarviðræður við Rússa og framtíð Úkraínu

    27:02 Staða Nato og viðbrögð Evrópu við breyttri stefnu BNA

    29:28 Hvernig geta Evrópuleiðtogar talað um og við Bandaríkjastjórn

    38:00 Þátttaka Íslands á alþjóðavettvangi - hvað gerist bakvið tjöldin?

    45:23 ESB-umræðan á Íslandi: Ekki bara já eða nei

    1 hr 1 min
  • NATO, ESB og alþjóðamálin með Degi B. Eggertssyni

    Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, er fyrsti gestur í Veröld sem er, hlaðvarpsþáttum um alþjóðamálin og stöðu Íslands. Dagur ræðir við Hallgrím um NATO og stöðu þess í dag, stefnu Bandaríkjanna undir Trump og áhrifin í Evrópu, Evrópusambandsmál og valkosti Íslands á víðsjárverðum tímum.


    Evrópustraumar er sjálfstæð hugveita um Evrópumál. Greinar, útgefið efni og skráning á póstlista má nálgast á evropustraumar.is.


    00:00 Kynning

    01:42 NATO, NATO-þingið og heimsmálin

    35:50 Evrópusambandsumræðan



    59 min

About Veröld sem er

From the publisher's feed

Í Veröld sem er, hlaðvarpi Evrópustrauma hugveitu, er fjallað um alþjóðamál, Evrópumál og hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Með gestum af öllu tagi, sérfræðingum, stjórnmálafólki og álitsgjöfum er…