Ritstjórar www.skak.is, þeir Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhanesson FIDE meistari kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Tilgangurinn var að fara yfir Reykjavíkurskákmótið sem hefst 15. mars næstkomandi. Uppselt er á mótið en skráðir keppendur eru 429 frá 49 þjóðlöndum. Í ár eru 60 ár liðin frá því að fyrsta Reykjavíkurskákmótið fór fram í Lídó árið 1964. Þá var mótið lokað, eða svokallað boðsmót, og voru keppendur 14 talsins. Sigurvegari mótsins var fyrrverandi heimsmeistari í skák, sjálfur töframaðurinn frá Riga, Mikhail Tal en hann hlaut 12,5 vinning í 13 skákum. Þáverandi heimsmeistari kvenna, Nona Gaprindashvili, var einnig á meðal keppenda.
Eins og áður hjá þeim félögum var farið um víðan völl í spjalli um skákina, sagðar skákfréttir frá viðburðum hér heima og erlendis, spáð í spilin um hver verður næsti heimsmeistari í skák, spilað hljóðbrot þar sem Magnus Carlsen syngur rapplag sem kallast Hvem Stjal Spenolen eða Hver stal andlitskreminu með rapparanum Mr. Pimp-Lotion og margt fleira. Sjá slóð: Magnus Carlsen is Singing His Rap Song!
Stóra spurningin sem ekki náðist að svara í þættinum er: Verður Hans Moke Niemann umdeildasti skákmaður heims með á Reykjavíkurskákmótinu 2024? Það kemur í ljós í kvöld eða á morgun en á meðan við bíðum...Chess speaks for itself!