Ríkharður Sveinsson formaður Taflfélags Reykjavíkur og alþjóðlegur skákdómari settist Við skákborðið að þessu sinni. Ríkharður sagði frá stofnun taflfélagsins og starfsemi þess en TR er elsta og eitt virkasta skákfélag landsins, stofnað laugardaginn 6. október 1900 og því 123 ára.
Af vefsíðu Taflfélags Reykjavíkur:
Upphafið að stofnun Taflfélags Reykjavíkur kom frá Danmörku eins og svo margt annað gott á þessum tíma. Þar hafði Pétur Zóphóníasson stundað nám og kynnst starfsemi danskra taflfélaga. Hann sneri nú heim sumarið 1900 og ákvað að láta á reyna hvort hægt væri að stofna taflfélag í Reykjavík. Pétur Zóphóníasson hóf nú að smala saman skákáhugamönnum í Reykjavík og leitað fyrst til móðurbróður síns, Sturlu Jónssonar kaupmanns, sem var ágætur skákmaður. Fleiri bættust í hópinn, m.a. Sigurður Jónsson fangavörður en skák var nokkuð tefld í fjölskyldu hans.
Að lokum var ákveðið að láta „tafllista” liggja frammi á vel völdum stöðum í borginni. Nú skyldi reyna á hvort áhugi væri fyrir stofnun taflfélags í Reykjavík. Hinn 2. október 1900 rituðu forsvarsmennirnir þrír, Pétur, Sigurður og Sturla, auglýsingu og sendu í blöðin. Þar var stofnun T.R. auglýst og áhugasamir menn beðnir að mæta til skráningar.
Stofnfundur T.R. fór fram 6. október 1900 í „húsi Jóns Sveinssonar” trésmiðs í Pósthússtræti 14b á horni Kirkjustrætis. Þar rak dóttir Sigurðar Jónssonar fangavarðar, sem varð fyrsti formaður félagsins, kaffiteríu og leyfði skákmönnum að nota aðstöðuna til skákiðkunar.
Stofnfélagar Taflfélagsins voru 29 talsins, flestir úr „efri millistétt” en þeir voru:
- Sigurður Jónsson fangavörður
- Pétur Zóphóníansson gagnfræðingur
- Sturla Jónsson kaupmaður
- Pétur Pétursson bæjargjaldkeri
- Friðrik Jónsson kaupmaður
- Einar Benediktsson athafnamaður og skáld
- Björn M. Ólsen rektor
- Indriði Einarsson assessor og skáld
- Jakob Jónsson verslunarstjóri
- Ingvar Pálsson kaupmaður
- Helgi Helgason verslunarstjóri
- Júlíus Guðmundsson kaupmaður
- Pétur Bogason læknir
- Skúli Bogason læknir
- Sturla Guðmundsson cand. phil.
- Sigurður Guðmundsson prestur
- Jens Waage bankastjóri
- Ágúst Sigurðsson prentari
- Pétur G. Guðmundsson prentiðnmaður
- Ólafur Björnsson ritstjóri
- Sigurjón Jónsson framkvæmdastjóri
- Þórður Sveinsson læknir
- Baldur Sveinsson blaðamaður
- Magnús Magnússon skipstjóri
- Ludvig Andersen heildsali
- og fjórir aðrir
Fyrsta stjórn félagsins var skipuð eftirfarandi:
- Sigurður Jónsson formaður
- Sturla Jónsson gjaldkeri
- Pétur Zóphóníasson ritari