Viðtal við Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra og varaformann Framsóknarflokksins um stöðuna í hagkerfinu hér heima og erlendis vegna kórónufaraldursins.
Matvælaöryggi Íslands, skyr- og mjólkurframleiðsla - viðtal við Ara Edwald forstjóra MS. Vandi hótelanna á Íslandi, viðtal við Kristófer Oliversson og hremmingar á alþjóðlegum álmarkaði. Rætt um allt þetta í Viðskiptapúlsi dagsins.
Staða heimshagkerfisins og íslensks atvinnulífs rætt í skugga kórónufaraldursins. Farið yfir ásakanir fyrrum stjórnarmanna í WOW gagnvart fréttastjóra viðskipta á Morgunblaðinu og það einnig afhjúpað hvort blaðamenn Morgunblaðsins hafi nýtt sér heimsendingu matvöruverslana á síðustu dögum.
Aukaþáttur af Viðskiptapúlsinum vegna hræringa í íslensku efnahagslífi. Rætt við dr. Gylfa Magnússon, hagfræðing og fyrrum ráðherra og Stein Loga Björnsson, forstjóra Blue Bird Nordic og fyrrum framkvæmdastjóra hjá Icelandair.
Seðlabankinn lækkar vextir um 0,5%, flutningakerfi heimsins riðlast vegna minnkandi flugumferðar í kjölfar útbreiðslu kórónuveirunnar og Nina Jonsson er sest í stjórn Icelandair. Hún hefur keypt og selt yfir 1.000 farþegaþotur á ferlinum.
Útbreiðsla kórónuveirunnar hefur mikil áhrif á hagkerfi heimsins. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri tjáir sig við ViðskiptaMoggann. Stella Artois á 31% afslætti í Vínbúðunum og Þorvaldur Gissurarson ræðir um byggingamarkaðinn. Óli Björn Kárason, alþingismaður mætir í settið og ræðir stöðuna í hagkerfinu hér á landi og erlendis.
Fjallað er um rauðar tölur á hlutabréfamörkuðum í vikunni, markaðssérfræðinginn Mark Ritson, sem væntanlegur er á ÍMARK daginn, risasamning Atlanta flugfélagsins og kaup franskra aðila á hlut í bílaumboðinu Öskju m.a.
Aukaþáttur þar sem rætt er við Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra sem telur rétt að ríkið veiti um 50 milljörðum króna á þessu ári í formi fjárfestingar og skattalækkana út í hagkerfið umfram það sem fjárlög kveða á um.
29 min
About Viðskiptapúlsinn
From the publisher's feed
Hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál sem tekinn er upp á ritsjórn Morgunblaðsins.