Viðskiptapúlsinn

Viðskiptapúlsinn

By ViðskiptaMogginnBusiness
Download on the App Store

Viðskiptapúlsinn episodes

  • Viðskiptapúlsinn, 17. þáttur
    Rætt um fyrirætlanir Vincent Tan um uppbyggingu lúxushótels, möguleikana á beinu flugi milli Íslands og Asíu, hrun í bílasölu og blandveruleikann í tölvuleikjaheiminum. Þá er rætt við Vigni S. Halldórsson, hjá MótX sem þekkir byggingamarkaðinn betur en flestir.
    47 min
  • Viðskiptapúlsinn, 16. þáttur
    Risaflugfélagið Emirates jafnvel á leið til landsins og forsætisráðherra vinnur nú að því að velja nýjan seðlabankastjóra. Í þættinum er einnig rætt við Hörð Ægisson viðskiptaritstjóra Fréttablaðsins sem fer yfir stöðuna á flugmarkaði, seðlabankamál og hrókeringar á vettvangi Arion banka.
    46 min
  • Viðskiptapúlsinn, 15. þáttur
    Sérútgáfa af Viðskiptapúlsinum. Ítarlegt viðtal við Óla Björn Kárason, formann efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem rætt er um skattamál, einkavæðingu, ríkisrekstur og sitthvað annað áhugavert.
    1 hr 3 min
  • Viðskiptapúlsinn, 14. þáttur
    Fjallað um helstu fréttir ViðskiptaMoggans, skattsvik, starfsaldur forstjóra fyrirtækja í Kauphöll Íslands, innreið Blámars og HB Granda á netverslanamarkaðinn í Kína og margt fleira. Einnig ítarlegt viðtal við Birgi Jónsson, nýráðinn forstjóra Íslandspósts.
    46 min
  • Viðskiptapúlsinn, 13. þáttur.
    Rætt var við Stefán Brodda Guðjónsson hjá Arion banka um vaxtalækkun Seðlabankans. Fréttaskýring um viðræður Icelandair við Boeing og Airbus, var tekin fyrir ásamt fleiru sem fram kom í ViðskiptaMogganum í dag.
    48 min
  • Viðskiptapúlsinn, 12. þáttur.
    Fjallað um helstu viðskiptafréttir dagsins þar sem fjártæknilausnir koma mjög við sögu. Einnig fjallað um tekjur íslenskra tónlistarmanna af Spotify. Þóroddur Bjarnason ræðir sérstaklega við Sölva Blöndal, stofnanda og eiganda Alda Music.
    45 min
  • Viðskiptapúlsinn, 11. þáttur.
    Rætt var við Birki Ívar Guðmundsson, framkvæmdastjóra Vínness um tiltölulega nýafstaðið verðboð um Stella Artois bjórinn, fjallað er um stöðuna á samruna Arctic Adventures og Into the Glacier ásamt skráningu Marels á markað í Amsterdam.
    50 min
  • Viðskiptapúlsinn, 10. þáttur.
    Farið er yfir helstu fréttir úr ViðskiptaMogganum í dag. Þar á meðal forvitnilega frétt um Stella Artois bjórinn sem hækkaði í verði um mánaðamótin, miðopnuviðtal við forráðamenn Klappa grænna lausna, og fyrirhugaða skráningu þróunarfélagsins Kaldalóns á First North markaðinn.
    24 min
  • Viðskiptapúlsinn, 9. þáttur.
    Rætt er við Stefán Einar Stefánsson, höfund bókarinnar WOW - Ris og fall flugfélags, sem kom út í vikunni, og farið er yfir helstu fréttir ViðskiptaMoggans þar sem meðal annars er rætt við umboðsaðila Lindex á Íslandi sem hyggjast færa út kvígjarnar til Danmerkur.
    30 min
  • Viðskiptapúlsinn, 8. þáttur.
    Viðskiptapúlsinn ræðir við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, um vaxtalækkun peningastefnunefndar Seðlabankans. Rætt er um verslun á Keflavíkurflugvelli eftir brotthvarf WOW air af flugmarkaði, gervigrasvelli sem spretta um allt land, miðopnuviðtal við Heiðar Guðjónsson, forstjóra Sýnar, og fleira úr ViðskiptaMogganum.
    41 min

About Viðskiptapúlsinn

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál sem tekinn er upp á ritsjórn Morgunblaðsins.