
Sign up to save your podcasts
Or


Víðsvegar flakkar um Þjóðarbókhlöðuna, þessa merkilegu byggingu sem margir þekkja frá námsárum sínum. Í þættinum er spjallað við starfsfólk og gesti sem hafa alls konar sögur að segja.
Umsjón Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Rifjum upp valin brot úr ferðum Víðsvegar um landið frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Sífellt færri kunna að gera við torfhús og hvað gerist ef sú þekking hverfur alveg? Í dag kynnumst við systkinunum Sigríði Sigurðardóttur og Helga Sigurðssyni, sem ólust upp á bænum Stóru-Ökrum í Skagafirði. Þau hafa bæði lagt mikið af mörkum til varðveislu og viðhalds torfbæja. Helgi ferðast um allt land og hefur sérhæft sig í viðgerðum á torfbæjum. Sigríður var í tæp 32 ár safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, og í hennar starfstíð átti mikil uppbygging sér stað í Glaumbæ sem og hjá Byggðasafninu öllu. Sigríður hlaut á nýjársdag 2026 heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir varðveislu torfbæja og annarra menningarminja.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í þætti dagsins flökkum við um Akureyri og spjöllum um matarmenningu staðarins, að fornu og nýju. Allt frá hefðbundnum heimilismat, að bernaissósu og frönskum á milli, yfir í fínni veitingastaði.
Viðmælendur: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Rakel Elín Garðarsdóttir, Þorgerður Jóhanna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Bergmann, Snæbjörn Bergmann og Reynir Gretarsson.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Víðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst.
Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladóttir, Karen Hlín Halldórsdóttir og Sölvi Krisinn Jónsson.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Víðsvegar heldur enn til á Vopnafirði, þar sem við kynnumst staðnum og veltum fyrir okkur hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu þar að finna.
Viðmælendur: Kristinn Ágústsson, Sara Líf Magnúsdóttir, Íris Edda Jónsdóttir, áhöfnin á Indriða Kristins BA 751 og Heiðar Kristbergsson.
Í þættinum er spilað brot þætti Berglindar Häsler „Frá Vopnafirði til vesturheims“ frá 2009. Þar ræddi hún við Ágústu Þorkelsdóttur.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Ferðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.
Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi.
Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir.
Þetta var síðasti þáttur Víðsvegar, í bili. Þátturinn fer nú í sumarfrí en snýr aftur í september og þá byrjar flakk okkar aftur. Og ef þið eruð með ábendingar um skemmtilega viðmælendur, sögur eða staði má alltaf senda línu á netfang þáttarins, [email protected].
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Í þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum.
Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðlaun sambandsins. Einnig er rætt við framvkæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem stendur á tímamótum.
Viðmælendur: Sigurgeir B. Hreinsson, Ástþór Örn Árnason, Svana Ósk Rúnarsdóttir og Ingvi Stefánsson.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
From the publisher's feed
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Framleitt af Rás 1.
Hosted on…