Vísindavarp Ævars

Vísindavarp Ævars

By RÚVKids & Family
Download on the App Store

Vísindavarp Ævars episodes

  • Framtíðin
    Í þætti dagsins veltir Ævar fyrir sér framtíðinni, hverju var búið að lofa okkur og hverju við gætum átt von á. Við fjöllum um geislasverð, svifbretti og geimferðir, klónun, risaeðlur og draumalesara. Allt þetta og miklu meira til!
    20 min
  • Geimurinn
    Í þætti dagsins lítum við til himins og rannsökum stjörnurnar. Sólkerfið, sprengistjörnur, rauðir risar, hvítir dvergar og hvernig maður fer á klósettið í geimnum - allt þetta og miklu meira til í Vísindavarpi Ævars!
    20 min
  • Ísland
    Landið okkar er ótrúlega spennandi land, fullt af jarðfæði- og sagnfræðilegum undrum. Í þætti kvöldsins rannsakar Ævar hvers vegna hér verða svo oft eldgos, hvernig jöklar skríða, landnámið, víkinga, sjóræningja og hvort að Vatnajökull sé nógu stór til að koma öllum jarðarbúum fyrir á honum!
    21 min
  • Skrímsli
    Í þætti kvöldsins rannsakar Ævar skrímsli, þar sem snjómaðurinn ógurlegi, Loch Ness-skrímslið, Lagarfljótsormurinn, draugar og geimverur koma við sögu. Hlustaðu ef þú þorir!
    21 min
  • Talan einn
    Við skoðum töluna einn - hvernig hún varð til og hvernig tölur hafa þróast með mannkyninu gegnum árin.
    21 min
  • Sögur af forritun og hvernig á að haga sér á netinu
    Gestur þáttarins er Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, nemi í hugbúnaðarverkfræði. Við spjöllum um hvað forritun er, hvernig forritun og fótbolti tengjast og hvað /sys/tur eru. Svo fer Ævar yfir sögu internetsins og hvernig maður á að haga sér á því.
    http://krakkaruv.is/aevar
    22 min
  • Alls konar vísindi
    Í Vísindavarpi dagsins förum við um víðan völl. Við skoðum alls konar vísindi, fjöllum um stærðfræði og hvers vegna hún er mikilvæg, skoðum hrakfarir vísindamanna, rannsökum tilfinningar og merkjum mörgæsir.
    http://krakkaruv.is/aevar
    20 min
  • Jörð í hættu
    Í þættinum í dag fáum við góðan gest; Margréti Hugadóttur. Hún ætlar að segja okkur frá verkefninu ,,Jörð í hættu!?"
    Að spjallinu loknum skoðum við svo risastórar plasteyjar.
    http://krakkaruv.is/aevar
    21 min
  • Geimverur og grýlukerta-geimfarar
    Í dag ætlum við að fjalla um geiminn. Við veltum því fyrir okkur hvort geimverur séu til, skoðum hvað gerist ef geimfari deyr í geimnum og rannsökum flottasta stjörnusjónauka í heimi (og geimi).
    http://krakkaruv.is/aevar
    19 min
  • Risaeðlur
    Ævar fær afar áhugavert bréf í póstinum um risaeðlur og óskabein. Svo skoðar hann líka hvað það þýðir að vera í útrýmingarhættu.
    21 min

About Vísindavarp Ævars

From the publisher's feed

Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri.

More shows like Vísindavarp Ævars

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners