
Sign up to save your podcasts
Or


Stórsöngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir – Diddú – er engri lík. Hún á að baki magnaðan feril og er hvergi nærri hætt. Hún talar um Spilverksárin, hið dramatíska skref sem það var að færa sig yfir í klassíkina og um skyndilegt og sárt fráfall eiginmanns síns Þorkels Jóelssonar.
Bláa lónið stendur á tímamótum. Nýlega keypti félagið annað stöndugt ferðaþjónustufyrirtæki. Fyrirhuguð er skráning félagsins á markað og stendur nú yfir hlutafjárútboð sem lýkur á morgun. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, er næsti gestur í Sætinu.
Í þætti dagsins ræðum við fjárfestaráðstefnuna Arctic Investments 2026 sem var haldin í London í síðustu viku. Hörður Ægisson ritstjóri Innherja hlýddi þar á ræðu Kristrúnar Frostadóttur sem hvatti til erlendra fjárfestinga í orku og innviðum á Íslandi. Kristrún vakti mikla lukku á meðal erlendra fjárfesta á meðan þeir innlendu veltu fyrir sér hvort orð hennar væru samhljóma aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þá er einnig farið yfir útboð Bláa lónsins sem fer fram í vikunni og hvað þarf að ganga upp til að 95 krónur á hlut teljist gott verð.
Í seinni hluta þáttarins fáum við til okkar Eggert Þröst Þórarinsson hjá Acro en um árabil vann hann að fjármálastöðugleika í Seðlabankanum. Eggert er beðinn um að útskýra hvers vegna hann telur að hagkerfið kunni að vera að kólna hraðar en Seðlabankinn gerir ráð fyrir og síðast en ekki síst, hverju hann býst við þegar ákvörðun um vexti verður kynnt 18. nóvember.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona er með skemmtilegra fólki, með munninn fyrir neðan nefið og hún kom spyrlinum ítrekað í vandræði með beinskeyttum og óvæntum gagnspurningum. Ólafía fer yfir litríkan ferilinn en hún hefur ótrúlega breidd sem leikari og ræður jöfnum höndum við kómík og dramatík.
Draumar Demókrataflokksins um sigur í báðum deildum bandarískra þingsins rættist. En hvaða kosningar voru þetta? Hvað þýðir sigur hinna bláu? Hvers er von hjá Donald Trump það sem eftir er kjörtímabilsins. Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar fékk Samúel Karl Ólason, fréttamann Vísis og sérfræðing í bandarískum stjórnmálum, til að útskýra kosningarnar á mannamáli.
Fáir ef nokkrir vita eins mikið um bíóbransann og Ásgrímur Sverrisson. Hann ræðir stöðu íslenskrar kvikmyndagerðar og þróun á þeim vettvangi; hvort þar ríki bölmóðurinn einn eða að menn geti farið að horfa fram á bjartari tíð með blóm í haga.
Formaður Miðflokksins segir umræðuna um regnbogafánana hafa komið sér á óvart. Hópar telji fánann þvingandi og útilokandi og segir formaðurinn hættu á að hann ýti börnum út í „eitthvað trend“. Menntakerfið megi ekki beina þeim í „einhverjar áttir“. Formaðurinn hefur ekki greitt atkvæði á þessu þingi en hyggst brátt tala manna mest og boðar nýjar tillögur í útlendingamálum.
Skyndilegt brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar og ládeyða á hlutabréfamarkaði er í brennidepli í fyrsta hlaðvarpsþætti Innherja þar sem farið er um víðan völl. Birgir Olgeirsson fréttamaður og Hörður Ægisson ritstjóri Innherja fá Ólaf Sigurðsson framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs í heimsókn.
Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og segist hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann greindist með krabbamein.
From the publisher's feed
Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum…
Ranked by our users in the last 21 days