Vísir

Vísir

By visirhladvarpNews
Download on the App Store

Vísir episodes

  • Sætið - Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður

    Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla. 

    37 min
  • Í bóli Bjarnars - Guðrún Vilmundardóttir

    Guðrún Vilmundardóttir útgefandi á tuttugu ára starfsamæli í útgáfubransanum um þessar mundir. Hún stýrir útgáfufélaginu Benedikt og er með afar tilþrifamikinn lista höfunda á mála hjá sér. Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yfir ýmsa forvitnilega fleti á útgáfubransanum, segir af mjólkurkúm og lukkudýrum.

    56 min
  • „Hvað eru margir af þessum 15 sem geta unnið þetta?“

    Garpur I Elísabetarson fékk þau Kristján Karl Björnsson, Egil Trausta Ómarsson og Tinnu Miljevic til sín þar sem landsliðakeppnin í Bakgarðshlaupi var til umræðu. Keppnin fer fram næstu helgi þar sem 15 bestu hlauparar Íslands keppa við aðra hlaupara út um allan heim. Keppnin verður í beinni útsendingu á Vísi.

    1 hr 21 min
  • Sætið - Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott

    Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.

    43 min
  • Í bóli Bjarnars - Friðrik Ómar

    Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson saknar föður síns þótt samband þeirra hafi verið flókið á margan hátt. Viðbrögðin þegar einkasonurinn kom út úr skápnum 26 ára voru meinfyndin en aðdáun föðurins á Trump og Pútín flæktust reglulega fyrir. Útförin í sumar var mikil tónlistarveisla.

    52 min
  • Í bóli Bjarnars - Sigríður Dögg Auðunsdóttir

    Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Hún mæðist í mörgu sem slík og ræðir meðal annars skilgreiningarvanda blaðamennskunnar, fjölmiðlalæsi, skilningsleysi á faginu sem teygir sig alla leið upp í dómstóla og segir frá erfiðasta atviki sem hún hefur þurft að takast á við sem formaður.

    54 min
  • Sætið - Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann

    Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu viðtali við fréttastofu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.

    41 min
  • Í bóli Bjarnars - Halldór Guðmundsson

    Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, sem sumir myndu segja að sé helsti mafíósi í íslenska bókabransanum, hefur vaðið í það þarfa verk að rita bókmenntasögu Íslendinga frá öndverðu og til vorra daga, hvorki meira né minna. Hann er gestur Í bóli Bjarnars þessa vikuna.

    43 min
  • Í bóli Bjarnars - Benedikta Guðrún Svavarsdóttir

    Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman að því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félag um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfjörð. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum dögum

     

    50 min
  • Hitað upp fyrir Bakgarðshlaupið

    Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic, sem munu lýsa Bakgarðshlaupinu um helgina, fengu Egil Trausta Ómarsson í spjall þar sem þau ræddu meðal annars um líklegan sigurvegara ofl.

    44 min

About Vísir

From the publisher's feed

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum…

Best of Vísir

Ranked by our users in the last 21 days