X21 - Kosningahlaðvarp RÚV

X21 - Kosningahlaðvarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

X21 - Kosningahlaðvarp RÚV episodes

  • Kvöldið fyrir kosningar
    Síðustu kappræðunum er lokið og leiðtogar flokkanna farnir úr húsi en þau Fanney Birna Jónsdóttir, Jóhann Óli Eiðsson og Þórður Snær Júlíusson sitja eftir með okkur inni í Stúdíó 9 og kryfja umræður kvöldsins.
    1 hr 10 min
  • Hvað er það versta sem getur gerst?
    Við skyggnumst bakvið tjöldin og fylgjumst með undirbúningi fyrir kosningavökuna í Stúdíó A. Við ræðum einnig við 48 ára mann frá Írak sem kýs í sínum fyrstu lýðræðislegu kosningum á laugardaginn og svo köfum við í þrjú málefni sem skipta almenning sköpum þegar kemur að því að haka við listabókstaf.
    42 min
  • En hvað ef ég dey fyrir kosningar?
    Það er í ótal horn að líta þegar kemur að skipulagningu kosninga eins og við komumst að í þætti dagsins. Við röltum niður í ráðhús Reykjavíkur þar sem kosningaundirbúningur er í fullum gangi og heyrum einnig viðtal við Bergóru Sigmundsdóttur sem hefur yfirumsjón með utanatkvæðagreiðslu. Þá kynnum við okkur þrjú hitamál sem gætu skipt sköpum þegar í kjörklefann er komið.
    40 min
  • Umboðið til stjórnarmyndunar er bara goðsögn
    Gestur dagsins er sprenglærður í íslenskum stjórnmálum enda kom hann víða við áður en hann var kjörinn forseti Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn um pólitíska landslagið fyrr og nú og deilir sögum úr stjórnartíð sinni, sögum sem hann segist aldrei hafa sagt opinberlega áður.
    52 min
  • Nýliði Ábyrgrar framtíðar
    Helgi Örn Viggósson er forritari og skipar annað sætið á lista Ábyrgrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann segir meginstraumsfjölmiðla fyrst og fremst hafa hræðsluáróður á sinni dagskrá sem og söluræður um ágæti bóluefna.
    25 min
  • Nýliði Miðflokksins
    Fjóla Hrund Björnsdóttir skipar fyrsta sæta á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hún segir Miðflokkinn hafa þurft að fara í ákveðna skipulagsbreytingu og hún hafi barist fyrir því að fá fleiri konur í framboð.
    22 min
  • Eins og byrjunarsenan í Godfather II
    Þrír kjósendur þau Fannar Sveinsson, Lóa Björk Björnsdóttir og Bergþór Másson þreyta kosningaprófið á vef RÚV til þess að glöggva sig á því hvað þau eiga að kjósa. Auk þeirra lítur Baldur Héðinsson stærðfræðingur við og segir okkur frá kosningaspá sinni og Kjarnans.
    48 min
  • Nýliði Frjálslynda lýðræðisflokksins
    Björgvin Egill Vídalín Arngrímsson er eldri borgari með próf í atvinnuköfun sem unnið hefur ýmis störf. Hann er líka oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Hann vonast til að hugmyndir flokksins um samfélagsbanka fari á flug meðal almennings.
    26 min
  • Hvað hvílir á kjósendum?
    Eva Heiða Önnudóttir er búin að taka hin ýmsu kosningapróf mun oftar en meðal Íslendingurinn. Hún er prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og einn af ábyrgðamönnum Kosningarannsóknar Háskóla Íslands sem meðal annars greinir hvenær meðal kjósandinn gerir upp hug sinn og hvað þeim finnst mikilvægasta kosningamálið.
    31 min

About X21 - Kosningahlaðvarp RÚV

From the publisher's feed

Hver á að leiða landið? RÚV telur niður til alþingiskosninga með hjálp góðra gesta sem rýna í skoðanakannanir, stefnumál flokkanna og frambjóðendur. Umsjónarmenn: Guðmundur Björn Þorbjörnsson,…