Skoðanabræður

#32 Odd Þórða og versta skiptinám sögunnar, sem blessunarlega tekur nú snöggan enda


Listen Later

„Það hefur enginn skiptinemi í mannkynssögunni nýtt tímann verr heldur en ég,“ segir viðmælandi. Odd Þórða var fyrsti Íslendingurinn sem Skoðanabræður fabúleruðu um að væri kominn með Covid-19, þar sem hann dvaldi í ömurlegu skiptinámi í Southampton (sjá þátt #21). Eftir 7 mánuði inni í herbergi er Odd á leið í einkaþotu heim á sunnudaginn, mun fyrr en áætlað var, og því ber að fagna: Dvölinni er lokið, sem hann segir réttast að hann fengi kafla fyrir í heimsmetabók Guinness, nefnilega fyrir „versta skiptinám allra tíma.“ Hann segir hér í smáatriðum frá þeim breytingum sem orðið hafa á högum hans síðan síðast, þriðji karlmaður vikunnar sögunnar til þess að vera gestur þáttarins tvisvar.

Skjótt skipast veður í lofti á þessum síðustu og bestu – örlög ráðast á svipstundu, sem annars hefðu líkast til orðið önnur. Skoðanabræður eru sagnaþulir samtímans og hlutverk þeirra er fanga þessar sögur í orð og skrásetja það sem annars hefði fokið út í vindinn. Á sama tíma eru þeir sjálfir viðfang eigin skrásetningar, nú þegar suðrið sæla andar vindum þýðum og það vorar í mestu borgum Evrópu, tekur Snorri saman föggur sínar og álpast með fyrsta flugi heim, nánar tiltekið kórónavél sérstakri, og lendir á miðnætti í kvöld. Hann, sem hugðist halda kyrru fyrir í Berlín, biðja að heilsa öllum heima rómi blíðum og koma síðan með haustskipum, sér sóttarsæng sína nú uppreidda og kemur heim með skottið á milli lappanna.

Til þess að kynnast þættinum efnilega er mælst til þess að hlustendur stilli töppunum haganlega í eyrun og kveiki á þessari músík. Hér er síður en svo aðeins verið að ræða kórónaveiruna þó að vissulega svífi hún yfir vötnum.

Þetta helvíti er á vegum Útvarps 101 og er alfarið rekið með framlögum frá hlustendum með því að senda pening með AUR eða KASS í númer 661-4648.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkoðanabræðurBy Bergþór Másson

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

35 ratings


More shows like Skoðanabræður

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

465 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

145 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

27 Listeners

FM957 by FM957

FM957

28 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

28 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

31 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

23 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

13 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

22 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners