Tölvuleikjamarkaðurinn er í stöðugri þróun og þá sérstaklega rafíþróttir. Margt spennandi er að gerast hér á landi í þeim málum og eitt af þeim er Heimavöllur, nýtt verkefni sem strákarnir í Tölvuleikjaspjallinu eru ofboðslega spenntir að vita meira um.
Til þess fengu þeir til sín Gunnar Þór Sigurjónsson, framkvæmdastjóra Heimavallar. Arnór Steinn og Gunnar spyrja hann spjörunum úr um verkefnið, hvaðan hugmyndin kom og hvernig þetta kom allt saman.
Við þökkum Gunnari kærlega fyrir komuna og hlökkum til að kíkja í spil!
Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock.