Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

Download on the App Store

Á ég að hend'enni? episodes

  • 41. Þrettán vasaklúta þáttur (Bróðir minn Ljónshjarta e. Astrid Lindgren)

    Send us Fan Mail

    Steinunn fór í fyrra lífi i fyrralífslestur og reyndist hafa verið svört ambátt og breskur grasafræðingur seint á 18. öld. Halldóra reynist vera frambærileg á kínversku enda downloadar hún bara tungumálum í gegnum Akashic-skjölin og svo var hún náttúrlega Kínverji í fyrra lífi að sögn. Konur eru að taka yfir heilbrigðiskerfið enn og aftur enda eru það ætíð þær sem sjá um aðhlynningu þegar hana er hvergi að fá. Steinunn fullyrðir að konur séu orðnar uppgefnar á því að vera sjúkdómsgreindar eftir áföll í stað þess að fá bara tíma til að jafna sig, því mannsálin geti vitanlega læknað sig sjálf. Myndatökur sem ganga eins og smitsjúkdómur um netið eru fjölskyldumyndir á ströndum þar sem allir klæðast hvítu.  Er HELLO tímaritið ábyrgðaraðili? Halldóra fær hreinlega andarteppu þegar hún skoðar húsa og hönnunarblöð sem er kannski eitthvað sem hlustendur kannast við?

    Takk fyrir samstarfið:  Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-Gleraugu

    Support the show

    49 min
  • 40. Nærföt útfararstjórans og The 4 fucks (Speki Konfúsíusar)

    Send us Fan Mail

    Það kemur í ljós að Steinunn átti nærfataskúffu sem hæfði útfararstjóra en hefur nú, af því að hún las það einhverstaðar, kannski á Smartlandi, að það væri hollara að klæðast glaðari litum næst sér. Halldóra byrjaði hinsvegar að klæðast björtum litum í hruninu og dvaldi langdvölum með fjölskyldu sína í sundlaugum Reykjavíkur til að forðast skarkala heimsins. Ef þetta hljómar undarlega þá tekur Halldóra upp speki Konfúsíusar sem ekki skyldi rugla saman við Confused-ius átrúnaðargoð Steinunnar sem er útsaumaður spekingur sem hangir á veggteppi. En sára barnið innra með okkur er til umræðu og litlu munaði að Steinunn kyrkti eða drekkti sínu!

    Takk fyrir samstarfið:  Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn og Sjáðu Gleraugunverslun

    Support the show

    49 min
  • 39. Að selja sig eða selja sig ekki (Spámaðurinn Kahil Gibran)

    Send us Fan Mail

    Að vera þræll markaðarins en vilja það eiginlega ekki er efst baugi. Stöllurnar Steinunn og Halldóra viðurkenna á sig vandræðagang miðaldra kvenna sem reyna að fóta sig á samfélagsmiðlum í ýmsum tilgangi. Þær leggjast svo lágt að biðla til hlustenda að dreifa fagnaðarerindinu þ.e podcasti þeirra - ekki er öll vitleysan eins. Sálarferðalagið er áfram til umræðu enda eru allir í rusli eða þess hefur Dóra orðið áskynja allt um kring og styður vedíska stjörnuspekin það vitanlega og þá er ekki annað í stöðunni en að grípa í Spámanninn og fletta upp heilræðum til að feta sig eftir.

    Support the show

    51 min
  • 38. Er sálin á eilífðarferðalagi? (Feður og synir e. Ivan Sergeyevich Turgenev)

    Send us Fan Mail

    Halldóra er að spá í vaxtarferðalag sálarinnar og hvar hún sjálf er stödd í því ferðalagi. Steinunn heldur því fram að í verönd hverrar manneskju búi þrír þræðir innra barnið, innra foreldrið og svo hið innra fullorðna sjálf. Þær eru óvanalega djúpar og einlægar í þessum þætti. Já það má segja að þessi þáttur sé á dýpinu, andlega dýpinu. Það er búið að vara ykkur við...hlustið ef þið þorið að kafa, kafa niður á djúpsævið bláa. 

    Takk fyrir samstarfið:    Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-Gleraugu

    Support the show

    51 min
  • 37. Stóru vinkonurnar eru bestu vinkonurnar! ( She is my sweetheart)

    Send us Fan Mail

    Þær Halldóra og Steinunn eiga báðar því láni að fagna að hafa átt fjölmargar sterkar og góðar fyrirmyndir í lífinu og hvað er betra en að eignast slíkar að vinkonum. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir listakona með meiru en ein þeirra ofurkvenna sem hafa fylgt þeim stöllum stóran hluta ævinnar og til umfjöllunar í þessum þætti, er eins og Steinunn kallar það einhver fallegasta ástarjátning allra tíma en það er bókin, She is my sweetheart for 50 years ,en það er listaverka og ljósmyndabók sem eiginmaður Þórunnar, Tótu, á heiðurinn af. Ástin, lífið og vináttan, hvað viljum við meira?

    Takk fyrir samstarfið:    Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-Gleraugu

    Support the show

    41 min
  • 36. Það eru allir og amma þeirra að taka sveppi

    Send us Fan Mail

    Í þessum þætti dregur aldeilis til tíðinda því Steinunn nuddar hendurnar og fæturnar á Halldóru þar til hún sofnar næstum. Þetta ku vera heimsviðburður. Ætla má að Steinunn hafi með ráðum boðið upp á nuddið svo hún sjálf gæti talað svo gott sem í viðstöðulausum. Halldóra fær ferðasögu af heilsudvöl í Portúgal þar sem Steinunn borðaði ofskynjunarsveppi og talaði við blóm, býflugur og runna og vill helst núna ekki við aðra tala. Halldóra er af ákefð að hugsa upp hvernig hún getur opnað leikskóla fyrir fullorðna vegna þess að það er það sem koma skal! 

    Leika meira, vinna minna, elska meira, hata minna!

    Þökkum samstarfið: 
    Íslandsbanki, Icelandair, Beauty klúbburinn, O.Johnson&Kaaber, 
    Sjáðu-Gleraugnaverslun.

    Support the show

    51 min
  • 35. Erum við stjörnuryk eða zombie-ar? Er hugsanlegt að sumir séu hvortveggja.

    Send us Fan Mail

    Fyrst segir frá kuðungum sem Halldóra bar yfir hálfan hnöttinn. Fermingar ber á góma en hvorki Steinunn né Halldóra fermdust og þess vegna kannski er þetta podcast þeirra svona undarlegt.  Er náttúrutrúin það merkilegasta sem við Íslendingar eigum í menningu okkar?  Það finnst Steinunni. Halldóra segir frá óvanalegum uppeldisaðferðum þar sem hún hræddi börn sín til varkárni með tröllum. Zombi-ar koma mjög við sögu enda hefur Halldóra merkilega sögu af þeim að segja. Getur einhver vond orka tekið yfir líkama annarra? Er Sjálfskaðahegðun tegund af zombie-isma? Það versta sem getur gerst er að lenda á veltiskilti!!!

    Þökkum samstarfið: 
    Íslandsbanki, Icelandair, Beauty klúbburinn, O.Johnson&Kaaber, 
    Sjáðu-Gleraugnaverslun.

    Support the show

    48 min
  • 34. Hægra heilahvelið, Freud og ferðalagið. (Kuan Yin og Freud)

    Send us Fan Mail

    Halldóra dregur spil frá gyðju samkenndarinnar Kuan Yin og færir spilið Halldóru nýja sýn enda á hún að leita að auganu sem býr í hjartanu, hvernig sem hún fer nú að því. Hvað segja ferilskrár um manneskjur yfirleitt? Eru manneskjurnar oft og tíðum fangar fortíðarinnar því hver ertu ef þú sleppir tökum á sögunni þinnii? Freud ber á góma og salfræðingur sem Halldóra þekkir kemur í heimsókn með óbeinum hætti. Dálítið eru þær vinkonurnar ósammála um hvar sálin býr en um tilveru sálarinnar eru þær þó alveg sammála.

    Takk fyrir samstarfið:  Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-Gleraugnaverslun, O.Johnson&Kaaber

    Support the show

    50 min
  • 33. Má bjóða þér far? Til Helvítis? Í gegnum hreinsunareldinn? ( Guðdómlegi gleðileikurinn)

    Send us Fan Mail

    Í fjarska heyrist mófuglasöngur enda er vorið á hátindi sínum. Heimsbókmenntirnar eru undir og ferðast þær Halldóra og Steinunn eftir leiðakerfi sjálfsvitundarinnar í gegnum sjálft helvíti og hreinsunareldinn í leitinni að paradís. Eru örvæntingarfyllstu augnablik í lífi okkar tækifæri í dulargervi? Hvernig komumst við úr limbói tvíhyggjunnar og aftur heim til hjartans? Halldóra átti uppbyggilegt samtal um dauðasyndirnar við gervigreindina og syndaskrá manneskjunnar er skoðuð gaumgæfilega.

    Takk fyrir samstarfið:  Íslandsbanki, Icelandair, Beautyklúbburinn, Sjáðu-Gleraugnaverslun, O.Johnson&Kaaber

    Support the show

    52 min
  • 32. Skjalasafn alheimsins - megum við fara þangað í beinni? (Akashic hugleiðsla)

    Send us Fan Mail

    Þessi þáttur er tekin upp í Skorradal í sumarbústað Halldóru þar sem Steinunn á griðastað og myndar samband við friðland og fiðraða.  Halldóra umskapar sjálfa sig og breytist í transmiðil snemma þáttar og þá kemur við sögu hinn kvensjúki Pétur og reyndar ein vinnukona sem hann barnaði margoft í sveitinni. Napóleonsskjölin eða Akashic skjölin eru heimsótt og hauslaus geimvera vill hafa samband við Steinunni. Hvað þýðir það að ganga öfugan sólargang? Það vilja auðvitað allir vita en svörin fást náttúrlega aðeins með því að hlusta.

    Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, O.Johnson&Kaaber, og Sjáðu-Gleraugu

    Support the show

    51 min

About Á ég að hend'enni?

From the publisher's feed

Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman…