Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

Download on the App Store

Á ég að hend'enni? episodes

  • 21. Ég bið að heilsa eftir Inga T. (Söngbókin)

    Send us Fan Mail

    Er Halldóra gerviflautuleikari  eða alvöruflautuleikari, þar er efinn! Finnst öllum gaman að dansa?  Hver vill vera athyglissjúka leikkonan sem lætur á sér bera á viðburðum annara?  Steinunn deilir því að amma hennar hnerraði sjö sinnum en er augljóslega eftirbátur hennar því í þættinum hnerrar hún aðeins fimm sinnum. Er það forboði um eitthvað? Ferðasöngbók er til umræðu enda ættu slíkar að vera til á öllum heimilum. Steina les ljóð en Halldóru tekst að heyra það ekki þótt hún sitji við hlið hennar. Lagt er á ráðin með að halda á elliheimili agalega söngskemmtun að næturlagi þar sem þær ætla sér að flytja öll lögin í söngbókinni. Leynist í söngbókinni spá fyrir komandi viku? Skvetta, falla, hossa, hrista! Steinunn áminnir Halldóru um að hún hefur algerlega vanrækt sína nánustu en Halldóra segir að engin hafi saknað hennar þótt hún hafi verið fjarverandi. Eru mæður kannski ónauðsynlegar.


    Support the show

    46 min
  • 20. Bylting miðaldra þjónustufulltrúa..kvenna (Birna, Rósa, Bára)

    Send us Fan Mail

    Eru konur alltaf að gerast þjónustufulltrúar án þess að gera sér grein fyrir því? Halldóra og Steinunn vilja nýja vængi enda búnar að vera þjónustufulltrúar í þrjá áratugi. Halldóra er meira miðaldra en Steina því hún heldur að það heiti ,,að larpa“ þegar unglingar eru ,,að lana.“ Eru barnaherbergi og stærð þeirra misskilningur frá upphafi til enda?  Um það tjáir Steinunn sig enda var hún með svo lítið barnaherbergi að Harry Potter á ekkert í hana. Báðar eru þær á tímamótum og vilja nýtt upphaf og enga þræði sem halda þeim niðri. Ef Halldóra flokkar skrúfur langar Sreinunni að gefa henni vítissóda. Er bylting miðaldra kvenna  á næsta leyti, ekki ber á öðru.

    Support the show

    48 min
  • 19. Hugleiðsla, Botox og betri líðan (Hugleiðsla)

    Send us Fan Mail

    Flensa dró Steinunni nær til dauða og henni batnaði ekki fyrr en henni höfðu verið færðir svo margir blómvendir að heimilið minnti á líknardeild. Dóra vænir vinkonu sína um að hafa farið í botox en Steinunn segir þetta nýja 'look' stafa af massívum varaþurrk. Báðar gangast vinkonurnar við útlitsröskun en spurningin er; Afhverju byrjar svona geðveiki að búa um sig? Dóra lærði að finna ljósið í þriðja auganu á hugleiðslunámskeiði í Oxfordskíri og veit nú að sálin býr ekki í hjartanu. Þær eru sammála um að venjur á kvöldin geta bætt nætursvefn og því skuli af kostgæfni velja hvað sé hollt að taka inn af heimsins amstri og hvað ekki.

    Support the show

    46 min
  • 18.Einu sinni langaði okkur að gerast Dýragarðsbörn (Christiana F)

    Send us Fan Mail

    Unglingsárin einkenndust af hangsi á Hressó og reykingum í sjoppum en aðal fyrirmyndin var ungur heróínisti frá Berlín, Kristjana F.  Var bókin um hana forvörn eða fyrirmynd? Ekki alveg gott að segja en Halldóra fór á söguslóðir bókarinnar sem ung stúlka enda lærdómsfús með endemum.


    Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun.

    Support the show

    45 min
  • 17. Ég negli og saga og smíða mér bát (Í kjölfar Kríunnar)

    Send us Fan Mail

    Í kjölfar kríunnar, er bók sem breytti lífi Dóru og hafði mikil áhrif á Steinunni líka. Dóra komst að því við lestur bókarinnar að hún hugsaði of smátt og að hún ætti ekki að láta neitt stoppa sig í að láta drauma sína rætast. Steinunni finnst alltaf gaman að vakna þótt þyrmt geti yfir hana stuttu síðar. Dóra talar um frelsið sem hún upplifir á skíðum en nennir ekki að tala um það en hún ert með afskaplega sérstaka aðferð til að meta eigin heilsu og henni virðist sama hvort hún smiti fjölda manns í leiðinni. Cesaria Evora kemur við sögu enda drottning angurværðarinnar.

    Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki, Alfreð, Icelandair, Hagkaup.

    Support the show

    51 min
  • 16. Manngerðirnar og baslið eilífa við egóið (Manngerðirnar)

    Send us Fan Mail

    Steinu fannst á unglingsárunum Dóra alltaf vera há og spengileg á meðan hún upplifði sig sem litla kiðfætta buddu. Dóra segir Ólöfu Skaftadóttur vera alvöru knattspyrnukonu en sjálf hafi hún aðeins leikið handboltamanneskju. Steinunn hefur gaman af kvartsáru fólki upp að ákveðnu marki en Dóra hefur litla elsku fyrir slíku. Ef sá sem kvartar fer í taugarnar á manni þá hlýtur sá hinn sami að minna mann á sinn eigin kvartara, ekki satt? Dóra fer inn í hégómleikann og dettur í samanburðinn en til allrar hamingju opnar hún sig um það því annars hefði þetta orðið að gigt eða tannskemmd að mati Steinunnar. Stóra spurningin er samt afhverju er allt í mannlegum samskiptum orðið að viðskiptum?

    Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki, Icelandair, Alfreð og Hagkaup

    Support the show

    48 min
  • 15. Spáðu í mig... þá mun ég spá í þig (Spámaðurinn)

    Send us Fan Mail

    Rósir eru sköpunarverkið sjálft enda er rósin tvíkynja. Og fíflið í Tarot heldur á rós sem sannar þvælukenningar Steinunnar um að við séum í raun öll rósir eða meðlimir í Rósareglunni. Halldóra umber kjaftæði Steinunnar og rifjar upp road-trip þeirra vinkvennanna en þá var með í för kynlífsdúkkadúkkuna Nína sem var gerð ódauðleg í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Oxzmá. Dóra vitnar í lífstílsfræðing sm hún man ekki hvað heitir en kannski er nafnið MEL sem kennir að við eigum bara að leyfa fólki að vera eins og það er og ekki reyna að hafa áhrif á gjörðir þeirra.

    Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki, Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun

    Support the show

    52 min
  • 14. Spáum í spilin 2025 (Áramóta spá)

    Send us Fan Mail

    Steinunn er afburða beinþýðandi á meðan Halldóra fattaði á ögurstundu hvað hún er léleg í ensku. Köttur hefur hægðir í beinni. Tsjíkú-ví er ákall til kakaóguðsins og það skal hrópa þegar drukkið er alvöru- kakaó sem að þessu sinni er bragðbætt með stjörnuanís og einhverju sem enginn getur munað hvað heitir! Mun bókin deyja drottni sínum í framtíðinni eða er myndmálið það sem koma skal! Halldóra og Steinunn láta spilin segja til um framtíðina enda eru spádómar það eina haldbæra í heiminum!

    Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki, Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun

    Support the show

    46 min
  • 13. Jólaóratoría Steinunnar og Halldóru (Biblían, jólaguðspjallið)

    Send us Fan Mail

    Þetta mun þegar fram líða stundir verða valinn jólalegsti jólaþáttur allra tíma. Halldóra beygir af yfir Jólaguðspjallinu, Steinunn er engu skárri og þusar eitthvað í gegnum tilinningasemina sem grípur þær báðar. Saman sitja þær vinkonurnar, hámiðaldra, jóla yfir sig og ræða fæðingu frelsarans. Barn allra barna. Og auðvitað ástina skilyrðilslausu.

    Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki, Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun

    Support the show

    54 min
  • 12. Guðsríki er að velja sér góða leikfélaga (Jólin koma)

    Send us Fan Mail

    Steinunn syngur Disney lög með börnunum sínum því henni misfórst að kenna börnum sínum íslensku jólalögin þegar hún bjó í Bandaríkjunum. Hversu mikilvægt er að eiga góða leikfélaga? Er það himnaríki þegar maður á slíkan? Halldóra var alveg frjáls til að gerast poppari á meðan að í ljós kemur að Steinunn þorði alls ekki að leggja slíkt fyrir sig.

    Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki, Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun

    Support the show

    50 min

About Á ég að hend'enni?

From the publisher's feed

Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman…