
Sign up to save your podcasts
Or


Í spjallið til mín að þessu sinni kom Inga Þórisdóttir sem starfar sem stjórnendaþjálfi hjá Via Optima. Hún segir okkur frá öllum þeim verkefnum sem hún sinnir í starfi sínu en áhuginn liggur aðallega í stjórnendaþjálfun, starfsmannasamtölum ásamt streitu, kulnun og öllu sem það tengist. Inga segir okkur einnig frá sinni einlægu upplifun af því að vera sagt upp störfum og hvernig maður þarf sjálfur að bera ábyrgð á sinni vegferð og skapa þannig tækifæri.
Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
Hann heitir Davíð og er stofnandi Swapp Agency. Saga þessa fyrirtækis er mjög spennandi. Allt frá því að hugmyndin fæðist einhversstaðar í Asíu og að vera með nokkrar skrifstofur á Norðurlöndunum. Davíð ætlar að kynna fyrirtækið fyrir okkur og í þokkabót fáum við að heyra mjög svo skemmtilegar pælingar varðandi fjarvinnu…og við erum ekki að tala sérstaklega um heimavinnu sem við kynntumst öll í Covid. Ónei, þetta er miklu skemmtilegra concept. Kannski nær því að fara til Bali í mánuð og vinna þar?
Frábærir styrktaraðilar eins og alltaf. Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
Helga Halldórsdóttir er gestur þáttarins en hún starfar sem forstöðumaður mannauðssviðs hjá Arion banka. Við fórum yfir víðan völl í þættinum. Helga segir okkur frá sinni vegferð í mannauðsmálum, hvernig Arion banki hefur notað breytingastjórnun til þess að ná árangri, mánaðarlegar mælingar, mannauðsstefnuna þeirra, húsnæðismál og margt fleira. Þátturinn er í boði Akademias, YAY, 50skills og Moodup.
Rúsínan í pylsuendanum - Fulltrúar fyrirtækja sem hafa samband við YAY og prófa að gleðja hópinn sinn í júní 2022 fá veglega inneign upp í fyrstu kaup. Það eina sem þú þarft að gera til að fá tilboðið er að nefna að þú sért hlustandi Á mannauðsmáli og voila, díllinn er kominn í hús. Frekari upplýsingar á YAY.is.
Í þessum þætti ætlum við að tala við Röggu hjá PROevents & PROcoaching. Í þættinum förum við yfir hvaða þjónustu hún er að bjóða upp á sem er meðal annars teymisþjálfun, einstaklingsþjálfun og stjórnendaþjálfun. Eins og þið heyrið þá hefur hún mikla ástríðu fyrir þjálfun en Ragga er einn reynslumesti markþjálfi á landinu og hefur starfað bæði hérlendis og erlendis í mörg ár. Við komumst ekki hjá því að ræða Covid og hvernig hún snéri vörn í sókn þegar allt fór á hliðina. Svona til þess að toppa þetta þá ræddum við einnig um jákvæða sálfræði og hvernig orkustjórnun og flæði nýtist okkur sem best bæði í vinnu og einkalífi.
Frábærir styrktaraðilar - Akademias, Moodup og Alfreð.
Í þessum þætti kemur Hildur Sigurðardóttir í spjall til mín. Hildur starfar sem mannauðsstjóri á RÚV en hún var aðeins búin að starfa á RÚV í nokkra mánuði þegar Covid skall á svo það var þónokkur áskorun að byrja í nýrri vinnu á þeim tíma. Við ræðum stuttlega starfsumhverfi fjölmiðlafólks sem hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og vindum okkur svo í fróðlegt spjall um jafnréttismál þar sem hefur verið lögð áhersla á að skoða kynjahlutfall viðmælenda RÚV og þeirra sem starfa við fréttir og dagskrárgerð. Við komumst svo ekki hjá því að ræða aðeins um fjarvinnuna góðu.
Frábærir styrktaraðilar eins og alltaf - Akademias, 50skills og Moodup.
Gestur þáttarins er Elísabet Helgadóttir en hún er framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Icelandair. Félagið hefur vægast sagt þurft að takast á við ýmsar áskoranir seinustu tvö ár eins og mörg önnur fyrirtæki. Í þættinum spjöllum við Elísabet um þær áskoranir sem félagið hefur þurft að takast á við ásamt því að vera í kjaraviðræðum, huga að fjarvinnu og endurskipulagningu félagsins. Það er eiginlega hálf ótrúlegt að félagið hafi náð að halda velli í gegnum þessa veirutíma en Elísabet segir að það hafi reynst langbest að nýta hugarfar Pollýönnu á þessum tímum og að virkja upplýsingaflæði til starfsmanna þegar mesta óvissan stóð yfir. Allt um þetta og meira til í þessum frábæra þætti.
Þátturinn er í boði Akademias, Alfreð, Moodup og Origo.
Thor Olafsson er stofnandi Strategic Leadership og hefur unnið sem stjórnendaráðgjafi í meira en 20 ár. Hann er sestur hjá mér og það eina sem við ætlum að ræða eru stjórnendur og aftur stjórnendur. En hvað er það við stjórnendur sem er svona merkilegt? Jú, það er nefnilega frekar margt. Við ræðum um stjórnendaþjálfun, hlutverk stjórnenda, fyrirtækjamenningu, samvinnu stjórenda og starfsfólks og síðast en alls ekki síst er það egó stjórnenda. Hvað er egó stjórnenda? Thor segir okkur allt um það.
Þátturinn er í boði frábærra fyrirtækja - Akademias, Moodup, 50skills og Origo.
From the publisher's feed