
Sign up to save your podcasts
Or


Gestur þáttarins er enginn önnur en Harpa Magnúsdóttir, stofnandi Hoobla. Drifkrafturinn í Hörpu er ótrúlegur, hún stóð á tímamótum í byrjun árs 2021 eftir 15 ára starf hjá ORF líftækni. Hún fann að það voru tækifæri í gig-umhverfinu og nokkrum mánuðum seinna var hún búin að stofna Hoobla. Harpa segir okkur frá þessu öllu saman ásamt skemmtilegu samstarfi við Siggu Kling.
Styrktarðilar þáttarins eru Akademias, Moodup, Origo og Alfreð.
Við Kristín hittumst í Akademias stúdíóinu og töluðum um hið frábæra jafnlaunakerfi. Origo býður nú upp á þjónustu sem heitir Justly Pay og tengist jafnlaunakerfinu í heild. Justly Pay er í þremur þrepum sem Kristín fer vel yfir og svo ræðum við hvernig er hægt að vinna með það. Jafnlaunakerfið er ekkert annað en gæðakerfi og þess vegna er þessi snilld frá Origo eflaust að fara að spara fjöldan allan af vinnustundum.
Þátturinn er í boði Akademias, 50skills og Moodup.
Í Akademias stúdíóinu situr ungur maður að nafni Björn sem stofnaði nýverið fyrirtækið Moodup en það sérhæfir sig í að mæla starfsánægju hjá fyrirtækjum. Björn er sprenglærður og hefur komið víða við á íslenskum vinnumarkaði, meðal annars unnið sem aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs. Hann stofnaði Moodup í þeim tilgangi að efla starfsánægju starfsfólks með einföldum og þægilegum hætti. Ótrúlega skilvirk lausn sem þið fáið að heyra allt um.
Þátturinn er í boði Akademias, Mótun og Alfreð.
Við Erla María sem starfar sem mannauðsstjóri Krónunnar hittumst alveg eldhressar í Akademias stúdíóinu. Erla segir okkur frá starfsemi Krónunnar ásamt því að fara yfir málefni sem tengjast ungum stjórnendum, Krónuskólanum, velferðarpakkanum þeirra og hvernig þau tókust á við Covid. Virkilega skemmtileg hlustun!
Þátturinn er í boði Akademias, 50skills, Moodup og Mótun.
Við Ágústa hittumst í Akademias stúdíóinu en hún starfar sem forstöðumaður mannauðsmála hjá Sjóvá. Það sem mér hefur þótt einna áhugaverðast við þeirra áherslur eru jafnréttismálin. Þau fá svo sannarlega svigrúm í þessu spjalli en auk þess ræddum við stefnumótunarvinnu sem þau fara í á 2-3 ára fresti þar sem allir starfsmenn taka þátt og leggja sitt af mörkum. Einnig ræddum við um starfsumhverfið og sálfélagslega áhættumatið sem þau leggja mikla áherslu á.
Þátturinn er í boði Akademias, Moodup, Mótun og Alfreð.
Alþjóðlegi mannauðsdagurinn er 20. maí 2021. Í samstarfi við Mannauð, félags mannauðsfólks á Íslandi er þátturinn því með aðeins öðruvísi sniði en vanalega en hann er sérstaklega tileinkaður þessum degi. Ég fékk til mín alveg frábæra gesti sem allir eiga það sameiginlegt að starfa við mannauðsmál og eru núverandi og fyrrverandi formenn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi en það eru Ásdís Eir sem er núverandi formaður félagsins, Ketill Berg, Dröfn, Ella Sigga og Brynjar Már. Í þættinum ræðum við meðal annars hverjar eru helstu áherslur í mannauðsmálum í dag og hvert þróun í mannauðsmálum mun leiða okkur næstu árin.
Einnig er hægt að nálgast vidjó útgáfu af þessum þætti á heimasíðu félagsins, mannaudsfolk.is. Mæli með að kíkja á það, við svínlúkkum öll í stúdíóinu hjá Akademias :)
Þátturinn er í boði Akademias, Alfreð, 50skills og Moodup.
Í Akademias stúdíóinu er Sigríður Harðardóttir sem er sviðsstjóri mannauðs- og gæðamála hjá Strætó. Við ræddum meðal annars starfsþjálfunarkerfi fyrir vagnstjóra, öflugt fræðslustarf þar sem áhersla er lögð á endurmenntun vagnstjóra og hvernig er hægt að viðhalda þeirra þekkingu og færni í starfi, streita og álag kom til tals þar sem þau fóru í áhugaverða vinnu í tengslum við að draga úr þessum þáttum í starfsumhverfinu í samstarfi við VÍS og svo fórum við yfir styttingu vinnuvikunnar í tengslum við vaktavinnu.
Þátturinn er í boði Akademias og 50skills.
Góðir gestir, næsti viðmælandi er ekki af verri endanum. Hann heitir Ketill og er mannauðsstjóri hjá Marel. Ég bauð Ketil velkominn í Akademias stúdíóið þar sem við náðum heldur betur góðu spjalli. Ketill er fyrsti viðmælandi minn sem nær að tala í tæpa tvo klukkutíma en ekki örvænta, þetta er svo fróðlegt spjall að það nær bara varla nokkurri átt. Ketill segir okkur frá hverjar áherslurnar eru hjá Marel, hvernig er að vinna hjá fyrirtæki á alþjóðavísu með 7.500 starfsmenn, hvernig þau tókust á við Covid, afnámu stimpilklukkuna, kláruðu styttingu vinnuvikunnar á tveimur 2 tíma fundum, hvað skiptir mestu máli í vinnuumhverfinu og svo kemur jafnréttisumræðan sterk inn í lokin.
Þátturinn er í boði Akademias og Alfreð.
Við Elín hjá Hugarheimi skelltum okkur í Akademias stúdíóið. Hugarheimur sérhæfir sig meðal annars í að sálfélagslegu þáttunum í vinnuumhverfinu eins og streitu, kulnun, álagi og öðru áreiti sem hefur áhrif á líðan okkar bæði í starfi og einkalífi. Við ræddum einmitt þessa þætti betur og fórum yfir það hvernig er hægt að búa til aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs og hvernig við getum náð betri hvíld án þess endilega að sofa meira. Stytting vinnuvikunnar kom einnig til tals og þá sérstaklega í tengslum við að starfsfólk þarf að vera duglegra að nýta frítímann sinn til þess að sinna sjálfum sér. Einnig ræddum við mikið um hvernig stjórnendur og starfsfólk bera ábyrgð á þessum sálfélagslegu þáttum í starfi, hvaða skilaboð eru stjórnendur að senda, hvernig getur starfsfólk verið virkara og fengið aðra með sér í lið.
Þátturinn er í boði 50skills og Akademias.
Gestur minn að þessu sinni er Dröfn Guðmundsdóttir sem er mannauðsstjóri hjá Origo. Fyrirtækið hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið og sérstaklega hvað varðar jafnréttismál og starfsánægju á tímum Covid. Við ræddum það hvernig er hægt að auka þátttöku kvenna í tæknigeiranum, hvaða áhrif fyrirmyndir hafa í þessum efnum og hvaða skref þarf að taka til þess að það beri árangur. Einnig ræddum við starfsánægju sem hefur mælst ótrúlega góð hjá þeim og þar skiptir miklu máli að upplýsa vel og að stjórnendur haldi vel utan um sitt fólk. Nóg af skemmtilegu spjalli, gjöriði svo vel.
Þátturinn er í boði Akademias - akademias.is.
From the publisher's feed