Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Saga Svíþjóðar í tónverkum
    Um þessar mundir er verið að sýna í sjónvarpinu þáttaröðina „Sögu Svíþjóðar“ – „Historien om Sverige“, þar sem saga Svíþjóðar er rakin frá ísöld til okkar daga. Í þættinum "Á tónsviðinu" í dag verður hluti af sögu Svíþjóðar rakinn í tónverkum, flutt verða atriði úr tónsmíðum sem snúast um atburði úr sögu Svía. Þar má nefna hljómsveitarsvítuna "Gústaf II Adólf" eftir Hugo Alfvén, söngvaflokkinn "Úr vísum Eiríks konungs" eftir Ture Rangström og óperuna "Grímudansleik" eftir Giuseppe Verdi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Pétur Magnússon.
    51 min
  • Október
    Í þættinum verða flutt tónverk sem eiga að lýsa októbermánuði. Þar má nefna októberkaflann úr ballettinum "Tólf með póstvagninum" eftir Knudåge Riisager, kaflann "Októberhátíðin" úr tónaljóðinu "Rómverskar hátíðir" eftir Ottorino Respighi og jazztónsmíðina "Undir októberlaufi" sem Carl Möller samdi við ljóð eftir Matthías Johannessen. Einnig verður fluttur söngurinn "October doth before us go" eftir Christian Walter Catsanos, en þar er október lýst sem vormánuði því árstíðirnar á suðurhveli jarðar eru þveröfugar við árstíðir hér á norðurhveli. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.
    52 min
  • Anton Bruckner
    Á þessu ári eru liðin 200 ár frá fæðingu tónskáldsins Antons Bruckner, en hann fæddist í þorpinu Ansfelden í Austurríki 3. september 1824. Í tilefni af þessu verður þátturinn helgaður Bruckner að þessu sinni. Hann var eitt af merkustu tónskáldum 19. aldar, en samdi einkum verk af tvennu tagi: annars vegar sinfóníur, hins vegar trúarleg kórverk. Í þættinum verða leiknir kaflar úr sinfóníu hans nr.4 og strengjakvintett í F-dúr auk stuttra söngverka. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.
    52 min