Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Emma Sandor
    Emma Sandor fæddist í Ungverjalandi árið 1863. Hún fékk góða tónlistarmenntun og byrjaði ung að semja tónlist, en er þó þekktari fyrir samband sitt við önnur tónskáld, einkum þó Zoltán Kodály sem hún giftist árið 1910. Tónskáldin Béla Bartók og Ernst von Dohnanyi voru einnig góðir vinir hennar, Bartók tileinkaði henni Rapsódíu sína ópus 1 fyrir píanó og Dohnanyi samdi tilbrigði við stef eftir hana. Í þættinum "Á tónsviðinu" verður flutt tónlist eftir Emmu sjálfa og tónverk henni tengd eftir Bartók, Dohnanyi og Kodály.
    49 min
  • Tristan og Ísól
    Ein frægasta sögn miðalda er sagan um elskendurna Tristan og Ísól. Í þættinum verpa skoðaðar mismunandi myndir sagnarinnar og flutt tónlist sem tengist henni. Þar á meðal er lag Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar við hið íslenska Tristrams kvæði frá 15. öld, Harmljóð úr tónverkinu „Tristan“ eftir Hans Werner Henze og kórsöngur úr óratóríunni „Le vin herbé“ (Töfradrykkurinn) eftir Frank Martin. Einnig verður flutt aría úr frægasta tónverki sem byggt hefur verið á sögninni, óperunni „Tristan og Ísól“ eftir Richard Wagner. Umsjón með þættinum hefur Una margrét Jónsdóttir og lesari er Melkorka Ólafsdóttir.
    52 min
  • Dimmalimm og Muggur
    Á þessu ári er liðin öld frá andláti listamannsins Guðmundar Thorsteinssonar sem einnig nefndist Muggur. Í tilefni af því verður þátturinn “Á tónsviðinu” fim. 5. september, helgaður tónlist við hið alþekkta ævintýri Muggs “Dimmalimm”. Muggur samdi og myndskreytti ævintýrið árið 1921 handa lítilli frænku sinni, Helgu Egilsson, sem kölluð var Dimmalimm. Í sögu Muggs er Dimmalimm lítil kóngsdóttir sem fer út úr hallargarðinum og hittir svan. Milli hennar og svansins tekst innileg vinátta. Árið 1954 var sýndur í Þjóðleikhúsinu ballett byggður á sögunni um Dimmalimm við tónlist eftir Karl O. Runólfsson. Um svipað leyti samdi Skúli Halldórsson einnig tónlist við ”Dimmalimm”. Árið 1970 skrifaði hin upprunalega Dimmalimm, Helga Egilsson, leikrit upp úr sögu frænda síns og var það sýnt í Þjóðleikhúsinu. Atli Heimir Sveinsson samdi tónlist við leikritið og hafa sum tónlistaratriði Atla úr leikritinu orðið þekkt, einkum Intermezzó nr.2 úr ”Dimmalimm” sem oft er leikið eitt og sér. Loks skal þess getið að árið 2019 flutti Kómedíuleikhúsið brúðuleiksýningu byggða á Dimmalimm og samdi Björn Thoroddsen tónlist fyrir hana. Umsjón með þættinum ”Á tónsviðinu” hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson, Kristján Guðjónsson og Melkorka Ólafsdóttir.
    52 min
  • Lyndiseinkunnir Carls Nielsen
    Í fornöld komu læknar fram með þá hugmynd að fjórar lyndiseinkunnir stjórnuðu persónugerð allra manna: léttlyndi, þunglyndi, rólyndi og ákaflyndi. Lengi eimdi eftir af þessum kenningum og á árunum 1901-2 samdi danska tónskáldið Carl Nielsen sinfóníu sem hann kallaði "Lyndiseinkunnirnar fjórar" (De fire Temperamenter). Sinfónían var í fjórum þáttum og átti hver þeirra að lýsa einni lyndiseinkunn. Í þættinum "Á tónsviðinu" verða leiknir tveir þættir úr sinfóníunni og einnig verður fluttur söngvaflokkur sem Carl Maria von Weber samdi árið 1816, en þar er því lýst hvernig fjórir menn, hver með sína lyndiseinkunn, bregðast misjafnlega við vonbrigðum í ástamálum. Gamanópera Mozarts, "Leikhússtjórinn" kemur einnig við sögu, en þar keppa tvær ólíkar söngkonur um sama hlutverkið.
    Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Mozart
    Tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart fæddist árið 1756. Hann var því uppi á tíma Upplýsingarinnar svokölluðu, en hún fólst í breyttum viðhorfum sem margir heimspekingar, rithöfundar og stjórnmálamenn boðuðu á 18. öld. Þekking og vísindi áttu að koma í staðinn fyrir hjátrú eða trúarkreddur, miskunnsemi og mannúð átti að koma í stað grimmilegra refsinga, og einnig var boðað aukið frelsi og jafnrétti. Viðhorf Upplýsingarstefnunnar setja svip sinn á margar af tónsmíðum Mozarts og má þar til dæmis nefna óperurnar "Brúðkaup Fígarós", "La clemenza di Tito" og "Töfraflautuna". Í þættinum verða leiknar tónsmíðar eftir Mozart þar sem finna má áhrif frá Upplýsingarstefnunni. Einnig verður fjallað um kynni Magnúsar Stephensen af óperunni "Töfraflautunni" árið 1826, en Magnús var einmitt helsti forkólfur Upplýsingarstefnunnar á Íslandi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    52 min
  • Jón Arason
    Jón Arason, síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, er einn frægasti biskup í sögu landsins, en hann var hálshöggvinn í Skálholti árið 1550 eftir að hafa barist hatrammlega gegn því að mótmælendatrú tæki við af kaþólsku. Á þessu ári eru 500 ár liðin frá því að Jón var vígður biskup árið 1524 og í tilefni af því verður þátturinn „Á tónsviðinu“, fim. 27. júní, helgaður tónlist sem tengist sögu Jóns. Matthías Jochumsson samdi leikrit um Jón Arason undir lok 19. aldar og í þættinum verður flutt tónlist úr leikritinu eftir þrjá höfunda: Karl O. Runólfsson, Gunnar Róbertsson Hansen og Þorkel Sigurbjörnsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    52 min