Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Í þættinum verða fluttar tónsmíðar sem tengjast bláa litnum, en þar má nefna „Rhapsody in Blue“ eftir George Gershwin, valsinn „Dóná svo blá“ eftir Johann Strauss og „L'aspiration vers l'azur“ (Þrá eftir bláma) eftir Zigmund Stojowski. Einnig verða flutt sönglög eftir Robert Franz, Johannes Brahms, Skúla Halldórsson og fleiri höfunda. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    52 min
  • Beethoven í vorskapi
    Tónskáldið Ludwig van Beethoven var mikill náttúruunnandi og fór oft í langar gönguferðir um skóga og engi. Hlustendur fá að kynnast Beethoven í vorskapi, leiknar verða tónsmíðar eftir hann sem tengjast vori og guðsgrænni náttúrunni. Meðal annars verða fluttir þættir úr fiðlusónötu Beethovens nr. 5 sem kölluð er Vorsónatan, sinfóníu hans nr. 6 sem nefnist Pastoralsinfónían og píanósónötu nr. 15 í D-dúr sem kölluð er Pastoralsónatan. Orðið „Pastorale" þýðir „hjarðljóð" og er oft notað um tónlist sem á að lýsa fagurri náttúru. Einnig verða fluttir nokkrir vorsöngvar eftir Beethoven. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Píanósónata nr.23 í f-moll eftir Ludwig van Beethoven er kölluð Appassionata-sónatan, en orðið „appassionata" er ítalskt og merkir „ástríðufull". Beethoven samdi sónötuna á árunum 1804-1806 og nemandi hans og vinur, Ferdinand Ries, sagði frá því síðar að þeir hefðu verið tveir saman á göngu í skógi þegar Beethoven fékk allt í einu hugmynd að stefi fyrir lokaþátt sónötunnar. Þegar þeir komu heim til Beethovens flýtti tónskáldið sér að píanóinu án þess að taka af sér hattinn og hamaðist við lokakafla sónötunnar í klukkutíma án þess að taka eftir því að Ries var þarna ennþá. Leikin verður hljóðritun af sónötunni í flutningi Halldórs Haraldssonar. Þá verða flutt þrjú verk eftir aðra höfunda sem einnig hafa viðurnefnið „appassionata", meðal annars 1. kafli Appassionata-sónötu sem tékkneska tónskáldið Víteslava Kaprálová samdi árið 1933. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    47 min

  • Risinn eigingjarni
    Í þættinum verður fjallað um tvö tónverk sem byggð eru á sögunni „Risinn eigingjarni" (The Selfish Giant) eftir Oscar Wilde. Sagan kom út í bók árið 1888 og fjallar um risa sem á fallegan blómagarð. Hann vill ekki lofa börnum að leika sér í honum og byggir múrvegg í kringum garðinn. En þegar börnin hætta að koma í garðinn vill vorið ekki koma þangað heldur svo veturinn ríkir stöðugt í garði risans. Dag einn gerist nokkuð sem kemur risanum á óvart og breytir afstöðu hans. Tónverkin tvö, sem byggð eru á sögunni, eru eftir Penelope Thwaites og Eric Coates. Verk Thwaites er frá árinu 1968, en verk Coates frá árinu 1925. Í þættinum verða lesin brot úr sögu Wildes í þýðingu eftir Þórodd Guðmundsson frá Sandi. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Tvö verk eftir Joseph Haydn
    Í þættinum verður sjónum beint að tveimur verkum eftir Joseph Haydn sem hafa trúarleg viðurnefni, en eiga þó hugsanlegt ekkert skylt við trúmál. Þetta eru sinfónía nr.49 í f-moll og píanótríó í es-moll Hob. XV/31. Sinfónían hefur viðurnefnið „La Passione", það er að segja „Passían" eða „Píslargangan" og var áður talið að hinn tregafulli 1. kafli hennar vísaði til píslargöngu Krists, en nú telja tónlistarfræðingar að það sé misskilningur. Píanótríóið hefur viðurnefnið „Jakobsstiginn" og er þar vísað til frásagnar Biblíunnar af því þegar Jakob dreymdi stiga sem náði til himins og englar gengu upp og niður. Viðurnefnið er komið frá Haydn sjálfum, en tilgangurinn var þó ekki trúarlegur heldur var hann að glettast við fiðluleikara nokkurn sem átti stundum í erfiðleikum með háu tónana. Seinni hluti tónverksins fer nefnilega nokkuð hátt upp tónstigann sem Haydn líkti þarna við Jakobsstigann. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Tónskáldið Bedrich Smetana, seinni þáttur
    Í þættinum fyrir viku var fjallað um tékkneska tónskáldið Bedrich Smetana í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu hans. Í þessum þætti verður þráðurinn tekinn upp þar sem frá var horfið, sagt verður frá síðustu tíu árunum í ævi Smetana, 1875-1884, og leikin tónverk eftir hann frá þeim tíma. Þetta var erfiður tími fyrir Smetana, hann var orðinn heyrnarlaus og heilsu hans hrakaði stöðugt. Engu að síður samdi hann sum af bestu verkum sínum á þessum árum, svo sem óperuna „Kossinn" og strengjakvartettinn „Úr lífi mínu". Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Jónatan Garðarsson, Anna Marsibil Clausen og Guðmundur Pálsson.
    51 min
  • Tónskáldið Bedrich Semetana
    Tónskáldið Bedrich Smetana hefur verið kallaður faðir tékkneskrar tónlistar og hljómsveitarverk hans, „Moldá“, er alþekkt. Hann fæddist 2. mars 1824 og því eru á þessu ári 200 ár frá fæðingu hans. Í tilefni af því verður þátturinn tileinkaður tónlist hans og einnig samsvarandi þáttur í næstu viku, 14. mars. Í þáttunum verður æviferill Smetana rakinn og flutt verða tónverk eftir hann. Meðal tónsmíða sem fluttar verða í þættinum í dag eru þáttur úr píanótríói sem Smetana samdi árið 1855 til minningar um Bedrisku litlu dóttur sína, einnig verður flutt aría úr hinni vinsælu óperu „Seldu brúðinni" og að lokum hið fræga tónaljóð „Moldá". Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min
  • Hlaupársdagur
    Þátturinn verður helgaður deginum sjálfum, hlaupársdegi. Í þættinum koma við sögu fjórir listamenn sem fæddir eru á hlaupársdag: tónskáldið Gioacchino Rossini sem fæddist 29. febrúar 1792, hljómsveitarstjórinn Jimmy Dorsey sem fæddist sama dag 1904, söngkonan Dinah Shore sem fæddist á hlaupársdag 1916 og leikarinn Klemenz Jónsson sem fæddist 29. febrúar 1920. Einnig verða flutt atriði úr óperettunni „The Pirates of Penzance“ (Sjóræningjarnir frá Penzance) sem bresku höfundarnir Gilbert og Sullivan sömdu árið 1879. Hvorugur þeirra var fæddur á hlaupársdag, en hlaupársdagur hefur úrslitaáhrif á atburðarásina í óperettunni. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min