Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Salóme
    Salóme dóttir Heródíasar drottningar er fræg persóna úr Nýja testamenti Biblíunnar. Þar segir frá því að hún hafi dansað í afmælisveislu stjúpföður sínar, Heródesar konungs, og hann hafi orðið svo hrifinn að hann hafi leyft Salóme að óska sér hvers sem hún vildi. Heródías móðir hennar fékk hana þá til þess að biðja um höfuð Jóhannesar skírara, en Heródías hataði Jóhannes af því að hann hafði sagt hjónaband þeirra Heródesar ólöglegt. Varð þetta til þess að Jóhannes skírari var hálshöggvinn. Sagan hefur orðið mörgum skáldum og listamönnum hugleikin, einkum er frægt leikrit sem Oscar Wilde samdi árið 1893 og byggði á sögunni, en hann setur þar fram þá kenningu að Salóme hafi verið ástfangin af Jóhannesi skírara. Í þættinum verða flutt tónverk sem tengjast sögunni um Salóme: aría úr óperunni „Heródías" eftir Jules Massenet, þættir úr „Harmleiknum um Salóme" ballettsvítu eftir Florent Schmitt og aría úr óperunni „Salóme" eftir Richard Strauss, en hún er byggð á leikriti Oscars Wilde. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Jónatan Garðarsson og Arnhildur Hálfdánardóttir.
    50 min
  • Tónskáldið og víóluleikarinn Rebecca Clarke
    Í þættinum verður fjallað um tónskáldið og vióluleikarann Rebeccu Clarke sem fæddist í Englandi 1886 og dó í Bandaríkjunum 1979. Rebecca Clarke samdi meðal annars víólusónötu sem þykir eitt af bestu víólutónverkum 20. aldar. Þegar víólusónata hennar kom fyrst fram í samkeppni í Bandaríkjunum árið 1919 áttu sumir gagnrýnendur erfitt með að trúa því að hún væri eftir konu og gátu sér þess til að karlmaður hefði samið hana undir dulnefni. Rebecca Clarke samdi fleiri kammerverk og mörg sönglög. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Lifandi hlutir í sögum
    Í sumum sögum koma fyrir lifandi hlutir. Þetta á einkum við um barnabækur, en þó má einnig finna lífi gædda hluti í skáldverkum fyrir fullorðna. Hugmyndin um lifandi hluti er gömul og má sem dæmi nefna Flóamanna sögu, sem rituð er í kringum 1300, en þar tala tvö skip saman. Og þó að fólk viti fullvel að hlutir eru dauðir geta hlutir sem geyma dýrmætar minningar orðið eins og lifandi í augum eigandans. Í þættinum verða fluttar nokkrar tónsmíðar þar sem lifandi hlutir koma við sögu og lesið verður úr fáeinum slíkum skáldverkum. Meðal annars verður flutt arían „Vecchia zimarra" sem heimspekingurinn Colline syngur til frakkans síns í óperu Puccinis „La Boheme", einnig verður flutt atriði úr óperunni „Barnið og galdrarnir" eftir Maurice Ravel og lag úr söngvaflokknum „Winter words" eftir Benjamin Britten. Af rithöfundum sem koma við sögu í þættinum má nefna H.C. Andersen, Charles Dickens, Ólaf Jóhann Sigurðsson og Elsu Beskow. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Jónatan Garðarsson og Halla Harðardóttir.
    52 min