Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Tónverk byggt á smásögunni Stórhríð
    Tónverkið sem verður þungamiðja þáttarins í dag er eftir rússneska tónskáldið Georgy Sviridov og byggt á smásögunni „Stórhríð" eftir Alexander Púskín. Smásaga Púskíns kom út árið 1831 og þykir snilldarverk, hún er sérkennileg blanda af harmleik og farsa. Elskendur ætla að hlaupast á brott saman og giftast á laun, en örlög þeirra beggja gjörbreytast þegar unnustinn villist í stórhríð á leið til kirkjunnar. Árið 1964 var gerð kvikmynd eftir þessari sögu og samdi Georgy Sviridov tónlist við hana. Síðar samdi hann hljómsveitarsvítu upp úr kvikmyndatónlistinni og kaflar úr henni verða leiknir í þættinum. Einnig verður fluttur kafli úr sinfóníu nr.5 eftir Joachim Raff, en sinfónían hefur yfirskriftina "Lenore" og tengist sögu Púskíns óbeint. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðmundur Pálsson.
    50 min
  • Jón Trausti 150 ára
    Á þessu ári eru 150 ár frá fæðingu skáldsins Jóns Trausta. Skírnarnafn hans var Guðmundur Magnússon, hann fæddist 1873 og dó 1918. Jón Trausti var einn helsti skáldsagnahöfundur Íslands á fyrstu tveimur áratugum 20. aldar, og má nefna sögur hans „Höllu", „Heiðarbýlið", „Leysingu" og „Önnu frá Stóruborg". Einnig hafa verið samin lög við mörg ljóð hans, sum alþekkt eins og „Draumalandið" eftir Sigfús Einarsson og „Ég vil elska mitt land" eftir Bjarna Þorsteinsson. Í þættinum verður flutt tónlist við ljóð Jóns Trausta og einnig verður spjallað við Hólmstein Eið Hólmsteinsson, en hann lærði að lesa fjögurra ára gamall árið 1976 og bókin sem var notuð til lestrarkennslunnar var skáldsagan „Halla" eftir Jón Trausta, þótt fáum dytti í hug að kalla hana barnabók. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Gunnar Hansson.
    50 min
  • 26.10.2023
    Í þessum þætti verða nokkur tónverk leikin fjórhent á píanó. Þar á meðal er sónata í C-dúr K.19d eftir Wolfgang Amadeus Mozart, en sagt er að Mozart hafi samið sónötuna 9 ára gamall árið 1765, sennilega fyrir sig og Nannerl systur sína til að leika saman. Ekki eru þó allir fræðimenn sannfærðir um að sónatan sé í raun og veru eftir Mozart. Einnig verður flutt Grand rondeau [frb. gran rondó] í A-dúr eftir Franz Schubert, en það var eitt síðasta verkið sem Schubert samdi fyrir andlát sitt 1828. Þá verða leiknir Þrír þættir í peruformi sem Erik Satie samdi árið 1903. Satie valdi verkum sínum oft sérkennileg nöfn. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Í þessum þætti verða nokkur tónverk leikin fjórhent á píanó. Þar á meðal er sónata í C-dúr K.19d eftir Wolfgang Amadeus Mozart, en sagt er að Mozart hafi samið sónötuna 9 ára gamall árið 1765, sennilega fyrir sig og Nannerl systur sína til að leika saman. Ekki eru þó allir fræðimenn sannfærðir um að sónatan sé í raun og veru eftir Mozart. Einnig verður flutt Grand rondeau [frb. gran rondó] í A-dúr eftir Franz Schubert, en það var eitt síðasta verkið sem Schubert samdi fyrir andlát sitt 1828. Þá verða leiknir Þrír þættir í peruformi sem Erik Satie samdi árið 1903. Satie valdi verkum sínum oft sérkennileg nöfn. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Tónlist eftir Emile Mayer
    Í þættinum verður flutt tónlist eftir Emilie Mayer sem fæddist í Friedland í Þýskalandi árið 1812 og lést 1883. Hún var mikilvirt tónskáld og samdi meðal annars sjö strengjakvartetta og átta sinfóníur þótt það væri algengt viðhorf á 19. öld að konur réðu alls ekki við svo stór form. Fluttur verður 1. kafli úr sinfóníu nr. 4 í h-moll eftir Emilie Mayer og Faust-forleikur hennar ópus 46. Einnig verða flutt sönglög eftir hana, þar á meðal lag við hið fræga ljóð Goethes: „Álfakóngurinn“. Til samanburðar verða einnig flutt lög eftir Franz Schubert og Carl Loewe við sama ljóð, en Loewe var tónsmiðakennari Emilie Mayer. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    50 min
  • Veitingastaðir og krár í skáldverkum og tónlist
    Veitingastaðir og krár koma oft fyrir í skáldverkum og tónverkum. Í þættinum verður flutt tónlist sem tengist veitingastöðum. Meðal annars verður flutt atriði úr óperunni „Á Galtarhöfðinu“ (At the Boar's Head) eftir Gustav Holst, en óperan er byggð á atriði í leikritinu „Hinrik IV“ eftir William Shakespeare. Þar sitja Jón Falstaff og vinir hans á kránni Galtarhöfðinu. Söngur Carls Michaels Bellmans um 18. aldar krá í Stokkhólmi fær einnig að hljóma, annað veitingahús í Stokkhólmi, „Den gyldene freden“ kemur við sögu í laginu „Portugis“ eftir Evert Taube og í lok þáttarins verður sest inn á krána „Bikarinn“ sem kemur fyrir í leikritinu „Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni“ eftir Bertolt Brecht. Þá verður lesið brot úr sögunni „Kráarhaldarinn í Pidalgo“ eftir Gottfried Bomans. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Guðni Tómasson og Anna Marsibil Clausen.
    50 min
  • Tré sem tengjast tónlist
    Í þættinum verður fjallað um raunveruleg tré sem tengjast sögu tónlistar og skáldskapar. Í hverfinu Barn Elms í Lundúnum vex 340 ára gamall hlynur sem hugsanlega hefur veitt tónskáldinu Händel innblástur að óperuaríu hans „Ombra mai fu“. Arían er þekkt sem „Largo eftir Händel“, en er í rauninni lofgjörðaróður um hlyn. Vitað er að Händel bjó í hverfinu Barn Elms árið 1712 og þá var hlynurinn u.þ.b. 30 ára gamall. Í Þýskalandi og Tékklandi má finna nokkur tré sem kennd eru við skáldið Goethe og kölluð Goethe-eikur því vitað að skáldið þekkti þessi tré. Í Perthshire-héraði í Skotlandi er 600 ára gamalt tré sem kallað er Macbeth-eikin, hluti af Birnam-skógi sem nefndur er í leikritinu „Macbeth“ eftir William Shakespeare. Shakespeare gæti hafa séð þetta tré því talið er að hann hafi komið á þessar slóðir árið 1589. Og í Hallormsstaðaskógi hér á Íslandi má finna birkitré sem talið er hafa gefið Páli Ólafssyni skáldi hugmyndina að ljóðinu „Hríslan og lækurinn“, en Ingi T. Lárusson samdi við það þekkt lag. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    49 min
  • Händel á háaloftinu
    Tónskáldið Georg Friedrich Händel fæddist árið 1685 í borginni Halle í Þýskalandi og dó árið 1759 í Lundúnum, höfuðborg Englands. Aðeins ári eftir andlát hans kom út ævisaga hans eftir John Mainwaring. Þar kemur fram að á bernskuárum Händels hafi faðir hans verið mótfallinn því að hann legði stund á tónlist og bannað honum að snerta nokkurt hljóðfæri. Händel litla tókst samt að fela lítið klavíkord uppi á háalofti og æfði sig á það á næturnar þegar hitt fólkið svaf. Nýlega kom út geislaplata sem ber heitið "Händel´s Attick" eða "Háaloftið hans Händels". Þar leikur Julian Perkins á klavíkord tónverk sem Händel litli gæti hafa spilað á háaloftinu. Í þættinum "Á tónsviðinu" verður meðal annars leikin tónlist af þessum hljómdiski og koma við sögu tónskáld eins og Wolfgang Ebner, Johann Caspar Kerll og Friedrich Wilhelm Zachow, en hinn síðastnefndi varð kennari Händels þegar faðir hans leyfði honum loksins að stunda tónlistarnám. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    50 min