Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Tónlist við kvæði sr. Ólafs Jónssonar á Söndum
    Í þættinum verður flutt tónlist við kvæði eftir sr. Ólaf Jónsson á Söndum sem fæddist 1560 og dó 1627. Hann orti mörg kvæði, bæði trúarleg og veraldleg, og oft fylgja íslensk þjóðlög ljóðum Ólafs í handritum. Eitt þekktasta veraldlega kvæði hans er „Eitt sinn fór ég yfir Rín“ sem er reyndar þýðing á þýsku ljóði. Flutt verður tónlist eftir Gunnstein Ólafsson, Tryggva M. Baldvinsson, Báru Grímsdóttur, Huga Guðmundsson, Önnu S. Þorvaldsdóttur og Þuríði Jónsdóttur.
    Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Tónlist eftir Carl Nielsen
    Í þættinum verður leikin tónlist eftir Carl Nielsen, eitt merkasta tónskáld í tónlistarsögu Dana. Hann fæddist árið 1865 og lést 1931. Meðal annars verður fluttur kafli úr fyrstu sinfóníu Nielsens sem hneykslaði suma af því að hún var í g-moll, en endaði í C-dúr. Einnig verður fluttur flautukonsert Nielsens í hljóðritun sem gerð var á tónleikum í Háskólabíói 1996, en þar leikur Hallfríður Ólafsdóttir einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Konurnar hefna s'in
    Flestir óperuunnendur kannast við óperuna „Cosi fan tutte" eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Í henni leggja tveir ungir menn gildrur fyrir unnustur sínar til þess að komast að því hve trúar þær eru, en þeir hafa veðjað við eldri mann, Don Alonso, um það að stúlkurnar muni aldrei svíkja þá. Þeir verða fyrir vonbrigðum því báðar stúlkurnar falla á prófinu. Óperan „Cosi fan tutte" var frumsýnd 1790, en það er ekki á allra vitorði að til er önnur ópera, 15 árum eldri, þar sem svipuð saga er sögð nema hvað þar eru það karlmennirnir sem svíkja og konurnar sem koma upp um ótryggð þeirra. Þetta er óperan Les femmes vengées" eða „Konurnar hefna sín" eftir franska tónskáldið André Danican Philidor. Hugsanlegt er að Mozart hafi séð óperuna þegar hann kom til Parísar 1778. Í þættinum verða flutt atriði úr báðum óperunum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Madame Butterfly, Madame Chrysanthème og Mister Butterfly
    Í Íslensku óperunni standa nú yfir sýningar á óperunni „Madama Butterfly“ eftir Giacomo Puccini. Í þættinum verður fjallað svolítið um þessa óperu, en einnig verður flutt tónlist úr þremur söngverkum sem tengjast henni: óperunum „Madame Chrysanthème“ eftir André Messager og „Mister Butterfly“ eftir Ken Roberts, og söngleiknum „Miss Saigon“ eftir Claude-Michel Schönberg. Einnig verður lesið upp úr sjálfsævisögulegu skáldsögunni „Madame Chrysanthème“ eftir Pierre Loti, en John Luther Long var undir áhrifum frá þeirri sögu þegar hann samdi smásöguna „Madame Butterfly“ árið 1898. Síðarnefnda smásagan er grundvöllur óperunnar „Madama Butterfly“ eftir Puccini. Pierre Loti bjó með ungri japanskri stúlku um tíma eins og sjóliðsforinginn Pinkerton gerir í óperunni, en það samband, sem Loti segir frá í sögu sinni, var samt mjög ólíkt sambandi Pinkertons við Butterfly. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jónatan Garðarsson.
    Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • 02.03.2023
    Í þættinum verður flutt svítan „Pièces de concert“ (Konsertþættir) eftir franska barokktónskáldið François Couperin. Couperin fæddist í París 1668, hann var tónlistarmaður við hirð Loðvíks XIV Frakkakonungs og samdi mörg verk fyrir sembal. „Konsertþættir“ eru í útsetningu eftir Paul Bazelaire, Gunnar Kvaran leikur á selló og Elísabet Waage á hörpu. Einnig verður flutt píanósvítan „Le Tombeau de Couperin“ (Í minningu Couperins) sem Maurice Ravel samdi á árunum 1914-1917. Anne Queffelec leikur á píanó. Svítan er ekki aðeins tileinkuð minningu Couperins, heldur líka vina Ravels sem féllu í heimsstyrjöldinni fyrri. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Í þættinum verður flutt svítan „Pièces de concert“ (Konsertþættir) eftir franska barokktónskáldið François Couperin. Couperin fæddist í París 1668, hann var tónlistarmaður við hirð Loðvíks XIV Frakkakonungs og samdi mörg verk fyrir sembal. „Konsertþættir“ eru í útsetningu eftir Paul Bazelaire, Gunnar Kvaran leikur á selló og Elísabet Waage á hörpu. Einnig verður flutt píanósvítan „Le Tombeau de Couperin“ (Í minningu Couperins) sem Maurice Ravel samdi á árunum 1914-1917. Anne Queffelec leikur á píanó. Svítan er ekki aðeins tileinkuð minningu Couperins, heldur líka vina Ravels sem féllu í heimsstyrjöldinni fyrri. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • 26.01.2023
    Þess er nú minnst að 50 ár eru liðin frá eldgosinu í Vestmannaeyjum 23. janúar 1973. Í tilefni af því verður leikin tónlist sem tengist gosinu í þættinum. Fluttur verður hljómsveitarforleikur Skúla Halldórssonar „Gos í Heimaey“, einnig nokkur lög af hljómplötunni „Eyjaliðið“ sem kom út 1973 og ballaða eftir Chopin, hljóðrituð á tónleikum Vladimirs Ashkenazy til styrktar Vestmannaeyingum 16. apríl 1973. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Þess er nú minnst að 50 ár eru liðin frá eldgosinu í Vestmannaeyjum 23. janúar 1973. Í tilefni af því verður leikin tónlist sem tengist gosinu í þættinum. Fluttur verður hljómsveitarforleikur Skúla Halldórssonar „Gos í Heimaey“, einnig nokkur lög af hljómplötunni „Eyjaliðið“ sem kom út 1973 og ballaða eftir Chopin, hljóðrituð á tónleikum Vladimirs Ashkenazy til styrktar Vestmannaeyingum 16. apríl 1973. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Sinfoníur tengdar kennurum
    Í þættinum verða flutt tvö tónverk sem tengjast kennurum, annars vegar Sinfónía nr. 55 í Es-dúr eftir Joseph Haydn, verk sem kallað er Skólakennarasinfónían, hins vegar gamansama kantatan „Der Schulmeister" (Skólakennarinn) sem áður var eignuð Georg Philipp Telemann, en er nú talin vera eftir Christoph Ludwig Fehre sem fæddist 1718 og dó 1772. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Tónsmíðar Carls Reinecke og nemenda hans
    Þýska tónskáldið Carl Reinecke var í rúm 40 ár kennari við Tónlistarháskólann í Leipzig, frá 1860 til 1902. Mörg þekkt tónskáld voru nemendur hans og má þar nefna Edvard Grieg, Leos Janácek og Max Bruch. Nýlega kom út í Þýskalandi geislaplata þar sem sönghópurinn Amarcord flytur lög eftir Reinecke og nokkra nemendur hans, þar á meðal Íslendinginn Sveinbjörn Sveinbjörnsson, höfund Þjóðsöngsins „Ó, Guð vors lands“. Sveinbjörn stundaði píanónám í einkatímum hjá Reinecke veturinn 1872-1873 og var fyrstur Íslendinga til þess að stunda tónlistarnám hjá frægum kennara í menningarborginni Leipzig. Í þættinum verða fluttar tónsmíðar eftir Carl Reinecke og nemendur hans, bæði af nýju geislaplötunni og í öðrum hljóðritum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    50 min