Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Í þættinum verða fluttar þrjár danskar tónsmíðar sem samdar eru undir áhrifum frá íslenskum fornsögum eða -kvæðum. Fluttur verður inngangur að kantötunni „Baldurs drøm“ eftir Niels Wilhelm Gade, verki sem sækir efni í norræna goðafræði, söngvaflokkurinn „Gudruns sorg“ eftir Peter Heise, sem saminn er við danska þýðingu á Guðrúnarkviðu hinni fyrstu, og hljómsveitarverkið „Saga-Drøm“ eftir Carl Nielsen, en þar er vísað til draums Gunnars á Hlíðarenda sem sagt er frá í Brennu-Njáls sögu. Einnig verða leiknar tónsmíðar eftir Jón Leifs. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Gunnar Hansson og Melkorka Ólafsdóttir.
    50 min
  • Hirðhljómsveit kjörfustans í Mannheim
    Í þættinum er fjallað um Hirðhljómsveit kjörfurstans í Mannheim sem var ein besta hljómsveit Evrópu á 18. öld. Hún var meðal annars þekkt fyrir ýmsar nýjungar og talað var um Mannheim-crescendo og Mannheim-flugelda í tónlist. Af tónskáldum sem tengdust hljómsveitinni má nefna Johann Stamitz, Niccolo Jommelli og Franz Ignaz Beck. Wolfgang Amadeus Mozart kom til Mannheim og hlýddi á hljómsveitina árið 1777 og hún hafði mikil áhrif á hann. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Aðalheiður Hólm Spans fæddist árið 1915 og átti þátt í að stofna starfsstúlknafélagið Sókn 1934. Lesið ler úr endurminningabók hennar, „Veistu ef þú vin átt“ sem Þorvaldur Kristinsson skráði og kom út 1994. Þar segir Aðalheiður frá því þegar Runólfur Pétursson, formaður verkalýðsfélagsins Iðju, kynnti fyrir henni sígilda tónlist á 4. áratug 20. aldar. Flutt verða nokkur af þeim verkum sem Aðalheiður nefnir í bókinni og meðal tónskálda sem koma við sögu eru Richard Wagner, Felix Mendelssohn, Maurice Ravel og Claude Debussy. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Guðrún Hálfdánardóttir.
    50 min
  • Enska tónskáldið Ralph Vaughan Williams fæddist 12. október 1872 og því eru á þessu ári eru liðin 150 ár frá fæðingu hans. Hann þykir eitt merkasta tónskáld Bretlands á 20. öld og samdi m.a. níu sinfóníur og fimm óperur auk annars konar verka. Einnig safnaði hann þjóðlögum og útsetti þau. Meðal verka sem hljóma í þessum og næsta þtti eru „The Lark Ascending" (Lævirkinn hækkar flugið) og kafli úr Suðurheimskauts-sinfóníu hans, „Sinfonia Antartica".
    Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Þuríður Pálsdóttir
    Fjallað verður um söngkonuna Þuríði Pálsdóttur sem lést 12. ágúst. sl. Þuríður var sópransöngkona, hún fæddist í Reykjavík 1927 og stundaði söngnám á Ítalíu. Hún var ein merkasta söngkona Íslands á seinni hluta 20. aldar og fór með aðalhlutverk í mörgum óperum sem fluttar voru hér á landi, svo sem „Töfraflautunni“ eftir Mozart 1956 og „Don Pasquale“ eftir Donizetti 1960. Einnig lagði hún mikla rækt við íslensk sönglög og frumflutti meðal annars sönglög eftir föður sinn, Pál Ísólfsson, og frænku sína, Jórunni Viðar. Þá kenndi Þuríður söng áratugum saman. Fluttar verða hljóðritanir með söng Þuríðar frá ýmsum tímum og einnig brot úr útvarpsviðtölum við hana. Lesarar eru Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Feðginin Henryk Wieniawski og Régine Wieniawski
    Henryk Wieniawski, sem fæddist í Lublin í Póllandi 1835, var einn af snjöllustu fiðluleikurum 19. aldar og samdi mikið fyrir hljóðfærið. Dóttir hans, Régine Wieniawski, sem fæddist 1879, var einnig tónskáld og samdi einkum tónsmíðar undir tveimur listamannsnöfnum: Irène Wieniawska og Poldowski. Í þættinum "Á tónsviðinu" fim. 1. sept. verður flutt tónlist eftir feðginin. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Tónverk af málverkum
    Þegar málverk 16. 17. 18. og 19. aldar eru skoðuð má oft sjá á þeim fólk að leika á hljóðfæri og slíkar myndir eru mikilvæg heimild um tónlistarflutning fyrri alda. En stundum sjást einnig nótnablöð á myndunum og fyrir kemur að nóturnar séu svo greinilegar að mögulegt sé að þekkja tónverkið sem verið er að flytja á málverkinu. Flutt verða nokkur tónverk af málverkum í þættinum. Málverkin eru „Þrjár konur flytja tónlist“ eftir ókunnan höfund, „Lútuleikarinn“, „Tónlistarmennirnir“ og „Hvíld á flóttanum til Egyptalands“ eftir Caravaggio og „Franz Liszt leikur fantasíu á flygil“ eftir Josef Danhauser. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Afmæli Reykjavíkurborgar
    Það var 18. ágúst 1786 sem Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi. Þess vegna er litið á þann dag sem afmælisdag Reykjavíkur og menningarnótt haldin í borginni þann laugardag sem er næstur 18. ágúst. Flutt verða nokkur tónverk sem tengjast Reykjavíkurborg og öll nema eitt eru eftir tónskáld sem fæddust í Reykjavík. Tónskáldin eru Sigvaldi Kaldalóns, Sigfús Halldórsson, Jórunn Viðar, Atli Heimir Sveinsson og Jón Þórarinsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Vílíur í tónlist
    Margir tónlistarunnendur kannast við Vilíu-sönginn úr óperettunni „Kátu ekkjunni" eftir Franz Lehár. Vilíur eru verur í slafneskri þjóðtrú, eins konar álfameyjar, undurfagrar, en um leið hættulegar. Flutt verður tónlist þar sem þær koma við sögu, en auk „Kátu ekkjunnar" má þar nefna óperuna „Le Villi" eftir Giacomo Puccini og ballettinn „Giselle" eftir Adolphe Adam. Einnig koma vilíur fyrir í bókum J.K Rowling um Harry Potter og eru kallaðar „válur" í íslenskri þýðingu Helgu Haraldsdóttur. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jónatan Garðarsson.
    50 min