Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Jónsmessunótt
    Jónsmessunótt er nóttin milli 23. og 24. júní. Fyrr á öldum trúði fólk víða um lönd að þetta væri töfranótt og þá færu álfar á kreik. William Shakespeare notaði sér þessa þjóðtrú þegar hann samdi gamanleikritið „Draum á Jónsmessunótt“ undir lok 16. aldar, en í leikritinu koma álfar mikið við sögu. Breska tónskáldið Benjamin Britten samdi óperu upp úr leikriti Shakespeares og var óperan frumsýnd á Aldeburgh-hátíðinni 11. júní 1960. Í þættinum eru flutt atriði úr óperunni og notuð hljóðritun sem var gerð undir stjórn höfundar sama ár og óperan var frumflutt í Aldeburgh 1960. Í aðalhlutverkum eru Alfred Deller og Elizabeth Harwood. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.
    50 min
  • Tónlist kventónskálda
    Á undanförnum árum hefur orðið sprenging í útgáfu á tónlist eftir kvenkyns tónskáld frá fyrri öldum og er þar oft um að ræða tónsmiði sem áður var lítill gaumur gefinn. Flutt eru sönglög í þættinum eftir fyrri alda konur, hljóðritanir sem nýlega hafa komið út á geislaplötum. Tónskáldin sem koma við sögu eru Pauline Viardot-Garcia, Mel Bonis, Amy Woodforde-Finden, Augusta Holmès og Vítezslava Kaprálová. Elsta tónskáldið fæddist 1821 og hið yngsta 1915. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Sebastian Iradier
    Tónskáldið Sebastian Iradier fæddist í Baskahéruðum Spánar árið 1809 og lést 1865. Hann er einkum þekktur fyrir að hafa samið lagið „La Paloma". Hitt vita færri að hann er einnig höfundur hinnar frægu Habaneru sem sungin er í óperunni „Carmen" eftir Georges Bizet. Þar sem óperan gerist á Spáni ætlaði Bizet að nota spænskt þjóðlag, en svo óheppilega vildi til að lagið sem hann valdi var ekki þjóðlag heldur sönglagið „El Arreglito" eftir Iradier. Hins vegar gerði Bizet smávegis breytingar á laginu svo að það fékk annan svip. Í þættinum verður „El Arreglito" flutt á undan Habanerunni úr „Carmen" svo að hlustendur geta borið þessar tvær gerðir lagsins saman. Lagið „La Paloma" verður einnig flutt í ýmsum myndum og sungin verða tvö önnur lög eftir Iradier. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min
  • Ice Land: The Eternal Music
    Fyrir skömmu kom út hjá Harmonia mundi geislaplatan þar sem kór Clare College í Cambridge, einn besti háskólakór heims, syngur lög eftir íslenska tónsmiði undir stjórn Grahams Ross. Einnig eru á plötunni strengjaverk eftir Jón Leifs og Sigur Rós sem strengjasveitin Dmitri Ensemble flytur. Hljómdiskurinn hefur fengið mjög góða dóma í erlendum fjölmiðlum. Flutt er tónlist af þessum hljómdiski, meðal annars verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Sigurð Sævarsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Jón Ásgeirsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    47 min
  • Ravel og Godebski hjónin
    Árið 1904 kynntist franska tónskáldið Maurice Ravel pólsku hjónunum Cipa og Idu , sem búsett voru í París. Þau urðu nánir vinir Ravels og hann tileinkaði þeim sónatínu fyrir píanó sem hann samdi á árunum 1903-5. Þetta verk er leikið í þættinum og einnig tónverkið „Gæsamamma“ sem Ravel byggði á þekktum ævintýrum og tilenkaði börnum Godebski-hjónanna, Mimi og Jean. Þau voru þá 11 og 9 ára gömul og Mimi sagði síðar að þau hefðu verið of ung til þess að kunna að meta tileinkunina, þau hefðu aðeins haft áhyggjur af því að það yrði mikil vinna að æfa verkið sem var samið fyrir píanó fjórhent. Lesari er Halla Harðardóttir og umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    48 min
  • Flutt eru austurlensk sönglög og tónverk vestrænna tónsmiða undir austurlenskum áhrifum. Meðal annars verða fluttir söngvar af geislaplötunni „El Nour“ þar sem egypska sópransöngkonan Fatma Said syngur lög eftir egypsk, líbönsk og frönsk tónskáld, en þessi geislaplata hefur vakið mikla athygli. Einnig verður fluttur „Egypskur mars“ eftir Johann Strauss, hljómsveitarfantasían “Afríka“ eftir Camille Saint-Saëns og píanóverkið „Canope“ eftir Claude Debussy. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Dísella Lárusdóttir
    Nýlega fékk hljómdiskur með óperunni „Akhnaten“ eftir Philip Glass Grammy-verðlaunin fyrir bestu óperuupptökuna, en sópransöngkonan Dísella Lárusdóttir fer með eitt af aðalhlutverkum óperunnar. Í tilefni af þessu er þátturinn helgaður Dísellu og leiknar eru upptökur með söng hennar úr safni Ríkisútvarpsins. Meðal annars verða flutt atriði úr óperunum „Ástardrykknum“ eftir Gaetano Donizetti og „La Traviata“ eftir Giuseppe Verdi, lag úr söngleiknum „Birtingi“ eftir Leonard Bernstein, og ljóðalög eftir Richard Strauss og Johannes Brahms. Einnig eru flutt atriði úr Grammy-verðlaunaupptökunni af óperunni „Ahnaten“, en öll óperan verður á dagskrá Rásar 1 á uppstigningardag, 26. maí 2022. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Tónlist við ljóð skáldkonunnar Helminu von Chézy
    Í þættinum eru flutt tónverk með texta eftir þýsku skáldkonuna Helminu von Chézy sem fæddist 1783 og lést 1856. Hún samdi textann við óperuna „Euryanthe“ eftir Carl Maria von Weber árið 1823 og sama ár var frumsýnt í Vín leikrit hennar, „Rósamunda“ með tónlist eftir Franz Schubert. Carl Loewe samdi líka tónlist við ljóð Helminu og talið er að hún eigi hluta af textanum við tónverk Schuberts „Der Hirt auf dem Felsen“ (Hirðirinn á hamrinum).
    Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min