Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Haydn og Mozart
    Í þættinum verður leikin tónlist eftir Joseph Haydn og Wolfgang Amadeus Mozart. Árið 1785 pantaði hljómsveit nokkur í París sex sinfóníur hjá Haydn og hafa þær verið kallaðar Parísarsinfóníurnar. Sumar þeirra hafa önnur viðurnefni að auki, til dæmis sinfónía nr. 83 í g-moll sem er kölluð „Hænan" út af stefi í 1. kafla sem þykir minna á hreyfingar hænu. Þessi sinfónía verður leikin í þættinum og einnig kafli úr strengjakvartett nr.17 í Es-dúr eftir Mozart, en það er einn af Haydn-kvartettunum svonefndu, sex kvartettum sem Mozart tileinkaði Haydn árið 1785, sama ár og Haydn samdi Parísarsinfóníurnar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Tónlist úr leikritum Molière
    Á þessu ári eru liðin 400 ár síðan franska leikritaskáldið Molière fæddist, en hann þykir eitt besta gamanleikjaskáld allra tíma. Af frægum leikritum hans má meðal annars nefna „Tartuffe“, „Aurasálina“ og „Ímyndunarveikina“, en nafn aðalpersónunnar í „Tartuffe“ er komið inn í franska tungu sem orð með merkinguna „hræsnari“. Leikin verður tónlist úr leikritum Molières og einnig verður flutt brot úr útvarpsupptöku af leikritinu „Ímyndunarveikinni“ frá 1965, en þar fara Brynjólfur Jóhannesson og Margrét Guðmundsdóttir með aðalhlutverkin. Flutt verður tónlist eftir Jean-Baptiste Lully, Marc-Antoine Charpentier, Richard Strauss og Ríkarð Örn Pálsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    51 min
  • Tónlist sem tengist tunglinu
    Í þættinum verða flutt tónverk sem tengjast tunglinu, meðal annars fyrsti þáttur Tunglskinssónötunnar eftir Ludwig van Beethoven, Söng Rusölku til mánans úr óperunni „Rusalka" eftir Antonín Dvorák, kórverkið „Grandmother Moon" eftir Eleanor Daley og „Mánaskin á strönd" fyrir fiðlu og víólu eftir Báru Grímsdóttur. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Til þess að mótmæla stríðinu í Úkraínu og votta fórnarlömbum þess samhug hefur EBU, Samband evrópskra útvarpsstöðva, skorað á útvarpsstöðvar í Evrópu að flytja Óðinn til gleðinnar úr 9. sinfóníu Beethovens 10. mars. Ástæðan fyrir því að Óðurinn til gleðinnar er valinn er sú að hann hefur lengi verið tákn fyrir frið, frelsi og mannréttindi. Þess var einnig óskað að hver útvarpsstöð veldi hljóðritun sem skipti hana sérstöku máli. Hér var valin hljóðritunin sem gerð var á Opnunarhátíð tónlistarhússins Hörpu 13. maí 2011 og verður hún flutt í þættinum. Einnig verður fluttur Fangakórinn úr óperu Beethovens, “Fidelio“, en óperan var frumflutt í Vín árið 1805 þegar Napóleonsstyrjaldirnar geysuðu og Frakkar höfðu hertekið Vínarborg. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Fiskar í tónlist
    Í þessum þætti verður flutt tónlist sem tengist fiskum. Þar á meðal er hið fræga sönglag „Silungurinn“ eftir Franz Schubert, píanóverkið „Draumlyndi fiskurinn“ eftir Erik Satie og sönglagið „Fiskapredikun Antóníusar frá Padúa“ eftir Gustav Mahler. Einnig verða flutt þrjú lög við þjóðkvæðið „Fagur fiskur í sjó“, lög eftir Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson og Hafliða Hallgrímsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Febrúar í tónlist
    Fjallað um febrúarmánuð í tónlist og skáldskap. Meðal tónsmíða sem fluttar verða í þættinum eru „Vetrarmorgunn" eftir Jón Ásgeirsson, kaflar úr verkinu „Febrúarhiminn" eftir Kolbein Bjarnason, „Febrúar: Karnival" úr píanóverkinu „Árstíðirnar" eftir Pjotr Tsjaíkovskí og „Febrúar" úr píanóverkinu „Árið" eftir Fanny Mendelssohn Hensel. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Guðni Tómasson og Anna Marsibil Clausen.
    48 min
  • Í forngrískum sögnum og skáldverkum er getið um amasónur, sem hafa stundum verið kallaðar skjaldmeyjar á íslensku. Þær áttu að hafa verið herskáar konur sem tóku þátt í bardögum og gáfu karlmönnunum ekkert eftir. Svipaðar þessu eru sagnir um valkyrjur sem finna má í norrænni goðafræði, meðal annars í Snorra-Eddu. Í þessum þætti verður leikin tónlist sem tengist valkyrjum og amasónum, þar á meðal hin fræga Valkyrjureið úr óperunni „Valkyrjan" eftir Richard Wagner, og atriði úr óperunum "Mitilene drottning amasónanna" eftir Giuseppe De Bottis og „Amasónurnar" eftir André Danican Philidor. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min
  • Þýski tónsmiðinn Michael Praetorius
    Í þættinum hljómar tónlist eftir sem var uppi á 17. öld. Hann gerði margar snjallar kórútsetningar á jólalögum og er „Það aldin út er sprungið" frægasta útsetning hans. Auk jólalaga verða fluttir í þættinum dansar úr safni Praetoriusar „Terpsichore", en safnið hefur að geyma yfir 300 danslög frá 16. og 17. öld. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    48 min