Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Tónlist sem tengist froskum
    Í þættinum verður flutt tónlist sem tengist froskum, meðal annars kafli úr Froskakvartettinum eftir Joseph Haydn, Tilbrigði við lagið „A frog he went a-courting“ eftir Paul Hindemith og „Frog Galliard“ eftir John Dowland. Lesið verður upp úr sögunni „Kartan“ (Skrubtudsen) eftir H.C. Andersen. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jórunn Sigurðardóttir.
    52 min
  • Tónlist eftir Carl Maria von Weber
    Í þættinum verður leikin tónlist eftir Carl Maria von Weber. Árið 1808 samdi hann sönglag sem hann tileinkaði söngkonunni Gretchen Lang, en hann var ástfanginn af henni. Gretchen söng aðalhlutverkið í óperu Webers, „Silvana“, tveimur árum síðar. En hún endurgalt ekki tilfinningar Webers og hann sneri sér að annarri söngkonu, Caroline Brandt, sem einnig fór með hlutverk í „Silvana“. Caroline giftist Weber og hann tileinkaði henni verk sitt „Boðið upp í dans“ sem flutt verður í þættinum. Einnig verður leikinn fagottkonsert í F-dúr sem Weber samdi árið 1811. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min
  • Covid hljómdiskar
    Eins og flestir vita hafa margir listamenn lagt sitt af mörkum til þess að reyna að gera fólki lífið bærilegra á tíma Covid-faraldursins og nýlega hafa komið út geislaplötur með tónlist sem tengist faraldrinum beint eða óbeint. Þar á meðal eru hljómdiskarnir „Songs of Comfort & Hope“ (Söngvar um huggun og von) og „Isolation songbook“ (Einangrunarsöngbókin). Á fyrrnefndu geislaplötunni leika sellóleikarinn Yo-Yo Ma og píanóleikarinn Kathryn Stott hugljúf lög, en á hinum síðarnefnda flytja söngvararnir Helen Charlston og Michael Craddock og píanóleikarinn Alexander Soares sönglög sem beinlínis voru samin með Covid-faraldurinn í huga. Flutt eru lög af þessum geislaplötum og einnig tónverk frá fyrri öldum sem samin voru á tíma drepsóttar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Egill Jónsson klarinettleikari
    Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Egils Jónssonar, eins merkasta klarínettleikara Íslands á 20. öld. Egill var fyrsti klarínettleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá stofnun hennar 1950. Fjallað er um Egil og fluttar hljóðritanir af klarínettleik hans. Meðal annars verður lesið úr bréfum sem hann skrifaði bróður sínum frá Manchester, en þau gefa skýra mynd af brennandi tónlistaráhuga Egils. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Felix Bergsson og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
    51 min
  • Tónlist sem tengist apríl
    Í þættinum verður leikin tónlist sem tengist aprílmánuði. Þar má nefna aprílþáttinn úr píanóverkinu „Árið“ eftir Fanny Mendelssohn-Hensel, „Vorkvæði“ eftir Jón Leifs, sönglagið „Zitronenfalter im April“ eftir Hugo Wolf og „Chanson d´avril“ eftir Georges Bizet. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
    49 min
  • Skildingavísur, síðari þáttur
    Þetta er síðari þátturinn um skildingavísur, söngvísur sem voru vinsælar á Norðurlöndum á fyrri öldum og seldar í einblöðungi eða tvíblöðungi fyrir einn til tvo skildinga. Oftast var um sagnakvæði að ræða og það spillti ekki fyrir vinsældunum ef sagan var sorgleg. „Amanda och Hermann“, „Elvira Madigan“ og „Hjalmar och Hulda“ voru vinsælar sænskar skildingsvísur á 19. öld og allar sögðu sorglega sögu. Í sögum Astrid Lindgren um „Emil í Kattholti“ er vinnukonan Lína oft að syngja slíka söngva. Sumar skildingsvísurnar voru þýddar yfir á íslensku eins og til dæmis „Hjálmar og Hulda“ og „Kvæðið um Katrínu litlu“ og stundum ortu íslensk skáld ljóð í svipuðum anda. Má þar nefna kvæðið „Dálítil saga“ sem kom út í fyrstu ljóðabók Þorsteins Gíslasonar 1893. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
    52 min
  • Sklidingavísa, fyrri þáttur
    Orðið „skildingsvísa“ - „skillingsvise“ á dönsku og „skillingtryck“ á sænsku var fyrr á öldum notað um kvæði sem gefin voru út á einblöðungi eða tvíblöðungi og kostuðu einn til tvo skildinga. Flest voru kvæðin ætluð til söngs við eitthvert alþýðulag. Margar vinsælustu skildingsvísurnar voru sorglegar sögur um elskendur eða börn sem rötuðu í miklar raunir. Sumir af þessum söngvum voru þýddir yfir á íslensku og einnig voru ort íslensk kvæði í svipuðum stíl, en orðið „skildingsvísa“ var ekki notað yfir söngvana hér á landi. Fjallað er um skildingsvísur og sorgarsöngva í þættinum að þessu sinni og aftur eftir viku. Fyrri þátturinn verður helgaður sorgarsöngvum um börn, en þar má nefna norræna sönginn „I en sal på lasarettet“, ameríska sönginn „Come home, father“ og íslensku söngvana „Segðu mér söguna aftur“ og „Bergþórshvoll logandi blasir við sýn“. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Anna Marsibil Clausen og Kristján Guðjónsson.
    50 min
  • Mozart og Colloredo biskup
    Mestallan áratuginn 1772 til 1781 var hinn ungi Wolfgang Amadeus Mozart hirðtónlistarmaður hjá Colloredo erkibiskupi af Salzborg. Þeim Mozart gekk hins vegar illa að þola hvor annan og fór svo að lokum að upp úr sauð á milli þeirra. Vist Mozarts hjá erkibiskupnum lauk með því að ráðsmaðurinn, Arco greifi, hrinti Mozart út um dyrnar og sparkaði í bakhlutann á honum. Sagt verður frá samskiptum Mozarts við erkibiskupinn og hirðmenn hans, lesnir kaflar úr bréfum Mozarts og flutt tónverk eftir hann sem tengjast erkibiskupnum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.
    51 min
  • Á nýliðnu ári, 2020, voru liðin 400 ár frá því að tónskáldið Isabella Leonarda fæddist. Hún fæddist 6. september 1620 í Novara á Ítalíu, gekk í klaustur 16 ára og var nunna allt til dauðadags 1704. En í klaustrinu lagði hún mikla stund á tónlist og samdi um 200 verk, bæði söngverk og hljóðfæraverk, og þar á meðal eru fyrstu sónötur konu sem gefnar voru út, sónötur Isabellu Op.16 sem út komu 1693. Flutt verða nokkur af tónverkum Isabellu, meðal annars sónötur sem kammersveitin Reykjavík Barokk flutti á Sumartónleikum í Skálholti 2016. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min