Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Tónlist þriggja þeldökkra kvenna frá fyrri hluta 20. aldar
    Á fyrri hluta 20. aldar þurftu svartar konur í Bandaríkjunum að glíma við tvöfalda fordóma ef þær ætluðu að hasla sér völl sem tónskáld á sviði sígildrar tónlistar. Það var útbreitt viðhorf að konur væru ekki færar um að semja tónlist og í tilfelli þessara kvenna bættust kynþáttafordómar við. Á seinni árum hefur orðið viðhorfsbreyting í þessum efnum og tónverk svartra kvenna frá fyrri hluta 20. aldar eru nú farin að vekja athygli, þau eru hljóðrituð og gefin út, mörg í fyrsta skipti, og tónlistarfræðingar eru farnir að rannsaka feril tónskáldanna. Flutt verður tónlist eftir þrjár þeldökkar konur frá fyrri hluta 20. aldar: Florence Price, sem fæddist árið 1887, Undine Smith Moore, sem fæddist 1904, og Margaret Bonds, sem fæddist 1913. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Heilagur brunnur
    Heilagur brunnur er helgitákn sem finna má bæði í kristni og heiðni. Leikin verður tónlist sem tengist þessu tákni. Þar á meðal eru lög eftir Benjamin Britten og Richard Rodney Bennett við nýárskvæði frá Wales sem hefst á orðunum: „Hér komum við með nýtt vatn úr brunninum, svo tært“. Lesnir verða kaflar úr Jóhannesarguðspjalli Biblíunnar þar sem segir frá samtali Jesú og samversku konunnar við brunninn og kaflar úr Snorra-Eddu þar sem segir frá Urðarbrunni. Fluttir verða amerískir trúarsöngvar um konuna við brunninn og brot úr tónverki Jóns Leifs, „Eddu I“ sem byggt er á Snorra-Eddu. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Anna Marsibil Clausen.
    51 min
  • „Beethoven í jólaskapi“
    Eins og flestum tónlistarunnendum er kunnugt er þess nú minnst að 250 ár eru liðin frá fæðingu Ludwigs van Beethoven. Þar sem Beethoven fæddist aðeins rúmri viku fyrir jól ætti að vera tilvalið að gera þátt sem gæti heitið „Beethoven í jólaskapi“. En þá rekumst við á óþægilega hindrun: Beethoven samdi engin jólatónverk. Þessi hindrun er þó ekki óyfirstíganleg þegar betur er að gáð, hægt er að finna tónverk eftir Beethoven sem tengjast jólum óbeint, svo sem verk sem voru frumflutt á jólum, og tilbrigði við lög sem urðu síðar jólalög. Nokkur slík tónverk verða flutt í þættinum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    53 min
  • Hanukka
    Hin gyðinglega hátíð Hanukka, sem kölluð hefur verið ljósahátíð á íslensku, hefst við sólarlag 10. desember og henni lýkur 18. desember. Hátíðin er haldin til að minnast þess þegar musterið í Jerúsalem var endurvígt á 2. öld f. Kr. eftir að Júdas Makkabeus og uppreisnarlið hans höfðu unnið sigur á Selevkídum, en þeir höfðu bannað Gyðingatrú og vanhelgað musterið. Flutt verður tónlist sem tengist ljósahátíð Gyðinga, þar á meðal söngvar eftir Solomon Ancis, Flory Jagoda og Chaim Ritterband. En einnig er til tónverk eftir kristið tónskáld sem fjallar um sigur Makkabea: óratórían „Júdas Makkabeus“ eftir Georg Friedrich Händel. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Anna Marsibil Clausen.
    52 min
  • Jólasveinar einn og átta
    „Jólasveinar einn og átta ofan komu af fjöllunum. Í fyrrakvöld þeir fóru að hátta, fundu hann Jón á Völlunum,“ segir í alþekktum jólasöng, og síðar kemur: „Andrés stóð þar utan gátta“. En hverjir eru Jón á Völlunum og Andrés? Fræðimenn hafa oft velt þessari spurningu fyrir sér og hugsanlega er nú komið svar við henni. Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur hefur skrifað grein í tímaritið Andvara þar sem hún bendir á hliðstæður milli kvæðisins og atburða sem sagt er frá í Árna sögu biskups, en sagan var skrifuð skömmu eftir aldamótin 1300. Una Margrét Jónsdóttir ræðir við Láru auk þess sem leikin verða mismunandi lög við kvæðið „Jólasveinar einn og átta“. Lesari í þættinum er Guðni Tómasson.
    49 min
  • Myndhöggvainn Thorvaldsen og tónlistin
    Á þessu ári er þess minnst að 250 ár eru liðin frá fæðingu dansk-íslenska myndhöggvarans Thorvaldsens, en hann fæddist 19. nóvember 1770. Thorvaldsen var einn frægasti myndhöggvari heims á 19. öld, en hitt vita færri að Thorvaldsen hafði líka tónlistarhæfileika og lék á gítar, fiðlu og flautu. Leikin verður tónlist sem tengist Thorvaldsen, meðal annars úr handskrifaðri nótnabók hans fyrir gítar sem inniheldur verk eftir ýmis 18. aldar tónskáld. Thorvaldsen kynntist frægum tónskáldum, svo sem Felix Mendelssohn, sem lék á píanó fyrir hann meðan hann vann að myndverkum sínum og Gaetano Donizetti, sem samdi afmælissöng honum til heiðurs. Einnig verður flutt brot úr leikhúsforleiknum sem verið var að flytja þegar Thorvaldsen lést, en dauða hans bar brátt að, hann hneig niður á sýningu í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn 24. mars 1844, og var ekki búið að leika forleikinn til enda þegar andlátsfregnin barst frá manni til manns á leikhúsbekkjunum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Anna Marsibil Clausen.
    52 min
  • Lög við ljóð Gríms Thomsen
    Á þessu ári, 2020, eru liðin 200 ár frá fæðingu skáldsins Gríms Thomsen, en hann fæddist á Bessastöðum 15. maí 1820. Grímur Thomsen var eitt besta skáld Íslands á 19. öld og vinsæl lög hafa verið samin við mörg af ljóðum hans. Má þar nefna lögin „Á Sprengisandi“ (Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn) eftir Sigvalda Kaldalóns, „Íslands lag“ eftir Björgvin Guðmundsson og „Sverrir konungur“ eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Þessi lög og fleiri við ljóð eftir Grím Thomsen verða flutt í þættinum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
    49 min
  • Nóvember tónsmíðar
    Leiknar verða tónsmíðar sem tengjast nóvembermánuði. Þar má nefna sönglagið „Skíðaferð í nóvember“ eftir Jón Hlöðver Áskelsson við ljóð eftir Böðvar Guðmundsson, píanóþáttinn „Nóvember“ eftir Fanny Mendelssohn-Hensel, sönglagið „Novembre“ eftir Ernest Lavigne og lög úr söngvaflokknum „Kominn nóvember“ eftir Áskel Másson við ljóð eftir Matthías Johannessen. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Þórunn Elísabet Bogadóttir.
    50 min
  • Ballettinn Gunnar á Hlíðarenda
    Árið 1973 var ballettinn „Gunnar á Hlíðarenda“ frumfluttur á Rotundan, sviði Óperunnar í Stokkhólmi. Ballettinn var byggður á Brennu-Njáls sögu, en höfundur tónlistarinnar var sænski tónsmiðurinn Ralph Lundsten og höfundur dansins var íslensk ballettdansmær, Unnur Guðjónsdóttir. Ralph Lundsten fæddist árið 1936, hann var frumkvöðull í raftónlist og ballettinn „Gunnar á Hlíðarenda“ var líka í þeim anda, sænsk raftónlist byggð á Njálu. Mikil samvinna var milli Lundstens og danshöfundarins, en Unni fannst raftónlist tilvalin fyrir Njálu þar sem svo lítið er vitað um íslenska tónlist á þeim tíma sem sagan gerist á. Una Margrét Jónsdóttir ræðir við Unni Guðjónsdóttur og flutt verða atriði úr ballettinum „Gunnar á Hlíðarenda“.
    51 min