Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Beethoven og Ghoethe
    Tónskáldið Ludwig van Beethoven og skáldið Johann Wolfgang von Goethe voru samtíðarmenn þó að Goethe væri rúmum 20 árum eldri, fæddur 1749, en Beethoven 1770. Beethoven var mikill aðdáandi Goethes og samdi mörg lög við ljóð eftir hann. Árið 1812 hittust þeir í fyrsta skipti, en þótt þeir væru báðir miklir listamenn og bæru virðingu hvor fyrir öðrum voru þeir ólíkir persónuleikar og samfundirnir gengu ekki eins vel og ætla mætti. Flutt eru nokkur sönglög Beethovens við ljóð eftir Goethe og einnig Egmont-forleikurinn sem Beethoven samdi við leikrit eftir hann og kantatan „Meeresstille und glückliche Fahrt“, samin við tvö ljóð eftir Goethe. Þá verða lesin brot úr bréfum Beethovens, Goethes og Bettinu Brentano sem hafði milligöngu um að þeir hittust. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson, Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Leifur Hauksson.
    52 min
  • 28.05.2020
    Óperettan „Meyjaskemman“ eftir Heinrich Berté fjallar um ævi tónskáldsins Franz Schuberts og fjórir af vinum hans koma fyrir sem persónur í óperettunni : Leopold Kupelwieser, Moritz von Schwind, Johann Michael Vogl og Franz von Schober. Þó að flest sem gerist í óperettunni sé skáldskapur voru þessir vinir Schuberts til í raun og veru og í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 28. maí kl. 14.03 verður fjallað um þessa fjóra vini tónskáldsins. Þeir voru allir listamenn hver á sínu sviði. Kupelwieser og Schwind voru báðir myndlistarmenn, Vogl var söngvari og Schober fékkst við sitt af hverju: myndlist, skáldskap og leiklist. Í þættinum verður meðal annars fluttur Kupelwieser-valsinn svonefndi sem Schubert samdi fyrir brúðkaup Kupelwiesers árið 1826. Valsinn var ekki gefinn út á prenti og varðveittist ekki heldur í handriti. Hins vegar var hann spilaður á píanó hjá Kupelwieser-fjölskyldunni, kynslóð eftir kynslóð, og varðveittist þannig þar til tónskáldið Richard Strauss skrifaði hann upp árið 1943 eftir píanóleik Mariu Mautner Markhof. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Óperettan „Meyjaskemman“ eftir Heinrich Berté fjallar um ævi tónskáldsins Franz Schuberts og fjórir af vinum hans koma fyrir sem persónur í óperettunni : Leopold Kupelwieser, Moritz von Schwind, Johann Michael Vogl og Franz von Schober. Þó að flest sem gerist í óperettunni sé skáldskapur voru þessir vinir Schuberts til í raun og veru og í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 28. maí kl. 14.03 verður fjallað um þessa fjóra vini tónskáldsins. Þeir voru allir listamenn hver á sínu sviði. Kupelwieser og Schwind voru báðir myndlistarmenn, Vogl var söngvari og Schober fékkst við sitt af hverju: myndlist, skáldskap og leiklist. Í þættinum verður meðal annars fluttur Kupelwieser-valsinn svonefndi sem Schubert samdi fyrir brúðkaup Kupelwiesers árið 1826. Valsinn var ekki gefinn út á prenti og varðveittist ekki heldur í handriti. Hins vegar var hann spilaður á píanó hjá Kupelwieser-fjölskyldunni, kynslóð eftir kynslóð, og varðveittist þannig þar til tónskáldið Richard Strauss skrifaði hann upp árið 1943 eftir píanóleik Mariu Mautner Markhof. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min
  • Sumarið 1886 dvaldist tónskáldið Johannes Brahms í Thun-héraði í fögru fjallalandslagi í Sviss. Meðan á sumardvölinni þar stóð samdi hann þrjú af sínum merkustu kammerverkum: fiðlusónötu nr.2, sellósónötu nr.2 og píanótríó nr.3. Í þættinum verða leiknir kaflar úr sónötunum og píanótríóið verður flutt í heild, en um það sagði vinkona tónskáldsins, Elisabeth von Herzogenberg, að það lýsti honum betur en nokkur ljósmynd gæti gert. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • 07.05.2020
    Í þættinum verður flutt tónlist sem samin hefur verið við gamanleikritið „Ys og þys út af engu“ (Much Ado About Nothing) eftir William Shakespeare. Franska tónskáldið Hector Berlioz samdi óperuna „Beatrís og Benedikt“ upp úr leikritinu árið 1862 og írska tónskáldið Charles Villiers Stanford samdi óperuna „Ys og þys út af engu“ árið 1901. Erich Wolfgang Korngold samdi tónlist við leikritið fyrir sýningu á því í Vínarborg árið 1920. Og árið 1993 var gerð kvikmynd eftir leikritinu með Kenneth Branagh og Emmu Thompson í aðalhlutverki, en skoski tónsmiðurinn Patrick Doyle samdi tónlist við hana. Í þættinum verða leikin atriði úr öllum þessum tónsmíðum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 07.05.2020
    Í þættinum verður flutt tónlist sem samin hefur verið við gamanleikritið „Ys og þys út af engu“ (Much Ado About Nothing) eftir William Shakespeare. Franska tónskáldið Hector Berlioz samdi óperuna „Beatrís og Benedikt“ upp úr leikritinu árið 1862 og írska tónskáldið Charles Villiers Stanford samdi óperuna „Ys og þys út af engu“ árið 1901. Erich Wolfgang Korngold samdi tónlist við leikritið fyrir sýningu á því í Vínarborg árið 1920. Og árið 1993 var gerð kvikmynd eftir leikritinu með Kenneth Branagh og Emmu Thompson í aðalhlutverki, en skoski tónsmiðurinn Patrick Doyle samdi tónlist við hana. Í þættinum verða leikin atriði úr öllum þessum tónsmíðum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Í þættinum verður flutt tónlist sem samin hefur verið við gamanleikritið „Ys og þys út af engu“ (Much Ado About Nothing) eftir William Shakespeare. Franska tónskáldið Hector Berlioz samdi óperuna „Beatrís og Benedikt“ upp úr leikritinu árið 1862 og írska tónskáldið Charles Villiers Stanford samdi óperuna „Ys og þys út af engu“ árið 1901. Erich Wolfgang Korngold samdi tónlist við leikritið fyrir sýningu á því í Vínarborg árið 1920. Og árið 1993 var gerð kvikmynd eftir leikritinu með Kenneth Branagh og Emmu Thompson í aðalhlutverki, en skoski tónsmiðurinn Patrick Doyle samdi tónlist við hana. Í þættinum verða leikin atriði úr öllum þessum tónsmíðum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • 30.04.2020
    Í þættinum verður leikin fiðlusónata nr.4 eftir Charles Ives og einnig verða flutt atriði úr ballettinum „Appalachian Spring“ (Vor í Appalasíufjöllum) eftir Aaron Copland, en bæði tónverkin eiga það sameiginlegt að sækja efnivið til amerískra sálmalaga. Copland notaði trúarsönginn „Simple Gifts“ eftir Joseph Brackett í verk sitt og Ives notaði sönginn „At the River“ eftir Joseph Lowry. Báðir trúarsöngvarnir eru frá 19. öld, en tónverkin frá 20. öld, sónatan samin á árunum 1911-16 og ballettinn á árunum 1943-4. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Krzyztof Pendereck
    Pólska tónskáldið Krzyztof Penderecki lést 29. mars sl., 86 ára að aldri. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 16. apríl kl. 14.03 verða leiknar tónsmíðar eftir hann. Þar á meðal er eitt frægasta tónverk Pendereckis, „Harmljóð um fórnarlömbin í Hírósíma“ frá árinu 1960, en einnig verða flutt verkin „Stabat mater“ frá 1962, Þrír miníatúrar fyrir klarínettu og píanó frá 1956, Adagietto úr óperunni „Paradísarmissi“ frá 1978 og Tríó fyrir strengi frá 1991. Flutt verður brot úr viðtali sem Guðmundur Emilsson tók við Penderecki þegar hann kom til Íslands á Listahátíð árið 1988. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 02.04.2020
    Þátturinn verður helgaður tónlist sem hefur verið samin út frá sögunni um Öskubusku, en óperan „Öskubuska“ eftir Rossini verður flutt um páskana í hljóðritun frá Metrópólitan-óperunni í New York. Jules Massenet samdi líka óperu upp úr ævintýrinu árið 1899 og Sergei Prokofíev samdi frægan ballett um Öskubusku á árunum 1940 til 1944. Í ballettinum „Þyrnirós“ eftir Tsjaíkovskí birtist Öskubuska sem aukapersóna og árið 1993 samdi breski tónsmiðurinn Philip Feeney einnig ballett um Öskubusku. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min