Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • 06.02.2020
    Fjallað um þrjár miklar listakonur á fyrri hluta 19. aldar sem allar höfðu ættarnafnið Grisi, enda voru þær skyldar. Þetta eru ballettdansmærin Carlotta Grisi og frænkur hennar, óperusöngkonurnar Giuditta og Giulia Grisi. Allar voru þær miklar stjörnur á sínum tíma, ekki síst Carlotta Grisi sem er eitt stærsta nafnið í sögu ballettsins. Í þættinum verður lesið brot úr bréfi sem Grímur Thomsen skrifaði frá París árið 1846, en þar lýsir hann dansi Carlottu. Einnig verða flutt atriði úr ballettinum „Giselle“ eftir Adam Adam, en titilhlutverkið var samið fyrir Carlottu. Þá verða flutt atriði úr óperunum „Kapúlettar og Montagsmenn“ eftir Vincenzo Bellini og „Don Pasquale“ eftir Gaetano Donizetti, en Giuditta og Giulia Grisi fóru með aðalhlutverk í þessum óperum við frumflutning þeirra.
    0 min
  • Gömlu mánaðarheitin
    Gömlu mánaðaheitin sem notuð voru á Íslandi og öðrum Norðurlöndum fyrr á öldum heyrast stundum ennþá, einkum á þessum árstíma þegar þorri er genginn í garð og haldin eru þorrablót. Mánuðirnir 12 voru þorri, góa, einmánuður, harpa, skerpla, sólmánuður, heyannir, tvímánuður, haustmánuður, gormánuður, ýlir og mörsugur. Fluttar eru tónsmíðar og lesin ljóð sem snúast um gömlu mánuðina. Á meðal tónsmíðanna eru „Þorragaldur“ eftir Sigursvein D. Kristinsson, „Einmánuður“ eftir Pál Pampichler Pálsson og „Vorljóð á Ýli“ eftir Jórunni Viðar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    0 min
  • 23.01.2020
    Í þættinum verður leikin fiðlusónata nr.3 eftir Ludwig van Beethoven, en hann tileinkaði verkið tónsmíðakennara sínum, Antonio Salieri. Einnig verður flutt arían "No, non turbarti" sem Beethoven samdi á árunum 1801-1803 og varðveist hefur í handriti með leiðréttingum gerðum af Salieri. Þá verða flutt lög sem Salieri og Beethoven sömdu við sama ljóðið: "Ich denke dein" eftir Matthison.
    0 min
  • 16.01.2020
    Flutt eru atriði úr barnaóperunni "Litli sótarinn" sem Benjamin Britten samdi árið 1948. Íslenska óperan setti hana tvisvar á svið á fyrstu starfsárum sínum, 1982 og 1988. Í þættinum verður flutt hljóðritun sem gerð var í Bretlandi 1956, en þar stjórnar tónskáldið sjálft hljómsveitinni. Óperan fjallar um sótaradreng á fyrri hluta 19. aldar.
    0 min
  • 16.01.2020
    Flutt eru atriði úr barnaóperunni "Litli sótarinn" sem Benjamin Britten samdi árið 1948. Íslenska óperan setti hana tvisvar á svið á fyrstu starfsárum sínum, 1982 og 1988. Í þættinum verður flutt hljóðritun sem gerð var í Bretlandi 1956, en þar stjórnar tónskáldið sjálft hljómsveitinni. Óperan fjallar um sótaradreng á fyrri hluta 19. aldar.
    0 min
  • Flutt eru atriði úr barnaóperunni "Litli sótarinn" sem Benjamin Britten samdi árið 1948. Íslenska óperan setti hana tvisvar á svið á fyrstu starfsárum sínum, 1982 og 1988. Í þættinum verður flutt hljóðritun sem gerð var í Bretlandi 1956, en þar stjórnar tónskáldið sjálft hljómsveitinni. Óperan fjallar um sótaradreng á fyrri hluta 19. aldar.
    49 min
  • 19.12.2019
    Í þættinum verður flutt tónlist úr skáldsögunni „Under the Greenwood Tree“ eftir Thomas Hardy. Skáldsagan er frá árinu 1872, hún er að nokkru leyti gamansöm ástarsaga, en fjallar líka um kirkjukór og hljómsveit í enskri sveitakirkju á þeim tíma 19. aldar þegar orgel fóru að ryðja slíkum hljómsveitum úr vegi. Fyrsti hluti sögunnar gerist um jól og koma því margir jólasöngvar fyrir í henni. Afi Hardys og faðir höfðu einmitt leikið í svipaðri kirkjuhljómsveit svo Hardy þekkti efnið vel. Gefnir hafa verið út hljómdiskar með lögum sem finna má í nótnabókum Hardy-fjölskyldunnar, en þar á meðal eru sum af lögunum í sögunni. Tónlistin í þættinum verður að mestu flutt af þessum geislaplötum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
    0 min
  • 19.12.2019
    Í þættinum er flutt tónlist úr skáldsögunni „Under the Greenwood Tree“ eftir Thomas Hardy. Skáldsagan er frá árinu 1872, hún er að nokkru leyti gamansöm ástarsaga, en fjallar líka um kirkjukór og hljómsveit í enskri sveitakirkju á þeim tíma 19. aldar þegar orgel fóru að ryðja slíkum hljómsveitum úr vegi. Fyrsti hluti sögunnar gerist um jól og koma því margir jólasöngvar fyrir í henni. Afi Hardys og faðir höfðu einmitt leikið í svipaðri kirkjuhljómsveit svo Hardy þekkti efnið vel. Gefnir hafa verið út hljómdiskar með lögum sem finna má í nótnabókum Hardy-fjölskyldunnar, en þar á meðal eru sum af lögunum í sögunni. Tónlistin í þættinum er að mestu flutt af þessum geislaplötum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
    51 min
  • Í þættinum er flutt tónlist úr skáldsögunni „Under the Greenwood Tree“ eftir Thomas Hardy. Skáldsagan er frá árinu 1872, hún er að nokkru leyti gamansöm ástarsaga, en fjallar líka um kirkjukór og hljómsveit í enskri sveitakirkju á þeim tíma 19. aldar þegar orgel fóru að ryðja slíkum hljómsveitum úr vegi. Fyrsti hluti sögunnar gerist um jól og koma því margir jólasöngvar fyrir í henni. Afi Hardys og faðir höfðu einmitt leikið í svipaðri kirkjuhljómsveit svo Hardy þekkti efnið vel. Gefnir hafa verið út hljómdiskar með lögum sem finna má í nótnabókum Hardy-fjölskyldunnar, en þar á meðal eru sum af lögunum í sögunni. Tónlistin í þættinum er að mestu flutt af þessum geislaplötum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
    51 min
  • 12.12.2019
    Tónskáldið Ralph Vaughan Williams fæddist 1872 og lést 1958. Hann þykir vera eitt merkasta tónskáld Englendinga á 20. öld. Árið 1941 útsetti hann níu jólalög fyrir breska setuliðið á Íslandi, en Ísland var hernumið af Bretum svo sem kunnugt er. Stutt er síðan jólalagaflokkurinn var hljóðritaður í heild í fyrsta skipti og gefinn út á geislaplötu.
    0 min