Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Ár og fljót í tónverkum
    Flutt verður tónlist sem tengist frægum ám og fljótum. Þar má nefna „Moldá“ eftir Bedrich Smetana, „Dónárvalsinn“ eftir Johann Strauss og sönglagið „Die Lorelei“ eftir Franz Liszt. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 19.03.2020
    Fjallað um danska tónskáldið Jacob Gade, en hann er frægastur fyrir tangóinn „Jalousie“ sem oft er kallaður „Jealousy“ á ensku. Auk þessa lags eru leiknar í þættinum fleiri tónsmíðar eftir Gade, svo sem valsar og tangóar fyrir píanó. Einnig er flutt revíulagið „Maggiduddi“ sem Gade samdi undir dulnefninu Léon Bonnard, en það varð mjög vinsælt í Danmörku árið 1923. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • 12.03.2020
    Síðastliðið haust kom út bókin Tónlist liðinna alda, íslensk handrit 1100-1800 eftir Árna Heimi Ingólfsson tónlistarfræðing. Þar fjallar Árni Heimir um tónlist sem finna má í íslenskum handritum þeirra 700 ára sem tímabilið 1100 til 1800 spannar. Í tengslum við bókina má finna hljóðritanir af 36 lögum á Spotify og öðrum tónlistarveitum undir titli bókarinnar. Rætt er við Árna Heimi og flutt lög úr bókinni, en sum þeirra hafa aldrei verið hljóðrituð fyrr. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min
  • Tvífari - „Doppelgänger"
    Fyrirbrigðið „tvífari“, „Doppelgänger“ á þýsku, varð sérlega vinsælt í bókmenntum og listum á 19. öld eftir að þýsku rithöfundarnir Jean-Paul og E.T.A. Hoffmann höfðu samið skáldsögur um tvífara. Þar er átt við einhvern sem er nákvæmlega eins útlits og annar maður eða kona án þess þó að vera tvíburabróðir eða -systir. Flutt er tónlist sem tengist tvífaraminninu. Þekktast er sönglagið „Der Doppelgänger“ eftir Franz Schubert við ljóð eftir Heinrich Heine, en bæði Þórður Kristleifsson og Halldór Laxness þýddu ljóð Heines yfir á íslensku. Í þættinum verður einnig leikin tónlist eftir Clöru og Robert Schumann, Zbigniew Preisner, Pjotr Tsjaíkovskí og Hörð Torfason. Lesarar eru Leifur Hauksson og Anna Marsibil Clausen. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

    51 min
  • 27.02.2020
    Flutt verða atriði úr þremur óperum sem eru að öllu eða að einhverju leyti samdar fyrir brúðuleikhús og er hver frá sínu landi og sínum tíma. Þetta eru „Fílemon og Bákis“ eftir Joseph Haydn frá 1773, „Brúðuspil meistara Péturs“ eftir Manuel de Falla, samin 1919-1923, og ævintýraóperan „Sónata“ eftir Hjálmar H. Ragnarsson frá 1994. Haydn samdi óperu sína fyrir brúðuleikhús húsbónda síns, Nikulásar fursta af Esterházy, en það þótti sérlega vandað og glæsilegt, og María Teresía keisaraynja var viðstödd þegar óperan var frumflutt 1773. Textinn er byggður á forn-rómverskri goðsögn. Ópera Falla, „Brúðuspil meistara Péturs“ er samið fyrir brúðuleikhús Polignac furstynju og var frumflutt í höll furstynjunar í París 25. júní 1923. Efnið er sótt í sögu Cervantes um riddarann Don Kíkóta. Ópera Hjálmars H. Ragnarssonar, „Sónata“ var frumflutt í Íslensku óperunni á vegum Strengjaleikhússins árið 1994 og gefin út á geislaplötu ári síðar. Messíana Tómasdóttir samdi textann sem fjallar um prinsessuna Sónötu í Landi hinna tíu tungla. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir.

  • Flutt verða atriði úr þremur óperum sem eru að öllu eða að einhverju leyti samdar fyrir brúðuleikhús og er hver frá sínu landi og sínum tíma. Þetta eru „Fílemon og Bákis“ eftir Joseph Haydn frá 1773, „Brúðuspil meistara Péturs“ eftir Manuel de Falla, samin 1919-1923, og ævintýraóperan „Sónata“ eftir Hjálmar H. Ragnarsson frá 1994. Haydn samdi óperu sína fyrir brúðuleikhús húsbónda síns, Nikulásar fursta af Esterházy, en það þótti sérlega vandað og glæsilegt, og María Teresía keisaraynja var viðstödd þegar óperan var frumflutt 1773. Textinn er byggður á forn-rómverskri goðsögn. Ópera Falla, „Brúðuspil meistara Péturs“ er samið fyrir brúðuleikhús Polignac furstynju og var frumflutt í höll furstynjunar í París 25. júní 1923. Efnið er sótt í sögu Cervantes um riddarann Don Kíkóta. Ópera Hjálmars H. Ragnarssonar, „Sónata“ var frumflutt í Íslensku óperunni á vegum Strengjaleikhússins árið 1994 og gefin út á geislaplötu ári síðar. Messíana Tómasdóttir samdi textann sem fjallar um prinsessuna Sónötu í Landi hinna tíu tungla. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • 13.02.2020
    Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu söngkonunnar Guðmundu Elíasdóttur, en hún fæddist í Bolungarvík 23. janúar 1920. Guðmunda var ein besta mezzósópran-söngkona Íslands á 20. öld. Árið 1981 komu út endurminningar hennar í bókinni „Lífsjátning“ sem Ingólfur Margeirsson skráði, en bókin vakti mikla athygli og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Sagt er frá ferli Guðmundu og fluttar hljóðritanir með henni, meðal annars atriði úr óperunni „Miðillinn“ eftir Menotti, en túlkun Guðmundu á titilhlutverkinu í þeirri óperu þótti sérlega magnþrungin. Lesarar í þættinum eru Jórunn Sigurðardóttir, Bergljót Haraldsdóttir og Guðni Tómasson, en umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    0 min