Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Rakarastofu tónlist
    Um þessar mundir eru rakarastofur á höfuðborgarsvæðinu lokaðar vegna varúðarráðstafana út af Covid-19-veirunni. Það er hins vegar ekki bannað að hlusta á tónlist sem tengist rakstri og rökurum, en þar er af nógu að taka. Frægasti rakari tónbókmenntanna er vafalaust rakarinn í Sevilla, aðalpersónan í samnefndri gamanóperu eftir Gioacchino Rossini. En það eru til óperur um fleiri rakara, til dæmis samdi Peter Cornelius óperuna „Rakarinn í Bagdad“ og Francisco Asenjo Barbieri samdi óperuna „Litli rakarinn í Lavapies“, en hún gerist í Madrid. Af hljóðfæraverkum má nefna rakhnífskvartettinn, en einn af kvartettum Josefs Haydns hefur þetta viðurnefni. Heitið „rakarakvartett“ er hins vegar haft um söngkvartetta sem syngja margraddað í sérstökum stíl. Öll þessi tónlist kemur við sögu í þættinum. Umsjón: Una Margrét Jónsdóotir.
    51 min
  • Darius Milhaud og Brasilía
    Árið 1917 kom franska tónskáldið Darius Milhaud til Brasilíu, en þar starfaði hann næstu tvö árin sem ritari franska sendiherrans. Milhaud kynntist þar brasilíska tónskáldinu Heitor Villa-Lobos og varð fyrir áhrifum frá tónlist landsins. Skömmu eftir Brasilíudvöl sína samdi Milhaud verkið „Saudades do Brasil“, en verkið skiptist í 12 kafla sem eru ýmist í tangó- eða sömbutakti og heita í höfuðið á tilteknum stöðum í Brasilíu. Villa-Lobos byrjaði hins vegar að semja verkið „Uirapurú“ árið 1917, sama ár og þeir Milhaud kynntust, en lauk því ekki fyrr en 1934. Það er balletttónlist og nafnið vísar til söngfugls í Brasilíu. Þessi verk verða flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 22. október ásamt smærri verkum eftir tónskáldin tvö. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    48 min
  • Árni Thorsteinsson
    Tónskáldið Árni Thorsteinson fæddist 15. október 1870 og eru því á þessu ári liðin 150 ár frá fæðingu hans. Mörg af lögum Árna eru með þekktustu perlum íslenskrar sönglagasögu, eins og „Nótt“, „Kirkjuhvoll“ og „Fögur sem forðum“. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 15. okt. kl. 14.03 verður fjallað um Árna og flutt lög eftir hann. Einnig má heyra rödd Árna sjálfs í hljóðritun sem Ríkisútvarpið lét gera á 70 ára afmæli hans 1940, en í pistli sínum talar Árni um nauðsyn þess að Íslendingar eignist hús sem ætlað sé tónlist. Lesari í þættinum er Pétur Grétarsson og umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Sigfús Halldórsson
    Á þessu ári eru 100 ár frá því að hið vinsæla tónskáld Sigfús Halldórsson fæddist. Í tilefni af því hefur Ríkisútvarpið látið hljóðrita píanóverk sem Sigfús samdi 16 ára gamall árið 1936. Það er Anna Guðný Guðmundsdóttir sem leikur verkið „In memoriam“ sem Sigfús samdi til minningar um vinkonu sína, Kristjönu Bjarnadóttur, sem dó ung úr berklum. Verkið verður flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 8. október kl. 14.03 og í þættinum verður einnig fjallað um tónskáldaferil Sigfúsar og leikin verða þekkt lög eftir hann, eins og „Dagný“, „Tondeleyó“ og „Litla flugan“. Lengi vel mátti heita svo að allir Íslendingar kynnu „Litlu fluguna“, en hvernig skyldi það vera núna, árið 2020? Umsjónarmaður þáttarins „Á tónsviðinu“ fór niður í miðbæ Reykjavíkur og spurði fólk á öllum aldri hvort það þekkti „Litlu fluguna“. Útkomuna má heyra í þættinum. Einnig verða flutt brot úr útvarpsviðtölum við Sigfús. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhildur Ólafsdóttir.
    53 min
  • Þátturinn verður helgaður tónsmíðum og skáldverkum sem tengjast steinum. Meðal annars verða fluttir þættir úr píanóverki Atla Heimis Sveinssonar, "Óður steinsins", en verkið er samið fyrir áhrif frá samnefndri bók sem út kom 1977 með 30 nærmyndum af steinum eftir Ágúst Jónsson og ljóðum um steinana eftir Kristján frá Djúpalæk. Einnig verður flutt kórverkið "Heilsa þér, Kjarval" eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli, en í verkinu er leikið á steinhörpu Páls. Af öðrum tónskáldum sem eiga verk í þættinum má nefna Jón Ásgeirsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Selmu Kaldalóns. Lesarar eru Leifur Hauksson og Vera Illugadóttir. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Á síðasta áratug 19. aldar stunduðu þrír ungir menn nám við Konunglega tónlistarskólann í Lundúnum og höfðu allir sama tónsmíðakennara: Charles Villiers Stanford. Þetta voru Ralph Vaughan Williams, Gustav Holst og William Yeates Hurlstone, en hinn síðastnefndi var þeirra hæfileikaríkastur að mati kennarans. Hurlstone lést hins vegar árið 1906, aðeins þrítugur að aldri, og frægðin féll ekki honum í skaut, heldur hinum tveimur. Í þættinum „Á tónsviðinu“, fim. 10. september, verður flutt tónlist eftir þá alla: einsöngslög eftir Vaughan Williams, kórlög eftir Holst og fagottsónata eftir Hurlstone. Einnig verða flutt sönglög eftir kennarann, Charles Villiers Stanford. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Á þessu ári eru liðin 100 ár frá stofnun Hæstaréttar Íslands og í tilefni af því verður þessi þáttur helgaður tónverkum og skáldverkum sem lýsa réttarhöldum. Meðal annars verða flutt atriði úr óperettunni "Trial by Jury" eftir Gilbert og Sullivan, óperunni "Der Prozess" eftir Gottfried von Einem og söngleiknum "Pickwick" eftir Cyril Ornadel. Lesnir verða kaflar úr skáldsögunum "Oliver Twist", "Pickwick" og "Bleak House" eftir Charles Dickens, "Lísu í Undralandi" eftir Lewis Carroll og "Réttarhöldunum" eftir Franz Kafka. Einnig verða lesin brot úr blaðalýsingu á raunverulegum réttarhöldum í Bretlandi á 19. öld þar sem ung kona gerði réttarhöldin líkust gamanleik með fyndnum tilsvörum sínum. Lesarar eru Pétur Grétarsson og Anna Marsibil Clausen. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    53 min
  • Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Guðmundar Jónssonar söngvara. Guðmundur var á seinni hluta 20. aldar einn besti barítónsöngvari Íslands: óperusöngvari, ljóðasöngvari og jafnvel dægurlagasöngvari og skemmtikraftur ef hann vildi það við hafa. Ekki er ofmælt að fáir söngvarar hafi jafnast við hann að vinsældum. Hann söng titilhlutverkið í fyrstu meiriháttar óperunni sem flutt var hér á landi með íslenskum söngvurum, „Rigoletto“ árið 1951, og á 6. 7. og 8. áratugnum fór hann með stór hlutverk í hverri óperusýningunni á eftir annarri. Árið 1982 söng hann aðalhlutverkið við frumflutning óperunnar „Silkitrommunnar“ eftir Atla Heimi Sveinsson og vakti frammistaða hans gífurlega hrifningu, en hann var þá kominn á sjötugsaldur. Í þættinum verður rætt við Ástríði dóttur Guðmundar og fluttar hljóðritanir með söng hans. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jónatan Garðarson.
    52 min
  • Nicola Porpora
    Sagt er frá ítalska tónsmiðinum Nicola Porpora, en hann var virt tónskáld á 18. öld og þótti einn besti tónlistarkennari sem völ var á. Meðal nemenda hans voru þekkt tónskáld og einnig tveir vinsælustu óperusöngvarar 18. aldar, Farinelli og Caffarelli. Flutt verða atriði úr óperum eftir Porpora og nemendur hans, tónskáldin Marianne Martinez og Joseph Haydn. Keppoinautur Porpora, Georg Friedrich Händel, kemur líka við sögu. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    53 min