Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Snjókarlar
    Í þessum þætti verða fluttar tónsmíðar sem tengjast snjókörlum og má þar nefna tónlist eftir Howard Blake úr teiknimyndinni „The Snowman“ frá árinu 1982 og dægurlagið „Frosty the Snowman“ eða „Snæfinnur snjókarl“ sem Walter „Jack“ Rollins og Steve Nelson sömdu árið 1950. Einnig verður flutt atriði úr leikritinu „Snjókarlinn okkar“ eftir Odd Björnsson, sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi árið 1967, en Leifur Þórarinsson samdi tónlist við leikritið. Þá verða lesin brot úr ævintýrinu „Snjókarlinn“ eftir H.C. Andersen. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    52 min
  • Lög við ljóð Einars Braga
    Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu skáldsins Einars Braga og í þættinum verða flutt lög við ljóð hans. Þar má nefna „Gestaboð um nótt" eftir Jórunni Viðar, „Regn í maí" eftir Jón Ásgeirsson, og „Jólaljóð" sem bæði Jón Ásgeirsson og Leifur Þórarinsson hafa tónsett. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
    50 min
  • Rómeó og Júlía
    Nýlega hófust sýningar í Þjóðleikhúsinu á leikritinu „Rómeó og Júlíu" eftir William Shakespeare. Mörg tónskáld, útlend og innlend, hafa orðið fyrir innblæstri frá þessu leikriti og í þættinum verður flutt tónlist sem tengist leikritinu. Þar má nefna leikhústónlist eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Knút R. Magnússon, óperuna „Rómeó og Júlíu" eftir Charles Gounod og samnefndan ballett eftir Sergei Prokofiev. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jónatan Garðarsson.
    51 min
  • Mikis Theodorakis
    2. september sl. lést gríska tónskáldið Mikis Theodorakis, 96 ára að aldri. Þátturinn verður helgaður honum. Hann var meðal annars þekktur fyrir tónlist sem hann samdi við kvikmyndina „Grikkinn Zorba“ árið 1964, en Theodorakis samdi tónlist af ýmsu tagi: söngva, balletta, sinfóníur og óperur. Andi grískrar þjóðlagatónlistar sveif oft yfir vötnunum í tónsköpun Theodorakis. Margir söngvar hans voru ádeilusöngvar, enda lifði Theodorakis mikla óróatíma í heimalandi sínu, Grikklandi. Hann lenti hvað eftir annað í fangelsi vegna stjórnmálaafskipta sinna og einkum voru ofsóknir á hendur honum miklar á tíma herforingjastjórnarinnar, 1967 til 1974, en þá var tónlist hans bönnuð í Grikklandi. Í þættinum verður lesið úr ævisögulegri bók Theodorakis, „Dagbók úr andspyrnuhreyfingu“ og einnig þýðingar Kristjáns Árnasonar og Böðvars Guðmundssonar á ljóðum við lög hans. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Jónatan Garðarsson.
    48 min
  • Hinn raunverulegi Tannhäuser
    Tónskáldið Richard Wagner lauk við óperu sína „Tannhäuser“ árið 1845, en í henni er fjallað um þýska mansöngvarann Tannhäuser sem var uppi á 13. öld. Flutt verða lög og ljóð eftir hinn raunverulega Tannhäuser og aðra mansöngvara sem koma fram sem persónur í óperunni. Má þar nefna Wolfram von Eschenbach og Walter von der Vogelweide. Þeir voru uppi á 13. öld, eins og Tannhäuser, og í miðaldahandritum hafa varðveist skáldverk og lög eftir þá. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Anna Marsibil Clausen.
    52 min
  • Sveinbjörn Sveinbjörnsson og þjóðlögin
    Fjallað er um útsetningar Sveinbjörns Sveinbjörnssonar á íslenskum þjóðlögum. Sveinbjörn er einkum þekktur sem höfundur lagsins við íslenska þjóðsönginn, en árið 1914 komu út útsetningar hans á 20 íslenskum þjóðlögum fyrir einsöng og píanó. Þar birtist meðal annars í fyrsta skipti lagið „Sofðu, unga ástin mín". Fluttar eru hljóðritanir af flestum þjóðlagaútsetningum Sveinbjörns fyrir einsöngvara, einnig tvær kórútsetningar og eitt píanóverk byggt á þjóðlögum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    52 min
  • Fidelio og Leónóra
    „Fidelio“ var eina ópera Beethovens og var frumsýnd árið 1805, en hann gerði síðar breytingar á henni og endanleg gerð óperunnar var frumsýnd 1814. Óperan er byggð á texta eftir Jean-Nicolas Bouilly og fjallar um hugrakka konu, Leónóru, sem bjargar eiginmanni sínum úr fangelsi. En Beethoven var ekki fyrstur til þess að nota þessa sögu, þrír tónsmiðir höfðu orðið á undan honum til þess að semja óperu um Leónóru. Einn þeirra var Ferdinando Paër, en ópera hans, „Leónóra“, var frumflutt 1804. Beethoven þekkti Paër og mat hann mikils, jafnvel er talið að hann hafi orðið fyrir nokkrum áhrifum frá óperu Paërs þegar hann samdi „Fidelio“. Á liðnu ári var „Leónóra“ eftir Paër gefin út á geislaplötum og í þættinum „Á tónsviðinu“ verða flutt atriði úr báðum óperunum: „Leónóru“ eftir Paër og „Fidelio“ eftir Beethoven, svo að hlustendum gefist tækifæri til þess að bera óperurnar saman.
    Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
    51 min
  • Haukur Guðlaugsson
    Haukur Guðlaugsson, fyrrverandi söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, varð níræður fyrir skömmu. Áður en Haukur varð söngmálastjóri árið 1974 var hann skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi, en auk þess var hann lengi organisti Akraneskirkju og stjórnandi karlakórsins Svana. Út hafa komið tvær geislaplötur með orgelleik Hauks, „Organflóra“ 1 og 2. Una Margrét Jónsdóttir spjallar við Hauk og leiknar verða hljóðritanir af orgelleik hans.
    51 min
  • Undanfarið hefur sjónvarpið sýnt breska framhaldsmyndaflokkinn „Vanity Fair“ eða „Markaður hégómans“ sem er byggður á frægri sögu eftir William Thackeray. Í tilefni af því verða flutt í þættinum tónverk sem snúast um hégóma eða markað hégómans, en hugmyndin um þetta markaðstorg er komin úr sögunni „För pílagrímsins“ eftir 17. aldar höfundinn John Bunyan. Leikin verða verk eftir Ralph Vaughan Williams, Kaspar Förster, Johann Sebastian Bach og fleiri. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    52 min