Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • Renée Fleming og Joyce DiDonato
    Á tveimur undanförnum árum, 2021 og 2022, hafa komið út tvær geislaplötur, önnur með sópransöngkonunni Renée Fleming og hin með mezzósópransöngkonunni Joyce DiDonato, og viðfangsefni beggja hljómdiskanna er það sama: náttúran og umgengni mannfólksins við hana. Tónlistin er eftir marga höfunda og má þar meðal annars finna 17. aldar tónskáldið Francesco Cavalli, 19. aldar tónskáldið Franz Liszt og 20. aldar tónskáldið Aaron Copland auk þess sem frumflutt eru ný tónverk eftir Rachel Portman og Kevin Puts. En öll söngverkin snúast að einhverju leyti um náttúruna. Fluttar verða hljóðritanir af þessum geislaplötum og einnig koma við sögu aðrar tónsmíðar sem tengjast náttúrunni svo sem „Sólskinsskúrin“ eftir Árna Thorsteinsson og „Þögnuðuholt“ eftir Hauk Tómasson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
    50 min
  • Sigurveig Hjaltested
    Á þessu ári er liðin öld frá fæðingu Sigurveigar Hjaltested mezzósópransöngkonu, sem var ein af merkustu söngvurum Íslands á seinni hluta 20. aldar. Í tilefni af því verður þátturinn helgaður henni og fluttar hljóðritanir með söng hennar. Þar á meðal er hljóðritun frá sýningu Þjóðleikhússins árið 1960 á óperunni „Rigoletto" eftir Verdi, en þar fór Sigurveig með hlutverk Maddalenu og söng á móti hinum fræga sænska tenórsöngvara Nicolai Gedda. Einnig verður rætt við Ólaf Beintein Ólafsson, son Sigurveigar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Snorri Rafn Hallsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.
    50 min
  • Jónas Hallgrímsson og ljóðið Illur lækur
    Margir kannast við ljóð Jónasar Hallgrímssonar „Illur lækur" sem hefst á orðunum „Nú fór illa, móðir mín". Leikin verða lög við þetta ljóð eftir nokkur íslensk tónskáld. Þar á meðal er Atli Heimir Sveinsson, en lag hans er til í tveimur útgáfum, en Atli Heimir samdi fyrri útgáfu lagsins þegar hann var ekki nema 16 ára. Ljóð Jónasar er byggt á spænsku þjóðkvæði og í þættinum verður sagt frá rannsóknum Sveins Yngva Egilssonar, en honum tókst að finna spænska frumkvæðið eftir nokkra leit. Þegar það er skoðað kemur í ljós að kvæði Jónasar leynir á sér, við fyrstu sýn virðist það vera saga um litla stelpu sem bleytir kjólinn sinn í læknum, en í rauninni hefur ljóðið tvíræða merkingu. Einnig verður flutt hljómsveitarsvíta Páls Ísólfssonar „Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar", en hún kom nýlega út á geislaplötu hjá Chandos. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Anna Marsibil Clausen og Snorri Rafn Hallsson.
    51 min
  • Söngvar og tónverk um júní
    Í þættinum verður leikin tónlist sem tengist júnímánuði. Tvö 19. aldar tónskáld, Fanny Mendelssohn-Hensel og Pjotr Tsjaíkovskí, sömdu röð stuttra píanóverka þar sem hvert verk táknaði einn mánuð. Fanny samdi verk sitt 1841 og gaf júníkaflanum undirtitilinn „Mansöngur". Hjá Tsjaíkovskí heitir júníkaflinn „Bátssöngur", en hans verk er frá árinu 1875. Þessi tvö smáverk verða flutt í þættinum og einnig allmargir söngvar um júnímánuð, svo sem „Júnímorgunn" eftir Jórunni Viðar, „June" eftir Roger Quilter og „June is bustin´ out all over" úr söngleiknum „Carousel" eftir Rodgers og Hammerstein. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.
    50 min
  • Græni liturinn í tónlist
    Í þessum þætti verður flutt tónlist sem tengist græna litnum. Þar má nefna þrjá söngva úr söngvaflokknum „Malarastúlkan fagra" eftir Franz Schubert, en þar kemur græni liturinn mikið við sögu. Einnig verður flutt stutt verk í F-dúr eftir Jean Sibelius, en Sibelius sá tóntegundir í litum og var þeirrar skoðunar að F-dúr væri grænn á litinn. Meðal annarra tónsmíða í þættinum eru „Erstes Grün" eftir Robert Schumann, „Grænn snjór" eftir Jónas Tómasson og „Bein´ green" eftir Joe Raposo. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • 25.05.2023
    Árið 1977 var var 62. heimsþing Alþjóðlega esperanto-sambandsins haldið hér á Íslandi. Þá var frumflutt verkið „Sonĝpoemo pri ponto“ (Draumkvæði um brú) eftir Sigursvein D. Kristinsson við ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Tónskáldið tileinkaði Alþjóðlega esperantósambandinu verkið. Tveimur árum síðar, 1979, kom út hljómplata með tónverki Sigursveins og þekktum íslenskum sönglögum á esperantó. Í þættinum verður leikin tónlist af plötunni um leið og spjallað verður við Benedikt Hjartarson sem er í stjórn Íslenska esperantósambandsins. Sambandið hefur átt í erfiðleikum, það varð að selja húsnæði sitt vegna fjárskorts og hefur verið að leita að nýjum varðveislustað fyrir bókasafn sitt, 6000 bækur og tímarit á esperantó. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    50 min
  • Árið 1977 var var 62. heimsþing Alþjóðlega esperanto-sambandsins haldið hér á Íslandi. Þá var frumflutt verkið „Sonĝpoemo pri ponto“ (Draumkvæði um brú) eftir Sigursvein D. Kristinsson við ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Tónskáldið tileinkaði Alþjóðlega esperantósambandinu verkið. Tveimur árum síðar, 1979, kom út hljómplata með tónverki Sigursveins og þekktum íslenskum sönglögum á esperantó. Í þættinum verður leikin tónlist af plötunni um leið og spjallað verður við Benedikt Hjartarson sem er í stjórn Íslenska esperantósambandsins. Sambandið hefur átt í erfiðleikum, það varð að selja húsnæði sitt vegna fjárskorts og hefur verið að leita að nýjum varðveislustað fyrir bókasafn sitt, 6000 bækur og tímarit á esperantó. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
    50 min
  • Regnsónata Brahms
    Í þættinum verður slegist í för með tónskáldinu Johannesi Brahms í hellirigningu. Flutt verður Regnsónatan (fiðlusónata nr.1 í G-dúr) eftir Brahms, en hún dregur nafn sitt af því að tónskáldið byggði hana að nokkru leyti á tveimur söngvum sem hann hafði áður samið og fjalla báðir um rigningu. Þeir verða líka fluttir í þættinum svo og fleiri rigningarsöngvar eftir Brahms. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Rúdolf erkihertogi og Beethoven
    Í þættinum verður fjallað um Rúdolf erkihertoga sem var nemandi Beethovens, en einnig vinur hans og velgjörðamaður. Rúdolf fæddist 1788 og hóf á unglingsaldri nám í píanóleik og tónsmíðum hjá Beethovens. Árið 1809, þegar Rúdolf var rúmlega tvítugur, átti hann frumkvæði að því að Beethoven fengi árlegan fjárstyrk frá þremur aðalsmönnum, en einn þeirra var Rúdolf sjálfur. Beethoven tileinkaði Rúdolf mörg af verkum sínum og í þættinum verður eitt þeirra flutt í heild, en leiknir kaflar úr tveimur öðrum. Þetta eru Kveðjusónatan, sem Beethoven samdi þegar Rúdolf þurfti að flýja frá Vínarborg vegna Napóleonsstyrjaldanna árið 1809, Erkihertogatríóið sem Beethoven samdi 1810-11 eftir að Rúdolf kom aftur, og Missa solemnis, sem var samin í tilefni af því að Rúdolf var vígður erkibiskup 1819. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    52 min