Á tónsviðinu

Á tónsviðinu

By RÚVMusic
Download on the App Store

All Á tónsviðinu episodes

  • 1. kafli fiðlukonserts í D-dúr eftir Beethoven
    Í þættinum verður fluttur 1. kafli úr fiðlukonsert í D-dúr eftir Ludwig van Beethoven. Einleikari er María Dueñas, en hún er ein af bestu ungu fiðluleikurum okkar tíma og fékk 1. verðlaun í eldri flokki Yehudi Menuhin-fiðlukeppninnar árið 2021. Fiðlukonsertinn er saminn árið 1806, en María Dueñas leikur einnig einleikskadensur við hann frá ýmsum tímum. Í konsert er kadensa sérstakur kafli þar sem einleikarinn fær að láta ljós sitt skína meðan hljómsveitin þegir. Fyrr á öldum voru það yfirleitt ekki tónskáldin sjálf sem sömdu kadensurnar, heldur samdi hver einleikari sína kadensu og lék af fingrum fram. Því eru til margar kadensur við fiðlukonsert Beethovens, en óvanalegt að leika þær stakar eins og María Dueñas gerir. Hún leikur kadensur eftir Louis Spohr, Eugène Ysaÿe, Camille Saint-Saëns og Fritz Kreisler, auk þess sem hún leikur nýja kadensu eftir sjálfa sig í 1. kafla fiðlukonsertsins. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    49 min
  • Tónlist sem tengist tröllum
    Í þættinum verður leikin tónlist sem tengist tröllum og jötnum íslenskri þjóðtrú. Þar á meðal eru tveir „Tröllaslagir", annar eftir Þorkel Sigurbjörnsson og hinn eftir Jón Ásgeirsson. Einnig má nefna lagið „Ingjaldur í skinnfeldi" eftir Árna Thorsteinson, en það er samið við kvæði sem tröllkonan Hetta fer með í íslensku fornsögunni „Bárðar sögu Snæfellsáss". Þá verður fluttur kafli úr óratóríunni „Edda I" eftir Jón Leifs og klarínettukonsertinn „Búkolla" eftir Þorkel Sigurbjörnsson, en heiti konsertsins vísar til þjóðsögunnar um kúna Búkollu sem þurfti að bjarga úr tröllahöndum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
    50 min
  • Tónlist sem snýst um bernskuár Jesú
    Frásögn Biblíunnar af fæðingu Jesú þekkja flestir, en hins vegar gefur Biblían afar litlar upplýsingar um bernskuár Jesú. Snemma fóru hins vegar að myndast sögur um bernsku Jesú, helgisagnir og þjóðkvæði, og síðarmeir jafnvel skáldskapur eftir nafngreinda höfunda. Í þættinum í dag verður flutt tónlist sem snýst um bernskuár Jesú. Þar má nefna enska þjóðlagið „Cherry Tree Carol" þar sem Jesús talar úr móðurkviði, hollenska þjóðlagið „Jesuken en Janneken" sem lýsir leik Jesú litla við Jóa litla, þ.e.a.s. Jóhannes sem síðar var nefndur Jóhannes skírari, og kafla úr óratóríunni „Bernska Krists" eftir Hector Berlioz. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Tónlist sem snýst um bernskuár Jesú
    Frásögn Biblíunnar af fæðingu Jesú þekkja flestir, en hins vegar gefur Biblían afar litlar upplýsingar um bernskuár Jesú. Snemma fóru hins vegar að myndast sögur um bernsku Jesú, helgisagnir og þjóðkvæði, og síðarmeir jafnvel skáldskapur eftir nafngreinda höfunda. Í þættinum í dag verður flutt tónlist sem snýst um bernskuár Jesú. Þar má nefna enska þjóðlagið „Cherry Tree Carol" þar sem Jesús talar úr móðurkviði, hollenska þjóðlagið „Jesuken en Janneken" sem lýsir leik Jesú litla við Jóa litla, þ.e.a.s. Jóhannes sem síðar var nefndur Jóhannes skírari, og kafla úr óratóríunni „Bernska Krists" eftir Hector Berlioz. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Jólatónlist sem tengist sjónvarpsþáttum fyrri tíma
    Í þættinum verður flutt jólatónlist tengd sjónvarpsþáttum frá 7. og 8. áratug 20. aldar. Meðal annars kemur Partridge-fjölskyldan við sögu, en þættirnir um hana voru framleiddir í Ameríku á árunum 1970-1974 og sýndir í íslenska sjónvarpinu undir heitinu „Söngelska fjölskyldan". Jólaplata með fjölskyldunni kom út árið 1972. Prúðuleikarar Jims Hensons láta líka ljós sitt skína, en jólaþáttur um þá var sýndur í bresku og bandarísku sjónvarpi árið 1979 og árið eftir íslenska sjónvarpinu. Einnig verður flutt brot úr jólaóperunni „Amahl og næturgestirnir" eftir Gian Carlo Menotti, en hún var tekin upp fyrir íslenska sjónvarpið árið 1968. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Jólatónlist í kristilegum trúarleikritum á miðöldum
    Á miðöldum var algengt að sýnd væru kristileg trúarleikrit til þess að kynna almenningi frásagnir Biblíunnar. Varðveist hefur jólatónlist úr nokkrum slíkum trúarleikritum og má þar nefna þýska lagið „Joseph, lieber Joseph mein" og enska lagið „Coventry Carol". Þessi lög og fleiri verða flutt í þættinum og einnig verður leikin tónlist frá svokallaðri Fíflahátíð eða Asnahátíð, en hún var eitt af sérkennilegri fyrirbrigðum miðalda. Hún fór fram í Frakklandi, Englandi og fleiri löndum dagana eftir jól, einkum þó í kringum nýár. Þá var öllu snúið á hvolf, hinn æðsti í tign varð lægstur, messur voru skopstældar, asni leiddur inn í kirkjuna og prestar létu eins og fífl. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Halla Harðardóttir.
    50 min
  • Ralph Vauhan Williams
    Breski tónsmiðurinn Ralph Vaughan Williams fæddist árið 1872 og lést 1958. Hann var mikill áhugamaður um ensk þjóðlög, safnaði þeim og útsetti. Það voru ekki síst jólalög sem vöktu áhuga hans, hann útsetti mörg þeirra og fléttaði þau inn í jólatónverk. Í þættinum verður fluttur ballettinn „On Christmas Night" (Á jólanótt) sem Vaughan Williams samdi árið 1926 og byggði á hinu fræga Jólaævintýri Charles Dickens um nirfilinn Scrooge. Einnig verða flutt atriði úr helgileiknum „The First Nowell" sem Vaughan Williams byggði á gömlum jólalögum. Hann var langt kominn með þetta verk þegar hann lést 26. ágúst 1958. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
    50 min
  • Maria Callas
    Í þættinum verður fjallað um Mariu Callas, eina frægustu óperusöngkonu allra tíma, en á þessu ári er liðin öld frá fæðingu hennar. Fluttar verða hljóðritanir frá tímabilinu 1949 - 1964 þar sem Maria Callas syngur óperuaríur eftir Giuseppe Verdi, Gaetano Donizetti, Umberto Giordano og fleiri. Einnig verða flutt atriði úr óperunni „Toscu" eftir Giacomo Puccini í hljóðritun frá 1953 sem þykir sérlega vel heppnuð, en þeim flutningi stjórnaði Victor de Sabata. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
    50 min
  • Tónverk sem tengast uglum
    Í þættinum verður fjallað um tónverk og skáldverk sem tengjast uglum. Meðal tónsmíða sem fluttar verða eru sönglagið „Käuzlein" (Litla uglan) eftir Robert Schumann, píanóverkið „Turnuglan er ekki flogin burt" eftir Leos Janácek og sönglagið „The Owl and the Pussy Cat (Uglan og kisinn) eftir Ígor Stravinskí. Fá íslensk skáld hafa ort um uglur, en Jónas Hallgrímsson samdi ævintýri: „Stúlkan í turninum", þar sem ugla kemur mikið við sögu. Snorri Sigfús Birgisson hefur byggt tónverk á þessu ævintýri Jónasar og atriði úr því verða flutt í þættinum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðmundur Pálsson.
    50 min
  • Skólaljóð
    Í tilefni af degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, verða flutt lög við kvæði úr „Litlu skólaljóðunum" sem út komu 1969. Jóhannes úr Kötlum valdi ljóðin í bókina og er þar annars vegar um að ræða gömul íslensk þjóðkvæði, en hins vegar ljóð eftir samtímaskáld, höfunda 20. aldar. Þar sem bókin var ætluð börnum reyndi Jóhannes að velja ljóð sem höfðuðu til barna þótt þau væru flest ort með fullorðna í huga. Árið 1981 kom út nótnabókin „Ljóðakorn" með lögum Atla Heimis Sveinssonar við ljóð úr „Litlu skólaljóðunum" og verða mörg þeirra laga flutt í þættinum, en einnig lög eftir önnur tónskáld, svo sem Ingibjörgu Þorbergs, Sigursvein D. Kristinsson, Jórunni Viðar og Jón Ásgeirsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Anna Marsibil Clausen.
    50 min