Til eru ljóð, sönglög og tónverk helguð dögum vikunnar og í þættinum „Á tónsviðinu“ 17. maí 2018 verða nokkur þeirra flutt. Sá dagur sem flestar tónsmíðar virðast helgaðar er fyrsti dagur vikunnar, sunnudagur, enda er hann helgidagur hjá kristnum mönnum. Bæði Johannes Brahms og Robert Schumann sömdu lag sem heitir „Sonntag“ eða „Sunnudagur“. Mánudagur og þriðjudagur eru ekki jafn vinsælir, þó hafa sænski tónsmiðurinn Jan Johanson og finnski tónsmiðurinn Sven Nygård tileinkað þeim lög. Frægt er ljóðið „Miðvikudagur“ eftir Stein Steinarr, en við það hefur Ingólfur Steinsson samið lag. Fimmtudagur hét áður í höfuðið á guðinum Þór og í þættinum verður leikin „Herhvöt Þórs“ eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Þá verða leikin lögin „Föstudagurinn þrettándi“ eftir Django Reinhardt og „Laugardagskvöldið á Gili“ eftir Helfrid Lambert, og einnig danska þjóðlagið „Det var en lørdag aften“. Lesari í þættinum er Guðni Tómasson.