Johann Peter Emilius Hartmann var eitt merkasta tónskáld Dana á 19. öld, en eiginkona hans, Emma Hartmann, samdi líka sönglög og stutt tónverk sem gefin voru út undir dulnefninu Frederik Palmer. Fjallað er um Hartmann fjöldkylduna, sem var stór því Hartmann og Emma eignuðust níu börn á árunum 1831-1845. Barneignirnar tóku svo á heilsu Emmu að árið 1841 skrifaði hún Hartmann gamansamt bréf í nafni barna þeirra og bað hann að hætta að panta storkinn, nóg væri komið. Eitt af börnum Hartmann hjónanna, Maria, rataði á skemmtilegan hátt inn í sögu eftir H.C. Andersen sem var vinur fjölskyldunnar. Emil sonur Hartmann hjónanna varð tónskáld og Oluf sonur hans varð listmálari, en dó ungur og fyrir jarðarför hans samdi Carl Nielsen tónverkið „Ved en ung Kunstners Baare" eða „Við líkbörur ungs listamanns". Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.